Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Page 31
DV Sport föstudagur 30. mars 2007 31
Eggert Magnússon hefur verið eigandi
West Ham í nærri fjóra mánuði. Margt
hefur gengið á hjá félaginu og rak Egg-
ert stjórann Alan Pardew og réð nafna
hans Curbishley í staðinn. West Ham
er átta stigum frá öruggu sæti í ensku
deildinni en með mun lakara marka-
hlutfall en önnur lið og eiga því erfitt
verkefni framundan.
„Ég hef verið í fótbolta nánast allt
mitt líf,“ sagði Eggert. „Ég hef stundum
þurft að taka þær erfiðu ákvarðanir að
reka þjálfarann, en sem stjórnarfor-
maður verður maður að taka ákvarð-
anir sem eru bestar fyrir félagið. Partur
af vandamálinu er að á fyrsta tímabil-
inu þínu í úrvalsdeildinni ertu með
ákveðinn meðbyr og þig langar að
sýna þig og sanna. Þegar það er búið
halda einhverjir að hlutirnir komi að
sjálfum sér.“
West Ham lenti í níunda sæti
ensku deildarinnar á sínu fyrsta tíma-
bili í ensku úrvalsdeildinni og voru
sekúndum frá því að landa bikarnum.
Núna eru þeir í harðri fallbaráttu og
eftir að Curbishley tók við hefur liðið
aðeins unnið tvo af þrettán leikjum.
Eggert segir að hann muni gera allt
sem í hans valdi stendur til að sann-
færa nokkra leikmenn um að vera
áfram hjá félaginu en allt að 15 leik-
menn eru sagðir á förum frá félaginu
fari það niður um deild. Hann segir
enn fremur að hann sjái ekki eftir að
hafa eytt öllum þessum peningum í
félagið.
„Ég hef aldrei haft neina eftirsjá.
Þetta er búið að vera áskorun, en ég er
viss um að takmarki okkar mun takast
fyrr en síðar. Ég ætla ekki að fara í smá-
atriði en það eru nokkur atriði sem
hafa komið mér á óvart sem viðkem-
ur rekstri á þessu félagi. Viðskiptalegi
hlutinn og einnig á frammistaðan á
vellinum.“
Eggert sagði ennfremur að hann
vildi að félagið myndi spila á nýjum
velli áður en Ólympíuleikarnir verða
haldnir í London árið 2012. Einnig vill
hann styrkja unglingastarfið sem hef-
ur framleitt nokkra af bestu leikmönn-
um Englands.
„Við verðum að fá einhvern inn
sem hefur betri þekkingu á evrópsk-
um markaði. Það er ekki bara á Eng-
landi sem við verðum að leita. Það er
Spánn, Frakkland og jafnvel austur
Evrópa. Við verðum að fylgjast með
bestu leikmönnum allra landa líkt
og Arsenal og Tottenham eru að gera
þessa stundina,“ sagði Eggert að lok-
um benni@dv.is
Eggert Magnússon eigandi West Ham var í ítarlegu viðtali við The Times fyrir skömmu. Þar kennir hann
leikmönnum um gengi liðsins og að hanns sjái ekkert eftir því að hafa eytt 12 milljörðum í félagið
Engin Eftirsjá
Norður-Írar hafa aldrei komist í loka-
keppni Evrópumóts landsliða í knatt-
spyrnu. Landslið þjóðarinnar hefur
þrisvar komist í lokakeppni HM en
það gerðist síðast árið 1986 þegar
keppnin var haldin í Mexíkó.
Besti knattspyrnumaður Norður-
Íra frá upphafi er án efa George Best.
Norður-Írar komust hins vegar aldrei
á stórmót þegar hann lék með lands-
liði þjóðarinnar og oft hefur verið
sagt að Best sé besti leikmaður sög-
unnar sem aldrei lék á HM.
Í seinni tíð hefur landslið Norð-
ur-Íra hefur verið byggt upp á leik-
mönnum sem leika í neðri deildum
á Englandi. Við og við hafa leikmenn
frá þjóðinni þó skotið upp kollinum
í stórum liðum og staðið sig vel. Má
þar t.d. nefna Pat Jennings, fyrrum
markvörð Arsenal, og Norm-
an Whiteside, fyrrum
leikmann Manchest-
er United, sem er
yngsti leikmað-
ur sem hefur
leikið á HM
í knatt-
spyrnu, og
að sjálf-
sögðu
George
Best.
Nýjasta
stjarnan
Nú hafa
Norður-Írar
eignast nýja
stjörnu,
David Hea-
ly. Öfugt
við Best,
Jennings
og Whit-
eside hefur Healy þó aldrei slegið í
gegn í efstu deild Englands. Í raun
hefur honum gengið illa að finna
netmöskvana með félagsliðum sín-
um. Það er þó enginn skortur á
mörkum hjá honum með landsliði
Norður-Íra.
Healy hefur slegið rækilega í gegn
í undankeppni EM 2008. Hann hefur
skorað níu mörk í sex leikjum. Norð-
ur-Írar hafa skorað tíu mörk í keppn-
inni til þessa og Healy hefur því skor-
að öll mörkin nema eitt fyrir þjóð
sína.
Hann varð
fyrsti leikmað-
urinn í sögu
Norður-Ír-
lands til að
skorað tvær
þrennur fyr-
ir landslið-
ið, gegn
Spánverjum og Liechtenstein, og er
markahæsti leikmaður Norður-Íra
frá upphafi með 29 mörk í 56 leikj-
um. Til samanburðar hefur hann
aðeins skorað 76 mörk í 272 leikjum
með þeim deildarliðum sem hann
hefur leikið með.
Ofur varamaðurinn
Healy er fæddur í Killy-
leagh í Norður-Írlandi 5.
ágúst 1979. Hann hóf
knattspyrnuferil sinn
með unglingaliði í ná-
greninu og skólaliði
Down Academy.
Útsendarar
Manchester United
komu auga á strákinn
og Sir Alex Fergu-
son fékk hann til
liðsins árið 1999.
Healy náði aldrei
að brjóta sér leið
inn í byrjunar-
lið Manchester
United. Hann
kom aðeins
þrisvar inn
á sem
vara-
mað-
ur á
ferli
sín- um hjá
Manchester United og
var á endanum seldur
til Preston North End í
janúar 2001.
Healy náði heldur ekki
að festa sig í sessi hjá Preston
og á þeim rúmu þremur árum
sem hann dvaldi hjá liðinu var
hann lánaður til Norwich City.
Leeds United festi kaup á
Healy í október 2004. Hann er
í miklu uppáhaldi hjá stuðn-
ingsmönnum Leeds en helsti
ókostur Healy er óstöðugleiki.
Hann hefur oft verið kallaður
ofur varamaðurinn og virðist
sjaldan láta ljós sitt skína þeg-
ar hann er í byrjunarliðinu.
Það sem gerir árangur hans
með Norður-Írum í undan-
keppni EM 2008 enn ótrúlegri
en sú staðreynd að Healy hefur
aðeins skorað átta mörk í 38 leikj-
um sem hann hefur komið við
sögu í á þessari leiktíð með Leeds.
Þrátt fyrir það hefur hann verið
orðaður við nokkur lið í úrvals-
deildinni eftir frammistöðu
sína með landsliðinu.
Í hóp með George Best
Healy komst í fréttirnar 7. sept-
ember 2005 þegar hann skoraði sig-
urmark Norður-Íra gegn Englend-
ingum á heimavelli, en þetta var
fyrsti sigur Norður-íra á Englending-
um frá árinu 1927.
David Healy er kominn í sama
hóp og George Best, Norman Whit-
eside og Pat Jennings í augum Norð-
ur-Íra, sem eigja nú von um að kom-
ast í lokakeppni EM í fyrsta skiptið í
sögunni. dagur@dv.is
David Healy hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir leik sinn með Norður-Írum í undankeppni EM. Hann er
markahæsti leikmaður undankeppninnar með níu mörk eftir sex leiki.
GulldrenGur norður-Íra
Algeng sjón samherjar Healy fagna hér
þriðja marki hans gegn spánverjum á
síðasta ári.
George Best frægasti knattspyrnumaður
Norður-Íra er án efa snillingurinn george
Best.
Átta mörk í 38
leikjum Healy
hefur aðeins
skorað átta
mörk í 38
leikjum fyrir
Leeds á
leiktíðinni.
Ótrúlegur markaskorari david
Healy er markahæsti leikmaður
Norður-Íra með 29 mörk í 56
landsleikjum.