Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Side 13
DV Fréttir föstudagur 30. mars 2007 13
Reykingabanni fRestað
Sunnudagurinn fyrsti apríl átti að
vera dagurinn sem Danir myndu
láta af reykingum á opinber-
um stöðum. Vandræðagangur í
dönsku stjórnsýslunni og óánægja
meðal veitingahúsaeigenda varð
hins vegar til þess að gildistöku
laga um reykbann var frestað fram
til 15. ágúst.
Viðhorf Dana til reykinga hef-
ur hingað til verið frjálslegt og höft
á reykingamönnum ákaflega lítil.
Það þarf því ekki að koma á óvart
að andstaðan við allsherjarbann
við reykingum á opinberum stöð-
um í landinu hafi verið mikil. Jafn-
vel þó að danskir reykingamenn
hafi innst inni vitað að einn dag-
inn myndu þeir, líkt og nágranna-
þjóðirnar þurfa að drepa í. Svíar
og Norðmenn hafa til dæmis búið
við reykingabann í tvö ár. Umræð-
an um bann við reykingum hófst
fyrir alvöru fyrir ári síðan og var
frumvarpið samþykkt á þinginu
síðastliðið haust þrátt fyrir að tveir
þingmenn hafi hótað því að láta
af þingmennsku fengju þeir ekki
að reykja áfram inn á skrifstofum
sínum. Illa hefur gengið að koma
saman reglum um hvernig bann-
inu skuli framfylgt og sætta alla
hagsmunaaðila. Þess vegna hefur
gildistöku bannsins verið frestað í
rúma fjóra mánuði.
Konunglegt tóbak
Kannski er ein ástæðan fyrir af-
slappaðri afstöðu Dana til reykinga
sú að drottningin sjálf er þekktasti
reykingamaður landsins. Ósjald-
an hefur hún sést með sígarettu í
munni og ekki hikað við að kveikja
sér í fyrir framan þegna sína. Í haust
kvað hins vegar kvað við nýjan tón
þegar tilkynnt var að hún myndi
hér eftir ekki reykja á almanna-
færi. Var mikið gert úr því í dönsk-
um blöðum enda ekki furða þar
sem versnandi heilsufar hennar er
á allra vitorði. Drottningin er samt
ekki sú eina sem tengir kóngahúsið
við tóbak því vinsælustu sígarettu-
tegundirnar í dönskum sjoppum
eru kenndar við prinsa og kónga.
Framleiðandinn er Skandínavíska
tóbaksfyrirtækið sem er danskt og
breiðir anga sína víða í samfélag-
inu. Er til dæmis aðaleigandi Tívolí í
Kaupmannahöfn og styrkir dagskrá
Konunglega leikhúsins þar í borg.
Bareigendur ósáttir
Í þeirri umræðu sem átt hefur
sér stað í fjölmiðlum um bannið
hafa raddir eigenda lítilla bara ver-
ið háværar. Þeir sjá banninu flest til
foráttu og hafa látið í veðri vaka að
þeir kunni að grípa til örþrifaráða
svo fastakúnnar þeirra geti haldið
uppteknum hætti og fengið sér síg-
arettu með ölinu. Sumir hafa talað
um að breyta börunum í meðlima-
klúbba og þannig komast í kring-
um reglurnar. Reyndar er útlit fyr-
ir að hluti þeirra muni fá sitt í gegn
því lögin gera ráð fyrir að þeir bar-
ir sem eru undir fjörtíu fermetrum
og selja ekki mat megi áfram leyfa
reykingar. Þetta hefur valdið pirr-
ingi meðal þeirra sem eiga stærri
bari og talað um grófa mismun-
un. Hafa sumir þeirra sagst ætla að
minnka bari sína vegna þessa eða
leggja út í kostnaðarsamar endur-
bætur á þeim. Félag veitingahús-
eigenda hefur ráðlagt félögum sín-
um að gera það ekki enda kunni
lögin að verða enn stífari innan
nokkurra ára og taka fyrir reyking-
ar í sérstökum reykherbergjum.
Aðrir segja reykingabannið ganga
að börunum dauðum og eigendur
þeirra standi uppi með verðlausar
eignir. Hafa nokkrir bareigendur á
Jótlandi tekið sig saman og ætla að
höfða skaðabótamál gegn ríkinu.
Undanþágur
Fyrirhugað reykingabann hef-
ur ekki aðeins valdið hugarangri
meðal veitingamanna. Forstöðu-
menn dagheimila fyrir heimilis-
lausa og fíkla hafa þannig fengið
sérstaka undanþágu, eftir að hafa
viðrað áhyggjur sínar, af því að
bannið kynni að verða til þess að
skjólstæðingar þeirra hyrfu á braut.
Réttarstaða atvinnulausra hefur
einnig komið upp í umræðunni um
nýju lögin. Veltu menn því fyrir sér
hvort hægt væri að neyða atvinnu-
lausan einstakling til að þiggja
vinnu á bar þar sem reykingar eru
leyfðar og þannig eiga á hættu að
verða fyrir heilsuskaða af óbeinum
reykingum. Atvinnumálaráðherra
landsins stóð fastur á sínu og sagði
að ekki kæmi til grein að gera und-
anþágu á lögum um atvinnulausa,
þeir yrðu einfaldlega að taka þeirri
vinnu sem þeim yrði boðin. Stuttu
síðar þurfti hann hins vegar að éta
allt ofan í sig og veita þeim þessa
undanþágu. Í bréfi til heilbrigðis-
málaráðherra landsins segir hann
að það hefði strítt gegn nýju lög-
unum ef atvinnulausir hefðu ekki
notið sömu réttinda og aðrir og
yrðu verndaðir fyrir óbeinum reyk-
ingum.
Bann strax
Því fer fjarri að allir veitinga-
menn pirri sig á væntanlegu banni.
Þannig hefur veitingamaðurinn
Kenn Husted sem á þrjá vinsæla
bari í Kaupmannahöfn ákveðið
að innleiða reykingabann á sín-
um stöðum frá og með sunnudeg-
inum. Í viðtali við dagblaðið Pol-
itiken segist hann hafa hlakkað til
reykingabannsins eins og litlum
krakka til jólanna. Hann hafi því
ákveðið að láta af reykingabann-
inu verða þó stjórnmálamennirn-
ir hafi dregið lappirnar í málinu.
Starfsfólk baranna var með í ráð-
um og segir Husted að meirihluti
þeirra hafi verið sammála honum,
líka þeir sem reykja enda vilji allir
vinna í reyklausu umhverfi. Hann
segir tímasetninguna heppilega
því með hækkandi sól færist gest-
irnir út á götu og því minni líkur á
að þeir verði súrir yfir því að mega
ekki reykja á meðan þeir drekka
bjór og kaffi. Hann bíður spennt-
ur eftir því að sjá hvaða viðtök-
ur bannið fær meðal fastakúnna
sinna.
Tóbaksframleiðendur sýna
reykherbergi
Dönskum veitingamönnum
hefur staðið til boða ferðir til Osló-
ar og Stokkhólms til að kynna sér
hvernig norskir og sænskir veit-
ingahúsaeigendur hafa aðlagað
sig að breyttu umhverfi. Ferðirnar
eru í boði tóbaksframleiðanda og
hafa tugir þegið boðið. Haft er eft-
ir almannatengslafulltrúa tóbaks-
fyrirtækisins Philip Morris í Pol-
itiken fyrr í mánuðinum að þau
vilji gjarnan aðstoða danska veit-
ingamenn við að kynna sér hvern-
ig aðrar þjóðir hafa leyst vanda-
málin sem tóbaksbann hefur í för
með sér. Hún segir það enga laun-
ung að fyrirtækið vilji að fólk hafi
áfram möguleika á því að reykja. Í
sama streng tekur fulltrúi Skandín-
avíska tóbaksfyrirtækisins og bætir
við að margir veitingamenn óttist
að missa viðskipti vegna banns-
ins og vilji því grípa til aðgerða svo
gestir sínir geti reykt. Tveir bareig-
endur sem þáðu boð fyrirtækjanna
sjá ekkert athugavert við að hafa
þegið það og segja alla meðvitaða
um tilganginn með boðinu. Þeir
eru báðir ósáttir við að nýju regl-
urnar mismuni stöðum eftir stærð
og hvort þeir bjóði upp á mat eða
ekki. Skandinavíska tóbaksfyrir-
tækið hefur einnig boðið veitinga-
mönnum ódýr teppi og gaslampa
svo ekki væsi um reykingafólk sem
þarf í framtíðinni að standa úti.
Danskir reykingamenn og ís-
lenskir ferðalangar þar í landi geta
því notið þess að reykja innan-
dyra fram undir lok sumars þó hér
heima verði allar reykingar bann-
aðar í júní.
Ingvi Steinar Ólafsson, veitingamaður
á The Laundromat Café:
Vitleysa að banna
reykingar í skrefum
„Þetta hefur allt verið í lausu
lofti og við höfum ekki fengið
neinar upplýsingar um reglurn-
ar“, segir Ingvi Steinar Ólafsson
veitingamaður í Kaupmannahöfn
sem rekur tvö kaffihús í borginni.
„Samt er það þannig að stað-
irnir þurfa ekki langan tíma til
að bregðast við reykingabanni.
Menn hafa vitað að þetta er það
sem koma skal og því var þetta
aldrei spurning um hvort held-
ur hvenær. Mér finnst vitleysa að
gera þetta í skrefum eins og Dan-
irnir ætla að gera. Miklu betra er
að rífa plásturinn bara af í einum
rykk“, vísar hann þar til yfirlýsinga
um að algert reykingabann verði
innleitt árið 2010. Fram að þeim
tíma mega veitingastaðir með-
al annars útbúa sér reykherbergi.
„Hér eru menn að banna reyk-
ingar en reyna um leið að gera
öllum til geðs og því eru reglurn-
ar mjög óljósar“, segir Ingvi Stein-
ar. „Það er alveg á hreinu að nýju
lögin mismuna veitingastöðum.
Til dæmis geta minni staðir hér í
götunni leyft viðskiptavinum sín-
um að reykja en ekki þar sem við
erum með eldhús. Það væri miklu
nær að taka alveg fyrir reykingar“,
segir hann. Unndanþágan sem
staðir undir fjörtíu fermetrum fá
telur Ingvi Steinar vera sérsniðna
að „þessum gömlu dönsku krám“,
þar sem viðskiptavinirnir eru oftar
en ekki stórreykingamenn. Hann
óttast ekki að bannið hafi neikvæð
áhrif á viðskiptin þó hann búist
við að reykingamenn muni draga
úr heimsóknum á kaffihús fyrst
í stað. „Það kæmi mér samt ekki
á óvart þó Danir myndu grípa til
fjöldamótmæla vegna reykinga-
bannsins þegar þar að kemur
enda vanir því að mótmæla“, bætir
hann við og brosir út í annað.
Ingvi Steinar Ólafsson,
veitingamaður í
Kaupmannahöfn
„Ekki spurning um hvort
heldur hvenær reykinga-
bann yrði sett“
Thomas Bjorn
Þekktasti golfari
dana fær sér eina
sígarettu á milli hola.
Skilti fyrir framan kaffihús
Efnt var til keðjureykingakvölds á
kaffihúsinu Props í gærkvöld en
reykingar verða bannaðar þar frá 1. apríl.