Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Blaðsíða 35
DV Sport föstudagur 30. mars 2007 35
stjórn Binnamanna eins og stuðn-
ingsmannasveit HK kallar sig.
„Þeir eru búnir að vera frábærir í
vetur. Það var vel mætt í síðasta leik
og HK menn og konur eru kannski
að átta sig á því að þeir eiga lið í
toppbaráttu sem getur orðið íslands-
meistari,“ segir Gunnar í léttum tón.
Valsmenn með 14
frábæra leikmenn
Valsmenn hafa verið feyknarlega
öflugir í undanförnum leikjum og fáa
veikleika að sjá á liðinu.
„Það sem ég óttast mest er að þeir
hafa rosalega breidd. Þó svo að ein-
hver leikmaður nái sér ekki á strik,
hvort sem það er Markús Máni eða
Ernir Hrafn þá kemur einhver ann-
ar í staðin, Þeir eru með 14 frábæra
leikmenn á skýrslu. Eru með tvo
frábæra markmenn sem verja mik-
ið, maður veit reyndar aldrei hvor
spilar, þannig að þeir eru með alveg
svakalega breidd. Þeir eru hraðir og
skora mikið í hraðaupphlaupum. Ég
held að þetta sé besta liðið sem hefur
spilað á Íslandi í langan tíma.
Við erum svolítið bundnir okk-
ar lykilmönnum og að þeir nái sér á
strik.“
Sergey Petraytis varnartröll þeirra
HK manna hefur verið frábær í allan
vetur og það viðurkennir Gunnar.
„Hann er búinn að vera frábær
varnarlega í vetur. Hann er enginn
smásmíði, rosalega stór, Petkevicus
nýtir hann vel og þeir er u að vinna
rosalega vel saman. Við höfum ekki
náð að nýta hann nógu vel sóknar-
lega í síðustu leikjum. En hann er
mikið tröll og menn fá að hanga mik-
ið í honum. Það er búið að kaupa
fimm eða sex treyjur á hann og hann
fær ansi óblíðar viðtökur frá and-
stæðingum.
Mikið hefur verið rætt og ritað um
þennan leik sem algjöran úrslitaleik.
Valur er eitt sigursælasta liðið í ís-
lenskum handbolta og þekkir það að
vera í toppbaráttu en HK er að berj-
ast þar í fyrsta sinn. Gunnar segir að
hann óttist ekki að stressið yfirbugi
sína leikmenn.
„HK er ekki með mikla reynslu
úr toppbaráttu, þrátt fyrir að nokkr-
ir leikmenn hafa reynslu úr öðrum
liðum. Hins vega vill ég meina að við
höfum verið að gera fína hluti í vetur
og það er enginn pressa á okkur. Við
förum bara í þennan leik til þess að
njóta þess að spila hann og reyna að
stríða Valsmönnum og vinna þá. Þó
hann tapist þá verður enginn krísu-
fundur á mánudaginn. Ef við vinn-
um ekki Val á laugardag þá eigum
við einfaldlega ekki skilið að verða
Íslandsmeistarar.
Annað hvort liðið stendur uppi
sem sigurvegari
Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari
Vals segir að hann muni ekki koma
með nýtt í leikinn og leggi hann upp
eins og hvern annan leik.
„Það er kannski aðeins meiri
spenningur í leikmönnum fyrir leik-
inn en ég still þessu alveg eins upp.
Þó að gamla klisjan sé að allir leikir
séu tvö stig þá eru bæði lið taplaus
eftir jól og hafa verið að leika vel og
það er að öllum líkindum annað
hvort þessara liða sem stendur uppi
sem sigurvegari.
Það er líka gömul og góð klisja að
taka einn leik fyrir í einu og það hef-
ur gefist okkur vel.“
Val var spáð Íslandsmeistaratit-
ilinum fyrir mótið og hafa verið við
toppinn í allan vetur. HK var spáð
að lenda í miðri deild og hafa sumir
bent á að þeir séu að koma á óvart.
Óskar er ekki sammála því.
„Ég held að HK hafi verið spáð of
neðarlega, og í mínum huga eru þeir
ekki að koma á óvart. Þeir voru að
spila besta boltann á haustmánuð-
um og hafa Valdimar Þórsson, sem
er búinn að vera einn af betri leik-
mönnum mótsins. Svo eru þeir með
Petkevisius sem varð meistari með
Fram og KA, fjóra útlendinga tvo
frábæra þjálfara. Og ef þetta heitir
að koma á óvart þá veit ég ekki hvað
skal segja.
Ég neita að trúa því að HK séu
eithvað saddir, það kæmi mér á
óvart en væri kannski bara þægilegt
fyrir okkur. Þeir koma dýrvitlausir
til leiks. Mér finnst við hafa höndl-
að spennustigið mjög vel. Við erum
ungir og ég held að liðin hafi spáð
okkur titlinum til að setja pressu
á unga liðið, sumir spá þessu með
einhverja taktík í huga, ég hef nú
aldrei skilið það.“
Valsmenn hafa á að skipa gríðar-
lega sterkum hópi og segir Óskar að
styrkur Vals sé góður og hópurinn
samheldinn.
„Við erum með góðan mann-
skap, góða breidd og þarna mætast
lið sem eru með mestu breiddina
og nota hana mest. Við erum með
góðar fyrirmyndir, sem er mikilvægt
í félagsliðum. Góðir félagsmenn
og miklir Valsmenn sem styðja vel
við félagið og ungu leikmennina
og þetta er þáttur sem skiptir al-
veg rosalega miklu máli. Breidd-
in er mikil og leikmenn sem eru að
spila minna en aðrir gera sér held
ég ekki grein fyrir hversu mikilvæg-
ir þeir eru. Við erum með leikmenn
fyrir utan hóp, sem væru í flestum
öðrum hópum í flest öllum liðum í
deildinni. Þeir eru að skila miklum
árangri.“
Valur hefur á að skipa tveim-
ur góðum markvörðum þeim Ólafi
Hauki Gíslasyni og Pálmari Péturs-
syni sem hafa verið að verja gríðar-
lega vel í allan vetur. Þeir hafa skipt
leikjunum í vetur bróðurlega á milli
sín og þar sem Pálmar lék á móti
Stjörnunni um síðustu helgi mun
Ólafur væntanlega spila á móti HK.
„Ég get ekki séð annað en að þeir
hafi unnið vel úr þessu og ég held
að það þurfi að vera með tvo góða
markmenn til að ná langt og Valur
og HK eru með það.“
„Þó við séum á toppnum eru
væntanlega margir sem vildu hafa
stærra hlutverk og spila meira,
Pálmr og Óli eru báðir í landsliðs-
klassa, og mér finnst persónulega
mjög asnalegt að gefa þeim ekki
tækifæri báðum, því þeir hafa varla
farið undir 40% í vetur.
benni@dv.is
Stemning í Digranesi Það
hefur verið líf og fjör meðal
áhorfenda í digranesi á leikjum
HK í vetur.
STÆRSTI LEIKUR TÍMABILSINS
Mikilvægur hlekkur markús máni michaelsson hefur verið einn besti leikmaður
deildarinnar í vetur.
Egidijus Petkevicius algjör lykilmaður í
liði HK.
Erum ekki að hugsa um neina aðra Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals segir að sitt
lið sé ekki að hugsa um hvað önnur lið eru að gera.
Spilar á morgun Ólafur gíslason mun væntanlega spila í marki Vals á morgun. Hann
og Pálmar Pétursson skipta leikjum Vals bróðurlega á milli sín.
Spáir HK sigri Árni stefánsson
handboltagúru spáir heimamönnum í
HK sigri.
Leikir sem eftir eru
Lau. 31.mar. digranes 16.15 HK - Valur
Mið. 11.apr. austurberg 19.00 Ír - HK
Fim. 12.apr. Víkin 20.00 Valur - fram
Sun. 15.apríl digranes 16.00 HK - Haukar
Lau.dalshöll 16.00 Valur - Ír
Sun. 22.apr. Ásvellir 16.00 Haukar - Valur
Ka heimilið 16.00 akureyri - HK
Staðan í deildinni
1. Valur 17 13 1 3 488:444 44 27
2. HK 17 11 3 3 457:417 40 25
3. fram 17 9 2 6 512:472 40 20
4. stjarnan 17 9 8 463:460 3 18
5. akureyri 17 7 2 8 440:459 -19 16
6. Haukar 17 4 4 9 477:499 -22 12
7. fylkir 17 4 2 11471:505 -34 10
8. Ír 17 4 13 480:532 -52 8