Læknablaðið - 01.10.1977, Blaðsíða 38
204
LÆKNABLAÐIÐ
aðarvarnarpillunni og lykkjunni. Einnig
lyflæknisfræðilegar ástæður, t. d. of hár
blóðþrýstingur, hjarta- og æðasjúkdómar.
Gerir þetta hvort tveggja samanlagt 65%
af tilfellunum. í 13% tilfella var um fé-
lagslegar ástæður fyrst og fremst að ræða.
Ýmsar aðrar ástæður fyrir aðgerðinni
voru í 21% tilfella og var þar einkum
um að ræða konur, sem vildu ekki eignast
fleiri börn, en þó án annarra ástæðna.
Sjá töflu 4.
TAFLA 4.
ÁstœSur jyrir löglegri ófrjósemisaðgerð:
Ástæður Fjöldi %
Læknisfræðilegar eingöngu 44 17
Þoldu ekki pillu né lykkju 86 33
Læknisfræðilegar -)- þoldu
ekki pillu né lykkju 38 15
Félagslegar -)- aðrar ástæður 35 13
Erfðafræðilegar 4 1
Ýmislegt annað 54 21
Samtals 261 100
í öllum tilvikum var aðgerðin gerð í
gegnum kviðarholssjá. Sjúklingarnir voru
ekki valdir. Aðgerðin var gerð á sjúkl-
ingum án tillits til holdarfars og án tillits
til þess þótt mörg ör eftir skurðaðgerðir
væru á kviðarholi. Farið var inn með
kviðarholssjána strax fyrir neðan nafla í
miðlínu nema ef um neðri miðlínuskurð
var að ræða, þá var farið inn með kviðar-
holssjána strax fyrir ofan nafla til að
forðast samvexti. í öllum tilvikum var
hægt að framkvæma aðgerðina, en í
nokkrum tilvikum varð að klippa holrúm
í gegnum samvaxtarþykkni til þess að
komast að eggjaleiðurunum. Oftast voru
eggjaleiðararnir einungis brenndir næst
uterus (á isthmus svæðinu), en í 4% til-
fella (árið 1973) voru þeir einnig klipptir
í sundur. í nýrri greinum er mælt með
TAFLA 5.
Aðferð ófrjósemisaðgerða:
Aðferð Fjöldi %
Brennt 250 96
Brennt -|- klippt 11 4
Samtals 261 100
brennslu eingöngu vegna færri fylgikvilla,
t. d. blæðinga, auk þess sem aðgerðin er
talin eins örugg. Sjá töflu 5.
í langflestum tilvikum var eggjaleiðar-
inn brenndur sem næst uterus, en ef
brennt var annars staðar var það vegna
erfiðleika að komast að þessu svæði. Sjá
töflu 6.
TAFLA 6.
Hvar brennt:
Hvar brennt Fjöldi %
Isthmus svæði 254 97
Annars staðar 7 3
Samtals 261 100
Aðgerðin var auðveld í 92% tilfella, en
í nokkrum tilfellum erfið vegna samvaxta,
afturbrots á legi (retroflectio uteri) og
skorðaðs legs í þeirri stöðu. Sjá töflu 7.
TAFLA 7.
Gangur aðgerðarinnar:
Gangur Fjöldi %
Léttur 240 92
Erfiður vegna samvaxta Erfiður vegna afturbrots 8 3
og skorðaðs legs 13 5
Samtals 261 100
Fylgikvillar komu í 3% tilfella, en þá
voru teknar með 3 konur, sem endurtaka
varð aðgerðina á vegna galla í brennslu-
tæki. Við fjórðu aðgerðina fengum við
blæðingu í sambandi við brennslu og
klippingu, en blæðingin var stöðvuð með
brennslu (Diatermi). Þar að auki fór
coldioxidið utan við kviðarholshimnuna í
nokkrum tilvikum við inndælinguna, en
slíkt uppgötvaðist fljótt og kom ekki nð
sök og við næstu tilraun á eftir fór það
innan við kviðarholshimnuna. Þrjár kon-
ur urðu þungaðar þrátt fyrir aðgerðina.
Ein þeirra var þegar orðin þunguð þegar
aðgerðin var gerð og var lögð inn skömmn
síðar fyrir fóstureyðingu. Á konu nr. 2
var aðgerðin gerð eftir fæðingu. í slíkum
tilfellum er legið stórt og oft erfitt að
komast að eggjaleiðurunum, en við teljum