Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.03.1979, Page 13

Læknablaðið - 01.03.1979, Page 13
LÆKNABLAÐIÐ 3 NABLAÐIÐ THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL Læknafélag Islands* og LR Læknafclag Reykjavikur " 65. ARG. — MARZ 1979 ALDRAÐIR SJÚKIR OG STOFNANIR Á ráðstefnu læknaráðs sjúkrahúsanna þriggja í Reykjavík um heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða á íslandi, sem haldin var s.l. vor, vakti fátt meiri athygli en þær mót- sagnakenndu staðhæfingar, að mikill skortur ríkti nú á sjúkrarýmum fyrir aldraða, en jafn- framt stæðu íslendingar mjög vel að vígi • samanburði við nágrannaþjóðirnar. í könnun sem Jón Gunnlaugsson læknir gerði á meðal heimilislækna í Reykjavík, kom fram að um 450—470 aldraðir sjúkir vistuðust í heima- húsum á Reykjavíkursvæðinu. Margir þeirra njóta aðstoðar borgaryfirvalda í heimahúsum, en reikna mætti með því að um 40% þeirra þyrftu hjálpar við á stofnunum. Þótt heimilis- læknar teldu að aðgangur að bráðaþjónustu- deildum sjúkrahúsanna væri góður, þyrfti að opna bráðaþjónustu fyrir aldraða sjúka við langlegudeildir og auka nú þegar rými á langdvalarstofnunum um a.m.k. 70 sjúkrarúm til að bæta úr brýnustu þörfinni. í hringborðsumræðum ráðstefnunnar bar landlæknir, Ólafur Ólafsson, saman tölur um rúmafjölda á elliheimilum (með hjúkrunar- rýmum) á norðurlöndum. Reyndist rúma- fjöldinn á íslandi um 4 sinnum meiri en í Noregi, helmingi meiri en í Svíþjóð og 20— 25% meiri en í Finnlandi og Danmörku. Hvað veldur þessum mikla mismun? Eru íslendingar verr á sig komnir heilsufarslega eða félagslega en nágrannaþjóðirnar? Eru ís- lendingar svona stofnanasinnaðir eða kunna þeir illa að stjórna og skipuleggja? Eflaust liggja til þessa margar ástæður. Landlæknir gat um, að það væri fjárhagslegur ábati í því fólginn að koma öldruðum á elliheimili, en þessu væri hinsvegar öfugt farið t.d. í Nor- egi. íslendingar hafa einnig sérstöðu hvað varðar innlagnir á sínar stofnanir. Vistunar- mat er að mestu í höndum einkaaðila, tvær stærstu stofnanirnar, Sjómannadagsráð og Grund, ráða yfir 65% vistrýma fyrir aldraða í landinu og þar með talin 72% af hjúkrunar- rýmum (tölur frá 1. jan. 1978). Hjúkrunar- rými eru greidd með daggjöldum frá hinu opinbera og vistþeginn fær stærstan hluta ellilífeyris síns greiddan í eigin vasa, þegar hann flokkast sem hjúkrunarsjúklingur. Það er því bæði ábati fyrir vistþega og viðkom- andi stofnun að hafa sem flest hjúkrunar- rými. Hins vegar hafa daggjöldin um langt skeið verið það lág, að stofnanirnar hafa ekki getað veitt fullkomna endurhæfingar- og læknisþjónustu. Sjúkraþjónusta við þann aldraða á stofnuninni hefur því verið minni en gerist á öðrum sjúkrastofnunum landsins. í mörgum tilvikum hlýtur hinn aldraði ófull- komnari þjónustu en aðrir þegnar landsins. Reykjavíkurborg hefur á undanförnum ár- um veitt 7,5% af útsvarstekjum sínum til byggingamála aldraðra. Aukning á starfsemi féiagsmálaþjónustu Reykjavíkurborgar hefur cinnig orðið mikil lyftistöng fyrir aðstöðu aldraðra í borginni, en aldraðir sjúkir hafa að öðru leyti setið hjá. í lögum um heil- brigðisþjónustu landsins er ríkinu gert skylt að reiða fram 85% af stofnkostnaði við sjúkrahúsþjónustu, en bæjar- og sveitarfélög- um aðeins um 15%. Bæjarfélagið hefur því ekki bolmagn til að ráðast í sjúkrahúsbygg- ingar án aðstoðar ríkisins, og framkvæmdir á því sviði dregist afturúr. Úthlutanir vist- rýma á stofnunum borgarinnar fyrir aldraða hafa auk þess verið handahófslegar og ekki stuðst við heilbrigðisþarfir einstaklinganna sjálfra. Langtímamarkmið virðast einnig mið- ast við að félap.sleg, persónuleg og pólitísk sjónarmið verði sett áfram á oddinn við út- hlutun þessara vistrýma. Augljóst er því, að þær orsakir, sem hindra eðlilega framþróun heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða á íslandi eru fjölþættar. Meðal nágrannaþjóða okkar má telja að skipulag heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða sé markvissara og víðtækara en gerist á íslandi. Það markmið hefur orðið ofan á að styðja við hinn aldraða, sem lengst í heimahúsum með fyrirbyggjandi aðgerðum og víðtækri
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.