Læknablaðið - 01.10.1977, Blaðsíða 75
LÆKNABLAÐIÐ
229
væru sárafáir árekstrar. Urðu menn sam-
mála um að hérlendis mundi að líkindum
nægja ein nefnd. Væntanleg siðanefnd
lækna mundi að likindum henta sem áfrýj-
unarnefnd. Varað var við því að umfjöll-
unarnefndin hefði nokkuð með fjárveiting-
ar til rannsókna að gera. Varðandi sam-
setningu slíkra nefnda sagði Riis að í Dan-
mörku væru í þeim 9 menn: 3 úr röðum
lækna, tannlækna eða lyfjafræðinga, 3
fræðimenn óskyldra visindagreina og 3
leikmenn. Voru fundarmenn sammála um
nauðsyn þess að leikmenn ættu fulltrúa í
slíkri nefnd. f Danmörku eru menn skip-
aðir pólitískt í þær, eftir ábendingum ofan-
greindra hópa, sem aðild eiga að nefndun-
um.
Rætt var um, hvort nauðsynlegt væri að
þýða yfirlýsinguna og var niðurstaðan sú,
að slíkt væri tæpast nauðsynlegt, enda
geysi erfitt að þýða slíkar alþjóðayfirlýs-
ingar svo engin meining brenglist.
Lauk nú umræðum, en í lokin kom fram
sú ósk, að umræðum um siðamál yrði fram-
vegis haldið vakandi.
Að lokum samþykktu fundaiTnenn eftir-
farandi ályktanir: Umræðuhópur Lækna-
þings 1977 um Helsin'kiyfirlýsinguna og
læknisfræðilegar tilraunir á mönnum
skorar á stjórn Læknafélags íslands að
hlutast til um að ísienzkir læknar gerist
aðilar að Helsinkisamþykktinni. Hópurinn
telur nauðsynlegt að vandlega verði staðið
að skipun nefndar eða nefnda þeirra, er
yfirlýsingin segir til um. Mælt er með að
leikmenn hafi fulltrúa í slíkum nefndum.
Hópurinn hvetur til að umræðu um siða-
mál lækna sé jafnan haldið vakandi og tel-
ur læknafélögin hafa þar skyldum að
gegna.
MEÐFERÐ LÆKNASAMTAKANNA Á
MEINTUM BROTUM Á FÉLAGSLÖGUM
OG SIÐAREGLUM LÆKNA
Umræðustjóri: Örn Bjarnason.
Ritari: Guðmundur Jóhannesson.
Inngangserindi: Ólafur Örn Arnarson.
Lögfræðiráðunautur: Jón Ingimarsson.
Aðrir þátttakendur: Guðm. Helgi Þórðars.
Erlendur Konráðsson,
Magnús L. Stefánsson,
Þorv. Veigar Guðm.ss.
Hannes Finnbogason,
Snorri P. Snorrasan,
Daníel Daníelsson,
Tómas Á. Jónasson,
Páll Þórðarson,
Eyjólfur Þ. Haraldss.,
Óskar Þórðarson,
Logi Guðbrandsson.
Ólafur Örn Arnarson hélt stutt inngangs-
erindi um þær lagagreinar og reglur í
Codex Efchicus, sem í þessu sambandi skiptu
máli. Las hann fyrst upp 17. grein laga
L.Í., þar sem stendur: „Stjórn L.í. og að-
ildarfélaganna s’kulu hafa eftirlit með því,
að félagsmenn þeirra 'hlýði Codex Efchicus,
lögum og samþykktum L.í. Verði stjórn
aðildarfélags vör við stórfelldar misfellur
í þessu, tilkynnir hún það stjórn L.í.“
Það er þannig skv. þessari grein skylda
stjórnar L.í. að fylgjast með því, að lækn-
ar haldi Codex Ethicus.
í 20. grein laga L.í. stendur: „Ef félagi
gerir sig líklegan til þess að brjóta lög fé-
lagsins eða samþykkt eða hegða sér ó-
sæmilega, hvort heldur í læknisstarfi eða
í sambandi við umsókn um stöðu, skai
hann aðvaraður. Nú bregzt félagsmaður
þeim skyldum, sem honum ber að inna af
hendi, eða brýtur lög félagsins eða Codex
Ethicus, og skal þá veita honum áminn-
ingu. Sé um ítrekað brot að ræða, má gera
honum að greiða sekt, er nemi allt að kr.
100.000 og rennur sektarféð til Ekkna-
sjóðs. Sektir skulu greiddar innan 3ja mán-
aða frá þeim tíma, sem þær eru úrskurð-
aðar, sama máli gegnir, ef félagsmaður að-
hefst eitthvað það, er stjórninni þykir stétt-
inni ósamboðið, þótt ekki sé skýlaust brot
á lögum félagsins eða Codex Ethicus. Siík-
um úrskurðum stjórnarinnar má skjóta til
Gerðardóms skv. Codex Ethicus, enda sé
það gert innan 4ra vikna. Víkja má félags-
manni úr félaginu við alvarlega vanrækslu
skyldustarfa eða velsæmisbrot eða fyrir
margítrekuð brot, þótt hvert um sig varði
aðeins sektum. Úrskurð stjórnarinnar um
brottvísun skal taka fyrir á fulltrúafundi
eða á næsta fundi L.í. til staðfestingar eða
synjunar.“
Það er sem sé skv. þessari grein skylda
stjórnar að fjalla um lagabrot og á stjórnin
þannig að vera eins konar fyrsta dómsstig,
en Gerðardómur hæstiréttur. Sú refsing,