Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.1978, Page 50

Læknablaðið - 01.04.1978, Page 50
72 LÆKNABLAÐIÐ þar sem hinsvegar þjóðir Suður-Evrópu, t.d. Júgóslavíu og Grikklands hafa mun lsegri meðalgildi kólesteróls og kransæða- sjúkdómar eru þar mim fátíðari. Krufn- ingarannsóknir hafa á svipaðan ’hátt sýnt fram á fylgni milli tíðni og útbreiðslu æða- kölkunar í mismunandi löndum og meðal- gildis kólesteróls þessara þjóða.04 Að um líklegt orsakasamband sé að ræða milli kólesteróls í blóði og æðakölkunar en ekki einvörðungu fylgni styðst m.a. af eftirfarandi: 1. Vefjabreytingarnar í æðaveggnum einkennast að verulegu leyti af kól- esteról útfellingum og margs konar rannsóknir hafa sýnt fram á, að stór hluti þessa kólesteróls 'hefur síazt inn í æðavegginn frá blóðinu07 27 114 eins og áður er minnzt á. 2. Unnt er að framkalla æðakölkun svip- aðri þeirri, sem finnst í manninum, í mörgum dýrategundum, m.a. í öpum, með því að gefa dýrunum fæði, sem 'hækkar kólesterólgildið í blóði þeirra. Þessar æðabreytingar hverfa að verulegu leyti aftur, þegar dýrin hafa verið um tíma á fæðu. sem lækk- ar kólesterólgildi þeirra að nýju.2 3 lon 3. Allmargar ferilrannsóknir hafa verið gerðar á hópum fólks, þar sem einum hópnum hefur verið gefin kólesteról- lækkandi meðferð, aðallega með mat- arráðgjöf, og tíðni kransæðasjúkdóma í þessum hópi á næstu árum borin saman við tíðnina í öðrum hópi fólks, sem engrar meðferðar hefur notið. Mjög erfitt hefur reynzt að framkvæma slíkan samanburð m.a. vegna þess hve stór- an hóp þarf til slíkra rannsókna, og ihefur mátt gagnrýna flestar þessar rannsóknir á einrii eða annan hátt. Þó má segja, að flestar þessar rannsóknir bendi til að kólesteról- lækkandi meðferð hafi dregið úr tíðni kransæðasjúkdóma, þó ekki væri alltaf um tölfræðilega marktækan mun að ræða. «s 18 »o Þessar rannsóknir eru af flestum taldar styðja, án þess þó að sanna, þá kenningu, að um. orsakasamband sé að ræða milli hás kólesteróls í blóði og æða- kölkunar. Reiknað hefur verið út að til þess að fullnaðarsvar við spurningunni hvort breytt mataræði geti dregið úr tíðni krans- æðasjúkdóma þurfi um 40 þúsund manns að taka þátt í slíkri rannsókn, sem því verður væntanlega ekki gerð í fyrirsjáan- legri framtíð. Hinsvegar er nú verið að framkvæma rannsókn í Bandaríkjunum, þar sem hópi fólks með verulega hækkað kólesterólgildi er gefið kólesteróllækkandi lyf (cholestyramine) og matarráðgjöf og kannað hvort þessi meðferð dragi úr á- hættunni á kransæðasjúkdómi borið sam- an við hóp fólks, sem fengið hefur matar- ráðgjöf eingöngu. Fram til þessa hafa flest- ar slíkar rannsóknir verið gerðar á hópi fól'ks með bæði lág og há kólesterólgildi. sem valdið hefur því, að hóparnir hafa þurft að vera margfalt stærri til að mark- tækur munur fengist. Kólesteról ásamt öðrum fituefnum í blóði finnst sem hluti af svokölluðum lipo- próteinum. f mönnum er mestur hluti kól- esteróls í svokölluðu low density lipo- protein (LDL eða beta lipoprotein), en nokkur hluti þess í öðrum litoproteinum (very low density lipobrotein, VLDL og high density lipoprotein, HDL).-'0 Þar sem sterk jákvæð fylgni hefur fundizt milli LDL-kólesterólmagns í blóði og tíðni kransæðasjúkdóma, þá virðist þessu öfugt farið með HDL-kólesteról. Ferilrannsókn- ir frá síðustu árum benda til þess, að aukið HDL-kólesteról í blóði minnki líkurnar á að viðkomandi einstakling- ar fái einkenni æðakölkunar.49 66 Hlut- verk LDL í líkamanum virðist vera að bera kólesteról til vefja líkamans, sem þurfa á því að halda fyrir eðlilega umsetn- ingu.° Hlutverk HDL er hinsvegar að veru- legu leyti óþekkt ennþá. Því hefur verið haldið fram, að eitt hlutverk HDL sé að bera kólesteról aftur frá vefjunum til lifr- arinnar til útskilnaðar.30 Sú tilgáta myndi vissulega falla vel við hina meikvæðu fylgni milli æðakölkunar og HDL-kólester- óls. Hinsvegar ber tilraunum ekki saman um, að þetta sé hlutverk HDL,02 en búast má við að þetta atriði skýrist á næstu ár- um. Kólesterólmagn í blóði hvers einstak- lings ákveðst bæði af erfðum (40%)80 74 og umhverfisþáttum, svo sem mataræði, líkamsþyngd o.fl. Erfðirnar ráða einnig að nokkru leyti svörun einstaklingsins gagn-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.