Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Side 56
föstudagur 23. febrúar 200756 Helgarblað DV
Hljómsveitin Beastie Boys
hefur tilkynnt komu sína á
tónlistar-
hátíðina
Sasquatch! í
Washington
í Banda-
ríkjunum í
maí. Bea-
stie Boys
hefur ekki
verið svo iðin við að spila síðustu
misseri en hljómsveitin hefur
ákveðið að henda í eina tónleika
í tilefni hátíðarinnar. Fleiri flott
nöfn hafa þegar skráð sig, til
dæmis Björk, Arcade Fire, Inter-
pol, Spoon, M.I.A, Dandy War-
hols og fleiri. Hátíðin fer fram á
þremur útisviðum, stendur yfir
í þrjá daga og kostar 55 dollara
inn á hvern dag á hátíðinni.
Beastie Boys
á sasquatch!
Söngvarinn Chris Cornell
er hættur í hljómsveitinni Au-
dioslave, eins og greint var frá í
vikunni. Chris
sem áður var í
hljómsveitinni
Soundgarden
stofnaði Au-
dioslave árið
2001 ásamt
Tom Morello,
Brad Wilk og
Tim Comm-
erford. Segir
Cornell að
þrátt fyrir að hljómsveitin hafi
gefið út þrjár plötur saman hafi
þeim ekki samið. “Það er erfitt
að láta sér lynda við hljómsveit-
armeðlimi, þannig er það bara
og því miður samdi okkur ekki,”
segir söngvarinn í viðtali við
tímaritið Rolling Stones.
hætti vegna
ágreinings
Nýjasta myndband popp-
arans Justins Timberlake slær
þessa dagana
öll niðurhals-
met á netinu.
Myndbandið,
sem er við
lagið What
Goes Around
Comes Ar-
ound af nýj-
ustu plötu
kappans,
skartar þokkadísinni Scarlett
Johansson. 50.000 eintökum af
myndbandinu hefur verið halað
niður á innan við fjórum dögum
á iTunes. Lengri útgáfa mynd-
bandsins hefur verið vinsælust
en hún er um átta mínútur á
lengd. Smáskífa lagsins verður
svo gefin út þann 3.mars.
MyndBand J.t.
slær Met
Það verður dragdrottningin DQ
sem verður fulltrúi Dana í Evró-
visjón í Finnlandi 2007. DQ sem
heitir í raun Peter Andersen sigraði
dönsku forkeppnina fyrir skemmstu
eftir að hafa komist með síðasta lag
inn í úrslit. Lagið Drama Queen sem
að DQ flytur var valið sem aukalag
eða svokallað “wild card” inn í úr-
slitin af dönskum útvarpshlustend-
um . Líkt og hér heima er lagt mikið
upp úr forkeppninni fyrir Evróvi-
sjón. Dæmi um það er að breska
poppsveitin Take That kom fram á
úrslitakvöldinu.
Það kom mörgum á óvart að DQ
skildi sigra með lagi sínu Drama
Queen þar sem veðbankar í Dan-
mörku sem og þarlendir evróvi-
sjónspekingar töldu nokkuð víst
að rokklag myndi sigra keppnina.
Enda voru fjórir keppendur af tíu
með heila rokkhljómsveit með sér á
sviðinu á úrslitakvöldinu.
DQ er einna helst þekktur í
Danmörku fyrir sýninguna Turn On
Tina þar sem hann bregður sér í líki
ömmu rokksins. Það verður því nóg
um skæra liti og húllum hæ þeg-
ar DQ verður 52. þáttakandinn á
vegum Danmerkur til að taka þátt
í Evróvisjón tíunda maí næstkom-
andi.
asgeir@dv.is
Dragdrottningin Peter Andersen sigraði í dönsku Eurovisionforkeppninni:
DQ fyrir hönd Dana í Evróvisjón
Syngur lagið Drama Queen í Helsinki.
Draq Queen eða DQ
Heitir í raun Peter Anderson.
Síðasta lag í úrslit
Var valið í úrslit af útvarpshlustendum.
dönsk dragdrottning í evróvisJón
„Jú platan er loksins að koma,
þetta stefndi á að vera okkar eig-
in Chinese Democrazy,“ segir Hugi
Garðarsson, söngvari hljómsveitar-
innar Wulfgang og vísar í plötu Guns
‘N’ Roses sem hefur verið mörg ár á
leiðinni. Wulfgang senda frá sér sína
fyrstu plötu þann 4. apríl, eða 4. 4.
Platan hefur verið lengi á leiðinni
en það var síðasta sumar sem lögin
Machinery og Life and Habits náðu
miklum vinsældum á X-inu 977 og
biðu þá margir spenntir aðdáendur
eftir plötu í kjölfarið. „En allt er gott
sem endar vel,“ segir Hugi og bæt-
ir við, „Það góða við að vera svona
lengi með plötu er að við erum líka
hálfnaðir með næstu plötu og ætlum
að reyna að hefja upptökur í lok sum-
ars.“ En fáar hljómsveitir geta státað
af svipuðum dugnaði.
Leynd yfir nafni plötunnar
„Við viljum ekki segja fólki hvað
platan heitir og það fær ekkert að
koma í ljós fyrr en daginn sem hún
kemur út“, segir Hugi. Á plötunni eru
12 lög en snið hennar verður öðru-
vísi en gengur og gerist. „Lögunum
er skipt upp í fjóra kafla, svo þetta
er smá konsept verk.“ Lögin eru öll
sungin á ensku og textarnir samdir
af Huga sjálfum. Upptökur fóru nær
allar fram í Sýrlands-upptökuverinu
fyrir utan nokkur smáatriði sem tekin
Hljómsveitin Wulfgang átti tvö vinsæl lög á X-inu síðasta sumar. Plata frá þeim pilt-
um hefur verið í vændum lengi og nú loks er búið að ákveða útgáfudag, 4. 4. 2007. DV
sló á þráðinn til Huga Garðarssonar söngvara hljómsveitarinnar sem sagði nafn
plötunnar vera leyndarmál og að næsta plata væri langt á leið komin.
dularfull plata
væntanleg í apríl
voru upp í heimastúdíói Wulfgang.
Þá hafa þau lög sem voru í spilun í
fyrra sumar verið tekin upp aftur og
eru nú miklu „massífari“ að sögn
söngvarans.
Algjörlega eðlilegir „make“
draumar
Hugi segir að hljómsveitarmeð-
limir séu allri frekar jarðbundn-
ir og að heimsfrægðin sé þeim
ekki ofarlega í kolli. „Eins og ann-
að ungt fólk á Íslandi ætlum við að
sigra heiminn, en við ætlum ekk-
ert að halda í víking strax.“ Á dög-
unum kom svo út nýtt lag með
hljómsveitinni að nafni Rise Of the
Underground. “Það er í spilun á X-
inu, ég veit reyndar ekki hve mik-
illi spilun, en það er þarna,” segir
Hugi. Það er Cod Music sem gefur
út Wulfgang, en fyrir hafa þeir gef-
ið út bönd á borð við Jet Black Joe,
Lay Low, Togga og Dr. Mister & Mr-
.Handsome. Þeir sem vilja kynna
sér Wulfgang betur er bent á vef-
síðuna myspace.com/wulfgangt-
heband.
dori@dv.is
Ný smáskífa
Rise of the underground