Læknablaðið - 01.10.1977, Blaðsíða 40
206
LÆKNABLAÐIÐ
vikum stafi tíðabreytingarnar ekki af að-
gerðinni.
TAFLA 11.
Tíðablœðingar eftir aðgerðina:
Tíðablæðingar Fjöldi %
Reglulegar 152 75
Óreglulegar eins og fyrir aðg. 27 13
Óreglulegar eftir aðgerðina 23 12
Samtals 202 100
Um andlegt ástand vísast til töflu 12,
en þar kemur í ljós að 4 konur töldu sitt
andlega ástand hafa versnað eftir aðgerð-
ina. Þar af hafði samlíf versnað hjá 2 og
voru þær ekki ánægðar með að hafa geng-
ist undir aðgerðina. Hinar 2 höfðu óbreytt
samlíf, þar sem önnur var ánægð með
aðgerðina, en hin óákveðin. Líklegt er
þess vegna að breyting á andlegu ástandi
þessara tveggja stafi af öðrum orsökum.
TAFLA 12.
Andlegt ástand:
Andlegt ástand Fjöldi %
Versnað 4 2
Lagast 51 25
Óbreytt 147 73
Samtals 202 100
Um samlíf vísast í töflu 13. Fimm kon-
ur töldu að samlífið hefði versnað, en þó
voru þrjár þeirra ánægðar með aðgerð-
ina og andlega ástandið hafði ekki versn-
að. Sú fimmta var óákveðin með aðgerð-
ina og andlega ástandið var óbreytt. Við
sjáum einnig á töflu 13 að hjá 31% kvenn-
anna hafði samlíf batnað, sem líklega á
orsök sína í horfinni þungunarhræðslu.
TAFLA 13.
Samlíf:
Samlíf Fjöldi %
Eins og áður 134 66
Versnað 5 3
Lagast 63 31
Samtals 202 100
Um álit kvennanna á aðgerðinni þá vís-
ast til töflu nr. 14. Þar kemur fram að
tvær konur voru óánægðar með aðgerð-
ina, þar sem önnur hafði fengið óreglu-
legar tíðablæðingar, en andlegt ástand og
samlíf var óbreytt og hin hafði óreglu-
legar blæðingar og andlegt ástand og sam-
líf hafði versnað. Óákveðnar voru sjö
konur, en hjá einni þeirra hafði þó sam-
líf lagast og blæðingar og andlegt ástand
var óbreytt.
TAFLA 14.
Ánœgð með aðgerðina:
Ánægð með aðgerðina Fjöldi %
Já 193 96
Nei 2 1
Óákveðin 7 3
Samtals 202 100
SAMANTEKT
Gerðar voru á árunum ’73-’76 216 ófrjó-
semisaðgerðir í gegnum kviðarholssjá a
Sjúkrahúsi Akraness. Efniviðurinn var
ekki valinn, þ. e. a. s. aðgerðin var gerð
á öllum sjúklingum, sem óskuðu þess og
áttu lagalegan rétt til aðgerðarinnar. Eng-
ir meiri háttar fylgikvillar voru í aðgerð
eða svæfingu og aðgerðina var hægt að
framkvæma í öllum tilvikum (nema þrí-
vegis voru bilanir í brennslutæki). Að-
gerðin var auðveld í meira en 90% til-
fella. Þrjár konur urðu þungaðar þrátt
fyrir aðgerðina, þar af ein vegna ónógra
forrannsókna (var þunguð þegar aðgerð
var framkvæmd), og önnur vegna tækni-
legra byrjunarörðugleika. Flestar kon-
urnar voru útskrifaðar daginn eftir að-
gerð. Reynsla okkar sýnir að mikinn meiri
hluta þessara aðgerða má gera án inn-
lagnar á sjúkrahús, ef góð aðstaða er á
sjúkrahúsi og heimili.
Jafnframt var öllum konunum sendur
spurningalisti og voru heimtur 77%. Blæð-
ingar urðu óreglulegar hjá 12%, en benda
má á að 80% kvennanna voru eldri en 36
ára. Andlegt ástand lagaðist hjá 25% og
samlíf hjá 31%, en hjá mjög fáum versn-
aði ástandið sem var í mörgum tilvikum
af öðrum ástæðum. Langflestar konurnar
voru ánægðar með aðgerðina.