Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.03.1979, Page 51

Læknablaðið - 01.03.1979, Page 51
LÆKNABLAÐIÐ 31 Sverrir Bergmann, Bjarni Hannesson MÆNUTAGLSHELTI Það var árið 1858 að Charcot lýsti fyrst- ur manna nægjanlega sjúkdómsmyndinni „intermittent claudication". Þessi fyrsta lýsing átti við það ástand, þegar sárir krampakenndir samdrættir koma í vöðva vegna ónógs súrefnis af völdum blóð- streymishindrana. Með því að hugtakið „intermittent claudication“ þýðir hinsveg- ar aðeins tímabundið helti, hefur það einn- ig verið notað, þar sem sjúkdómsmyndina má rekja til starfrænna truflana í tauga- kerfi. Þar er orsaka fyrir þessari sjúk- dómsmynd að leita í mænu eða mænutagli og er því talað um „intermittent claudi- cation of the spinal cord“ annars vegar og „intermittent claudication of the cauda equina“ hinsvegar. Hið fyrmefnda er sjald- gæft,1 2 15 en hinu síðarnefnda hefur verið lýst af fjölmörgum höfundum.3 5 o i s o 13 ís Ein orsök „intermittent claudication“ frá taugaveg eru þrengsli í mænugangi (stenosis canalis spinalis) og þau oftast í lendahluta hans (stenosis canalis lumbal- is).1 2 6 6 13 p>essi þrengsli geta verið með- fædd, en eru miklu oftar áunnin vegna þykknunar í beinum, liðflötum og band- vef.3 8 15 Öll kölkun (spondylosis) í hrygg- súlu sem og brjósklos milli hryggjarliða auka verulega á þessi þrengsli. í öllum til- vikum eru kvartanir sjúklinga svo miklar, að þær eru í engu samræmi við þau fáu einkenni, sem finnast við skoðun í hvíld. Svo augljóst sem það má vera, að bæði brjósklos eða kölkunarbreytingar valdi mun meiri einkennum í þröngum mænu- gangi en eðlilegum, þá staðfesta athuganir okkar það, sem aðrir höfundar hafa sýnt fram á, að hinn þröngi mænugangur einn sér veldur einkennum, sem hafa á sér sér- stakan blæ og eru réttilega nefnd „inter- mittent claudication“. „Intermittent claudication“ af taugatoga Frá taugasjúkdómadeild Landspítalans og taugaskurðlækningadeild Borgarspítalans. stafar af því, að hinn þröngi mænugangur getur annað hvort valdið beinum þrýstingi á taugavefinn eða hindrað eðlilegt blóð- streymi og þar með næringu hans.3 4 a 1B Eftir því hvorri orsökinni er til að dreifa er sjúklingum skipt í tvo hópa. Annars vegar er sá — og hann stærri — þar sem einkenni koma fram við réttingu (extensio) hryggjarins. Þetta mætti nefna stöðu-hóp- inn (postural — hér eftir nefnt P-hópur). Hinsvegar er svo minni hópurinn, þar sem einkennin koma einvörðungu fram við gang. Hjá þessum hópi virðist eingöngu um blóðrásartruflun og þar með næringar- skort til taugavefs að ræða, mundi því kallast næringarskortshópur (iscemisk — hér eftir nefnt I-hópur). Sameiginlegt ein- kenni hjá báðum hópum er „intermittent claudication"; það er að einkenni fara vax- andi við gang, en lagast við hvíld, alveg í I-hópnum og verulega hjá P-hópnum, en í honum síðan algjörlega við breytingu á stöðu hryggjarins. Þessi sjúkdómsmynd, þ.e. „intermittent claudication“ af taugatoga er verulega frá- brugðin þeim, er fram koma vegna þrýst- ings t.d. frá æxlum eða brjóski á mænu eða mænutagl. Hún er einnig frábrugðin alþekktum rótarþrýstingseinkennum vegna t.d. brjósklos eða æxlis í eðlilega víðum mænugangi. Þessi sjúkdómsmynd verð- skuldar því sérstaka umræðu og áríðandi er að hafa hana í huga, þegar „intermittent claudication" verður ekki skýrð sem af- leiðing af blóðstreymistruflun. Athuganir okkar leiddu í ljós, að fram til ársins 1971 hefur emginn sjúklingur fengið á sig þessa sjúkdómsgreiningu hér. Frá ár- inu 1971 höfðum við hinsvegar fundið sjö sjúklinga, sem uppfylla nægjanlega mörg skilyrði til þess að falla undir hana. Sex þeirra, þ.e. fimm karlar og ein kona höfðu mænutaglshelti, þar af voru þrír í P-hópi og þrír í I-hópi. Einn sjúklinganna hafði
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.