Fréttatíminn - 17.12.2010, Page 4
G litnir greiddi 9,4 milljarða í arð árið 2007 og Landsbank-inn 4,4 milljarða. Ástæðan
var sögð methagnaður beggja bank-
anna. Samkvæmt ársskýrslu Lands-
bankans þetta ár hagnaðist bankinn
um rétt tæpa 40 milljarða. Glitnir
var ekki langt á eftir með tæplega
28 milljarða hagnað samkvæmt
sinni ársskýrslu fyrir árið 2007.
Þannig fengu stærstu hluthafarnir,
Björgólfsfeðgar í Landsbankanum
og FL Group í Glitni milljarða í arð-
greiðslur.
En áttu arðgreiðslurnar í Lands-
bankanum og Glitni fyrir árið 2007
í raun og veru rétt á sér? Ekki sam-
kvæmt hinu norska Lynx Advokat-
firma og franska Cofisys sem hafa
rannsakað bókhald bankanna með
sérstakri áherslu á frammistöðu
endurskoðanda bankanna. Sem var
í báðum tilvikum PriceWaterhouse-
Coopers.
Lynx Advokatfirma skoðaði bók-
hald Landsbankans og komst að
þeirri niðurstöðu að bankinn hefði
átt að missa leyfi sitt til bankastarf-
semi um leið og ársskýrslan fyrir
árið 2007 kom út. Eigið fé bankans
hafi verið útblásið þar sem ekki hafi
verið tekið tillit til ábyrgðar bank-
ans á eigin bréfum sem aflandsfélög
áttu. Auk þess hafi lán skuldunauta
sem voru í kröggum, líkt og Eimskip
og Primus, félag Hannesar Smára-
sonar, ekki verið færð nægilega
niður. Lynx telur að niðurfærslan
hafi átt að vera fimmtíu til hundrað
milljörðum meiri heldur en hún var
í raun og veru. Samt fékk Samson,
félag feðganna Björgólfs Guðmunds-
sonar og Björgólfs Thors Björgólfs-
sonar, tæpa tvo milljarða í arð fyrir
góðan rekstur það árið.
Frakkarnir í Cofisys fóru ekki
fögrum orðum um Glitni í sinni
skýrslu. Í henni kom fram að bank-
inn hefði verið gjaldþrota í árslok
2007. Réttast hefði verið að draga
tjöldin fyrir og slökkva ljósin í stað
þess að leyfa eigendum og vildar-
vinum þeirra að skafa bankann
innan frá. Samkvæmt Cofisys var
upplýsingum um tengda aðila stór-
lega ábótavant og því var raunveru-
leg útlánaáhætta bankans aldrei
ljós. Kúlulánaæði Glitnismanna var
gagnrýnt og talað um að bankinn
væri án hliðstæðu í bankaheiminum
með fjölda og upphæðir slíkra lána.
Ekki hefðu verið gerðar nægar var-
úðarráðstafanir vegna niðurfærslna
slíkra lána sem væri nauðsynlegt þar
sem kúlulán væri með einn gjald-
daga, í lok lánstímans, og þess vegna
væri erfitt að meta greiðsluhæfni lán-
takandans á lánstímabilinu. FL Gro-
up fékk um þrjá milljarða í arð fyrir
árið 2007 frá Glitni þrátt fyrir þessa
annmarka á bókhaldinu.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Fallegar
gjafaumbúðir
Hentar öllum
Gildir hvar sem er
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
Gjafakortið sem
gildir alls staðar
Þú velur upphæðina en viðtakandinn velur gjöfina.
Glitnismáli vísað frá í New York
260
milljarðar
Upphæðin í
skuldabréfaútboðinu sem
er grunnur málareksturs
slitastjórnar Glittnis.
ArðGreiðslur lAndsbAnkinn oG Glitnir árið 2007
Borguðu 14 milljarða arð
út úr gjaldþrota bönkum
Hluthafar Landsbankans og Glitnis fláðu feitan gölt í formi arðgreiðslna árið 2007 þótt ýmislegt
bendi til að pottur hafi verið brotinn í bókhaldi bankanna.
FL Group
fékk þrjá
milljarða í arð
úr ónýtum
banka að
sögn franskra
rannsakenda.
Ljósmynd/
Myndasafn
Morgunblaðsins
Björgólfsfeðgar fengu tvo milljarða í arð úr ónýtum banka að sögn norskra rannsakenda.
Ljósmynd/Myndasafn Morgunblaðsins
10 stærstu hluthafar Landsbankans í árslok 2007
Samson eignarhaldsfélag ehf. 40,7%
Landsbanki Luxembourg S.A. 6,6%
LI-Hedge 4,5%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 2,9%
ÍslandsbankiFBA – safnreikningur 2,7%
Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 2,5%
LB Holding Ltd 2,5%
Arion safnreikningur 2,4%
Proteus Global Holding S.A. 1,9%
Gildi – lífeyrissjóður 1,8%
10 stærstu hluthafar Glitnis í árslok 2007
FL Group 30,8%
Þáttur International 7%
Saxbygg Invest 5%
Jötunn Holding 4,8%
LI Hedge 4,6%
Stím ehf. 4,3%
GLB Hedge 3,8%
Citibank 2%
Kristinn ehf. 1,7%
Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 1,3%
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
NorðaN stÓrHríð um laNdið
NorðaN- oG austaNvert oG fer
veður versNaNdi eftir Því sem
líður á daGiNN.
HöfuðborGarsvæðið: StrekkingS-
vIndur, FroSt oG Þvó AnSI KALt.
ÚrKomuLAuSt.
eNN verður leiðiNdaveður á laNd-
iNu. Hvöss Na-átt oG éljaGaNGur
NorðaN- oG NorðaustaNlaNds.
HöfuðborGarsvæðið: lægir heldur
oG mInnKAndI FroSt.
HæGt miNNkaNdi Na-átt oG
ferðaveður skáNar mikið á
laNdiNu.
HöfuðborGarsvæðið: litlar
BreytItInGAr en AFtur KóLnAndI.
vetrarveðrátta á ný
Búið er að vera ótrúlega hægviðrasamt á
landinu undanfarnar vikur og vegir á milli
landshluta oftast auðir og greiðfærir. en nú
í vikunni skipti veðrið algerlega um ham.
verst verður norðanhríðin síðdegis í dag,
föstudag og fram á laugardagsmorguninn.
Þá fer að ganga niður hægt og bítandi
og draga úr ofankomu. Íbúar
Höfuðborgarsvæðisins verða
hins vegar minna og jafnvel
lítið varir við veðrið, þökk sé
skjólinu frá esjunni.
4
3 6 7
6 1
2 1
1
0
3
3 3
4
3
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is Klæddu þig vel
www.66north.is
Þórsmörk
parka
Höldum áfram
með málið
Steinunn Guðbjartsdótt-
ir, formaður slitastjórn-
ar Glitnis, var brött þrátt
fyrir að málinu gegn
sjömenningunum hafi
verið vísað frá dómi í
new york. „Þetta voru
vissulega vonbrigði en við munum halda
áfram með málið hérna heima,“ sagði
hún í samtali við fjölmiðla eftir að dómur
var kveðinn upp. „vinnan sem hefur verið
unnin í tengslum við málið mun nýtast í
framhaldinu,“ sagði Steinunn. -óhþ
Ætlar í skaðabótamál
Jón Ásgeir Jóhannesson ætlar í skaðabóta-
mál vegna frávísunar Glitnismálsins í new
york. „Það segir sig sjálft að hinir stefndu
hafa orðið fyrir hundraða milljóna
kostnaði vegna málaferlanna. Ég
get ekki talað fyrir aðra en ég fyrir
mitt leyti ætla að sækja rétt minn,“
segir Jón Ásgeir í samtali við
Fréttatímann. Hann segir
ómögulegt fyrir slitastjórn-
ina að leggja fram sömu
stefnu á Íslandi og í new
york. „Þessi stefna í new
york er meiri skáldskapur
en bókin þín,“ segir hann
við blaðamann. -óhþ
Þrír þingmenn
vG styðja ekki
fjárlagafrumvarpið
Þrír þingmenn vinstri grænna styðja
ekki fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar.
Þetta kom í ljós við atkvæðagreiðslu
í gærmorgun. Þingmennirnir eru Atli
Gíslason, Ásmundur einar daðason og Lilja
mósesdóttir. við umræður um frumvarpið
sagði Lilja að núverandi fjárlagafrumvarp
gerði lítið annað en að dýpka kreppuna
og verið væri að halda í efnahagsáætlun
Alþjóða gjaldeyrissjóðsins þótt forsendur
fyrir henni væru löngu brostnar. -óhþ
Lífvænleg fyrirtæki
aðstoðuð
Gengið hefur verið frá samkomulagi um
leiðir við úrvinnslu skuldamála lítilla
og meðalstórra fyrirtækja. Aðilar
þess eru helstu hagsmunasamtök
atvinnulífsins, fjármálafyrirtæki
og stjórnvöld. Fjármálafyrir-
tækjujm ber að ljúka skoðun
á fjárhagsstöðu fyrir 1.
júní og gera lífvænlegum
fyrirtækjum sem eru í
fjárhagsvanda tilboð um
úrvinnslu skulda. miðað
er við fyrirtækin skuldi
að jafnaði ekki meira en
milljarð króna. -jh
Máli slitastjórnar Glitnis gegn Jóni Ásgeiri
Jóhannessyni, Ingibjörgu Pálmadóttur,
Hannesi Smárasyni, Pálma Haraldssyni,
Lárusi Welding, Þorsteini M. Jónssyni, Jóni
Sigurðssyni og PriceWaterhouseCoopers
í New York var vísað frá dómi á þriðjudag.
Dómari í New York tók sér klukkutíma,
eftir að fjallað var um frávísunina, til að taka
ákvörðun og komst að þeirri niðurstöðu að
málið ætti ekki heima í New York. Málið
snýst um stefnu slitastjórnar á hendur sjö-
menningunum og PwC vegna 260 milljarða
króna skuldabréfaútboðs árið 2007. -óhþ
4 fréttir Helgin 17.-19. desember 2010