Læknablaðið - 01.10.1977, Blaðsíða 34
200
LÆKNABLAÐIÐ
breiðsla meinsins er könnuð eða um leið
og stungið er á einfaldri blöðru í eggja-
stokk, sparar mörgum uppskurð. Þá kem-
ur fram, að á árunum 1973-74 voru hafnar
ófrjósemisaðgerðir (electrocoagulatio tu-
barum via laparoscop.), en þessum að-
gerðum hefur fjölgað mjög síðan með nýj-
um og frjálslegri lögum.
Gildi kviðspeglana liggur að nokkru í
spöruðum uppskurðum, en hver og einn
uppskurður kostar legudaga og enn fleiri
vinnudaga, en einnig þjáningu og ósjaldan
spjöll á fallegum konumaga.
í 40 tilfellum leiddi speglunin beint til
uppskurðar, hjá 7 mistókst að komast inn
í kviðarholið (byrjunarerfiðleikar), 5
höfðu svo mikla samvexti að speglunin
kom ekki að gagni, 20 höfðu æxli, sem
þarfnaðist aðgerðar og 8 utanlegsþykkt.
Hjá þeim 28, þar sem greiningin við kvið-
speglun leiddi til skurðaðgerðar, fékkst
réttmæíi greiningarinnar staðfest í öll-
um tilvikum nema einu (sjá síðar).
Tafla III sýnir ábendingar á kviðspegl-
un og tafla IV þær greiningar, sem feng-
ist hafa með henni.
Óírjósemi (sterilitas) er algengasta
ástæðan til kviðspeglunar. Er henni beitt
bæði við frum- og síðari ófrjósemi (steril-
itas primaria et secundaria). Oft eru gerð-
ar viðbótaraðgerðir, blásning, losun sam-
vaxta og sýnistaka frá eggjastokkum og
legbolsslímu. Nú koma ekki öll tilfellin
til speglunar, þannig að um visst úrtak
er að ræða, en með þeim hætti, sem við-
hafður hefur verið, fást jákvæðar grein-
ingar í 70 tilfellum af 105, en hjá 35 finnst
ekkert, sem hnígur að ófrjósemi. Við marg-
TABLE III
Indications for laparoscopy 1971-74.
Indication 1971 1972 1973 1974 Total
Sterility 9 26 25 45 105
Abdominal pain 9 23 28 32 92
Pelvic tumor 5 10 19 19 53
Acute salpingitis Extrauterine ? 0 11 8 5 24
pregnancy 4 3 5 7 19
Oligo-amenorrhé 0 5 3 4 12
Cancer 0 3 2 2 7
Sterilization 0 0 2 13 15
þætta rannsókn, eins og viðhöfð er í ófrjó-
semi, er neikvæð greining oft býsna þýð-
ingarmikil og þannig má ljóst vera að
gildi kviðspeglana er afar mikið í þessum
tilfellum.
Kviðverkir (dolor abdominis) eða nánar
tiltekið langvarandi verkur um neðan-
verðan kvið, án þess að nokkur skýring
finnist, er önnur algeng ástæða til kvið-
speglunar. Þá er þægilegt að geta boðið
upp á slíka rannsókn, en hvað gefur hún?
í 10 tilfellum af 92 finnst skýring, a. m. k.
sennileg (varices pelvis og endometriosis).
í 41 tilfelli finnast samvextir, sem verða
að teljast heldur vafasöm skýring á verkj-
um. Loks finnst engin skýring í 41 tilfelli.
Þannig virðist í fljótu bragði, að gildi
speglunarinnar sé 1 rýrara lagi og draga
mætti úr eða draga á langinn að gera
þær út á þessa ábendingu. Hitt mun þó
sönnu nær, að hér vanti meiri vitneskju.
Hvernig reiðir þessum sjúklingum af, leið-
ir tíminn eitthvað nýtt í ljós? Hver var
árangur af samvaxtalosunum? Athyglis-
vert er, að miðað við aðrar ábendingar í
þessu uppgjöri, var tíðni samvaxta mjög
há við dolor abdominis.
Fyrirferðaraukning í kvið (tumor
pelvis). Hér er oft um að ræða miðaldra
og eldri konur, þar sem þreifing er erfið
og spurning er um góðkynja hnút í legi
(myoma) eða æxli í eggjasiokki. í 5 lil-
fellum varð vegna samvaxta að gera hol-
skurð til þess að komast að greiningu.
Annars virðist greiningin við speglun hafa
verið örugg.
Bráð eggjaleiðarabólga? (salpingitis
acuta). Upphaflega voru bráðir bólgusjúk-
dómar taldir til frábendinga (kontra-
indicatio). Reynslan sýndi þó, að slík var-
færni var ástæðulaus. Hjá okkur hafa
eingöngu vafatilfelli verið spegluð, og
töldust 14 af 24 hafa sjúkdóminn sam-
kvæmt speglun. í einu tilfelli sannaðist,
að greiningin var röng, á daginn kom utan-
legsþykkt. Hjá 10 var hægt að afskrifa
gruninn og virðist sú greining hafa stað-
ist. Hér má minna á, að eina viðhlítandi
meðferðin á bráðri bólgu í eggjaleiðurum
er lega og lyfjagjöf á sjúkrahúsi í a. m. k
2 vikur.
Utanlegsþykkt? (grav. extrauterina)
var í 19 tilfellum tilefni til speglunar. Af