Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Page 54
föstudagur 30. mars 200756 Helgarblað DV
TónlisT
Hin franskættaða Uffie spilar ásamt
Steed Lord á Barnum laugardaginn
31.apríl. Uffie sem heitir réttu nafni
Anna-Catherine Hartley og er fædd
og uppalin í Miami í Bandaríkjunum.
Uffie sló í gegn á síðasta ári með lög-
unum sínum Pop the Glock og Ready
to Uff. Tónlist Uffie flokkast und-
ir svokallað elektrónískt raf-hiphop.
Uffie hefur meðal annars unnið með
raftónlistarmönnunum Mr.Ozio og
Feadz en sá síðarnefndi mun einnig
spila á Barnum á laugardaginn.
Steed Lord hefur verið að gera það
gott undanfarið en Svala Bjögvins og
félagar eru nýkomin heim frá Miami
þar sem þau spiluðu á Winter Music
Conference ásamt mörgum af helstu
tónlistarmönnunum í raftónlistar-
geiranum. Sveitin hefur fengið þó
nokkra umfjöllun í tónlistartímarit-
um í Evrópu og hafa til dæmis BPM
Magazine, Electronic Beats Magaz-
ine og Super Super Magazine fjallað
um þau.
Steed Lord stefnir á að túra um
Bandaríkin og Evrópu í sumar og
hafa nú þegar verið bókuð á Global
Gathering-hátíðina í Bretlandi. Frítt
er inn á Barinn á laugardaginn en
takmarkaður fjöldi kemst inn. Her-
legheitin hefjast upp úr 23.00.
asgeir@dv.is
Úrslit
Músiktilrauna í
Hafnarhúsinu.
Úrslitakvöld músiktilrauna 2007 fer
fram næstkomandi laugardag í
Listasafni Íslands, Hafnarhúsinu. Það
eru 11 hljómsveitir sem keppa í
úrslitum en þær hljómsveitir sem fram
koma eru skyreports, shogun, spooky
Jetson, magnyl,
svanhvít!,
Loobyloo,
gordon riots,
the Custom,
the Portals, Hip
razical og soðin
skinka. foreign
monkeys
sigurvegarar
músiktilrauna
2006 munu
byrja og í tilefni 25 ára afmælis
músiktilrauna verður ljósmyndarinn
Björg sveinsdóttir með myndasýningu
á skjávarpa en hún hefur tekið myndir
á keppninni síðastliðinn 20 ár. Einnig
verður ljósmyndasýning frá Billa en
hann hefur tekið myndir af öllum
hljómsveitum sem fram hafa komið á
músíktilraunum 2007. miðaverð er
1.000 krónur en keppnin hefst klukkan
17:00 og fer miðasala fram á staðnum
frá klukkan 16:00
Tónlistarakademía DV segir
Kíktu á þessa!
Of montréal - Hissing fauna, are You the destroyer?
LCd soundsystum - sound of silver
motion Boys - Hold me Closer to Your Heart (smáskífa)
sprengjuhöllin - Verum í sambandi - (lag)
Panda Bear - Person Pitch
Steed Lord
frítt er á tónleikana.
40 tónlistaratriði
á Aldrei fór ég
suður hátíðinni.
Nærri 40
listamenn hafa
nú staðfest komu
sína á tónlistarhá-
tíðina aldrei fór
ég suður sem
fram fer á Ísafirði.
Nokkrar
breytingar hafa
orðið á hljóm-
sveitunum en þar
má helst nefna að
I adapt hefur dottið út vegna mikilla
anna hljómsveitarmeðlima og í
staðin hafa bæst við nokkur ný nöfn.
Þar á meðal franska hljómsveitin
Nosfell, dónadúettin, Ólöf arnalds og
síaðst en ekki síst lúðrasveit
tónlistaskólans á Ísafirði.
Babyshambles
á Glastonbury
Hljómsveitin Babyshambles hefur
verið bókuð á glastonbury tónlistar-
hátíðina sem haldin verður í
Bretlandi þann 22. júli. Það er
ógæfumaður-
inn frægi Pete
doherty sem
leiðir
hljómsveitina,
en hún átti eitt
sinn að koma
á Icelandic
airwaves
hátíðina, en
afboðaði. Það sem athygli vakti við
Babyshambles og hátíðina, er að
söngvarinn doherty mun fá 100
pund greidd aukalega fyrir söng sinn.
En það er víst ekki vaninn.
Elektróskvísan Uffie spilar á Barnum á
laugardaginn ásamt Steed Lord
Elektró-hiphop á Barnum
UffiE sPILar á BarNum á LaugardagINN
Stórsveitin Benni Hemm Hemm undir forystu Benedikts H. Hermanssonar fær glim-
randi umsögn í nýjasta hefti af tónlistartímaritinu Rolling Stones. Segir í blaðinu að ef
Sigur Rós myndi stofna hljómsveit með Sufjan Stevens, yrði útkoman ekki ósvipuð
Benna Hemm Hemm. Benedikt segist nokkuð hreykinn af umsöginni, en bandið er ný-
komið úr tónleikaferð.
Benni Hemm Hemm á heita listanum í Rolling Stone
„Þetta er bara rosalega magnað og ég er bara
svolítið montinn yfir þessu.“ Segir tónlistar-
maðurinn Benedikt H. Hermannsson eða
Benni Hemm Hemm um nýlega umfjöllun
um hann í Rolling Stone tímaritinu. Í nýjasta
tölublaði tímaritsins er Benni Hemm Hemm
á svokölluðum heitum lista, en þar er les-
endum bent á nýjungar í tónlistarlífinu sem
vert er að taka eftir. Er meðal annars sagt um
bandið að ef tónlistarmaðurin Sufjan Stevens
myndi flytja til Íslands og hefja samstarf við
Sigur Rós yrði niðurstaðan stórfenglegt stór-
sveitapopp á borð við tónlist Benna Hemm
Hemm.
„Við erum með útgáfufyrirtæki bæði í
Bandaríkjunum og Evrópu svo þetta er nátt-
úrulega alveg frábær auglýsing fyrir plöturn-
ar okkar“ segir Benni en síðasta plata sveitar-
innar kemur út í Bandaríkjunum í maí. „Við
túrum svo vonandi um Bandaríkin í um það
bil 3 vikur í sumar“.
Hljómsveitin var að koma heim úr tón-
leikaferð sinni um Evrópu og eru dómarnir
eftir það ferðalag ekki af verri endanum. Veft-
ímaritið Drowned in Sound gefur tónleikum
þeirra í Amsterdam einkunnina 9 af 10 fyrir
frammistöðuna.
„Við spiluðum nánast stanslaust í 2 vikur
í Frakklandi, Þýskalandi, Belgíu, Hollandi og
Austurríki.“ Benni segir tónleikana í Vín hafa
staðið uppúr „Þar var ótrúlega mikið stuð
og góð stemmning.“ Þá voru tónleikar hans
í Austurríki kallaðir tónleikar ársins af dag-
blaði þar í landi, en DV greindi frá því fyrir
stuttu.
Aðspurður um fyrirhugaða tónleika hér
heima segir Benni að nú taki allavega við
smá hvíld eftir ferðalagið um Evrópu og getur
því miður ekki lofað okkur tónleikum á næst-
unni.
Benedikt H. Hermannson
segir að umsögn rolling
stones gæti komið sér vel
þegar platan Kajak kemur út í
Bandaríkjunum í maí.
Rolling Stone
Eitt virtasta tónlistartímarit í heimi.