Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.1978, Side 62

Læknablaðið - 01.04.1978, Side 62
78 LÆKNABLAÐIÐ til þess, að reykingar væru sjálfstæður á- hættuþáttur meðal kvenna, en eins og minnzt var á áður magnast áhrif áhættu- þáttar, þegar aðrir áhættuþættir eru til staðar.80 Getnaðarvarnatöflur, (einkum þær sem innihalda mikið magn af oestrogenum og voru á markaðnum fyrir nokkrurii árum), stuðla að hækkuðum blóðþrýstingi, skertu sykurþoli og hækkaðri blóðfitu í sumum konum og í einstaka tilfellum getur verið um verulega hækkun að ræða.10:i 102 Þar sem ætla má, að hækkaður blóðþrýstingur hafi ráðið verulega um hina auknu dánar- tíðni í áðurnefndum ferilrannsóknum í Bretlandi, verður það að teljast sjálfsögð og nauðsynleg regla að fylgzt sé með a.m.k. blóðþrýstingi kvenna, sem taka pilluna og jafnframt varað við aukinni áhættu af völdum reykinga. Brezku læknasamtökin hafa einnig talið rétt að beina athygli kvenna, eldri en 35 ára, að öðrum getnað- arvörnum en pillunni.77 Aðrir áhættuþættir Margir aðrir þættir hafa verið taldir auka líkurnar á því, að einstaklingar, sem þá hafaý.. fái einkenni æðakölkunar. Það er þó sameiginlegt þessum þáttum, öðrum en þeim, sem hér að framan greinir, að þeir hafa annaðhvort verið kannaðir í of fáum ferilrannsóknum, til þess að kallast með vissu áhættuþættir eða að niðurstöð- um þessara rannsókna ber ekki saman um mikilvægi þeirra. Einn slíkur þáttur er hegðunarmáti eða skapeinkenni fólks („behaviour pattern“). Ferilrannsókn, sem gerð var í Kaliforníu leiddi í ljós, að einstaklingum með Typu A hegðun (sem einkennist af framagirni, óþolinmæði o.fl.) var u.þ.b. tvöfalt hættara við að fá einkenni kransæðasjúkdóms, heldur en einstaklingum með Typu B hegðun (afslappaðir og lífsglaðir einstak- lingar). Þessi rannsókn sýndi, að þessi áhættuþáttur var óháður öðrum áhættu- þáttum.84 47 í sumum öðrum ferilrannsóknum hefur verið reynt að skipta fólki í hópa eftir skapeinkennum, (sem oft hefur reynzt erf- itt í framkvæmd) og niðurstöðurnar hafa ekki verið eins glöggar og í áðurnefndri rannsókn frá Kaliforniu.08 Hinsvegar má COMBINATION OFRISK FACTORS AT ENTRYAND AGE-ADJUSTED RATES OF FIRST MAJOR CORONARY EVENT FOR WFTTEMALES AGE 30-59AT ENTRY NATIONAL COOPERATIVE POOUN PROJECT lol Rate Per 1.000 *RATES FOR I0YEARS OF F01L0W UP ADJUSTED BY AGE TO THE U.S. WHITE MALE POPULATION, 1960. segja, að lítil von sé til þess að unnt verði að breyta skapferli fólks, í því augnamiði að minnka líkurnar á hjarta- og æðasjúk- dómum, enda þótt ráðleggja megi fólki að forðast streitu í daglegu lífi. Ekki má heldur gleyma því, að tals- verður hópur sjúklinga (a.m.k. fjórðung- ur), sem fær einkenni æðakölkunar, hefur ekki áðurnefnda áhættuþætti í þeim mæli að geti skýrt þeirra æðakölkun. Því má vel vera að aðrir nú óþekktir áhættuþætt- ir, komi í ljós síðar. Einnig er vert að hafa í huga, að áhættan af völdum áðurnefndra áhættuþátta virðist talsvert meiri meðal Bandaríkjamanna heldur en Evrópubúa,00 hvort sem það er af því að aðrir nú ó- þekktir þættir eru þar að verki eða ekki. SAMVERKUN ÁHÆTTUÞÁTTANNA Einstaklingar, sem reykja 20 vindlinga á dag hafa u.þ.b. tvöfalt meiri líkur á að fá kransæðasjúkdóm en þeir, sem ekki
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.