Læknablaðið - 01.10.1977, Blaðsíða 70
224
LÆKNABLAÐIÐ
AÐALFUNDUR LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS 1977
Aðalfundur Læknafélags íslands 1977
var haldinn í Reykjavík dagana 15.—17.
sept. Fyrsta daginni fór fundurinn fram í
fundarsal Landakotsspítala en síðari dag-
ana í Domus Medica.
Tómas Árni Jónasson, formaður L.Í.,
setti fundinn og bauð fundargesti vel-
komna, kjörna fulltrúa, svo og aðra gesti:
Pál Sigurðsson, ráðuneytisstjóra, Bergsvein
Ólafsson, stjórnarformann Domus Medica,
Friðrik Karlsson, framkvæmdastjóra Dom-
us Medica, Pál Þórðarson, framkvæmda-
stjóra læknafélaganna, Bjarna Þjóðleifsson
og Örn Bjarnason, ritstjóra Læknablaðsins,
Stefán Karlsson, fulltrúa Félags ungra
lækna, Ásmund Brekkan, fulltrúa Félags
yfirlækna og Þórodd Jónasson úr endur-
skoðunarnefnd laga L.í. og Codex Ethicus.
Kjörnir þingfulltrúar voru eftirtaldir:
Frá Læknafélagi Reykjavíkur: Eyjólfur Þ.
Haraldsson, Ólafur G. Guðmundsson,
Snorri P. Snorrason, Tómas Á. Jónasson,
Þorvaldur V. Guðmundsson, Gestur Þor-
geirsson, Kristinn R. Guðmundsson, Kristj-
án Erlendsson og Ólafur Örn Arnarson.
Frá Læknafélagi Vestuilands: Pálmi Frí-
mannsson. Frá Læknafélagi Vestfjarða:
Úlfur Gunnarsson. Frá Læknafélagi Norð-
Vesturlands: Sigursteinn Guðmundsson.
Frá Læ'knafélagi Akureyrar: Erlendur
Konráðsson og Magnús L. Stefánsson. Frá
Læknafélagi Norð-Austurlands: Hafsteinn
Skúlason. Frá Læknafélagi Austurlands:
Guðmundur Sigurðsson. Frá Læknafélagi
Suðurlands: Brynleifur H. Steingrímsson.
Frá F.Í.L.B.: Guðrún Agnarsdóttir.
Kynnt var stofnun Félags íslenzkra
lækna í Svíþjóð (FÍLÍS).
Nýkjörin stjóm L.í. september 1977: Guðmundur Pétursson varaformaður, Auðólfur
Gunnarsson ritari, Tóma.s Á. Jónasson formaður, Guðmundur Sigurðsson gjaldkeri og
Ísleifur Halldórsson meðstjórnandi.