Fréttatíminn - 17.12.2010, Síða 6
Það styttist í þá sælutíð
er maður hefur góðfús-
legt leyfi frá þjóð-
félaginu til að liggja út-
blásinn af kjötáti heima
hjá sér, lesandi nýjustu
bækurnar og troðandi í
sig enn meira konfekti.
Því fannst mér upp-
lagt að gera litla
verðkönnun hjá þeim
aðilum sem selja bæði
bækur og konfekt. Auð-
vitað fást bækur líka í
öllum okkar frábæru
bókabúðum og konfekt
má vitaskuld fá í
miklu fleiri búðum en í
þessum fjórum.
Verðkönnunin fór
fram þriðjudaginn 14.
desember. Bækurnar
tíu valdi ég af handa-
hófi. Því miður er svo
fjölbreytt konfektúrval
í búðunum að aðeins
var marktækt að bera
saman tvær tegundir.
Aðrar tegundir voru
annað hvort ekki alls
staðar til eða í mis-
munandi pakkninga-
stærðum í búðunum.
Í konfektinu hafði
Bónus vinninginn, en
Krónan hefur vinn-
inginn í bókunum.
Reyndar munar þar
mest um bókina Popp-
korn sem var á sér-
stöku kynningarverði
í Krónunni þegar ég
gerði könnunina. Allir
aðrir titlar eru á lægra
verði í Bónus – reyndar
oft ekki nema einni
krónu ódýrari en í
Krónunni.
Verðið núna síðustu
dagana fyrir jól breytist
ört og ég fann að í búð-
unum voru menn mjög
á tánum. Það verð
sem hér er gefið upp
á því örugglega eftir
að breytast nokkrum
sinnum til jóla.
Kósý-
kvöld
Fyrir alla
Fyrir ævintýra-
gjarna
Fyrir elskulega
Gott
verð!
2.790,-
3.190,-
3.190,- Dr Gunni er UmboðsmaðUr neytenda
Ábendingar og kvartanir: drgunni@centrum.is
Bækur og konfekt – verðkönnun
Gunnar
Hjálmarsson
drgunni@centrum.is
Nettó Hagkaup Krónan Bónus
Furðustrandir Arnaldar 3471 3970 3572 3470
Gunnar Thoroddsen - ævisaga 4544 4880 4516 4515
Ég man þig eftir Yrsu 3652 3970 3699 3650
Mér er skemmt Einars Kárasonar 3471 4880 3464 3463
Ljósmyndabókin Poppkorn 4752 4880 3990 4541
10.10.10 Loga Geirs 3953 4490 3952 3951
Dömusiðir Tobbu 2594 3480 2586 2585
Lífsleikni Gillz 2594 3390 2585 2584
Þokan eftir Þorgrím Þráinsson 2474 3380 2579 2473
Árstíðir Þórarins Eldjárns 2399 2990 2499 2398
Samtals 10 bækur: 33904 40310 33442 33630
Mackintosh 2 kílóa dós 2898 2789 2690 2689
Nóa konfektskassi 940 gr 3498 3389 3460 3259
Samtals konfekt: 6393 6178 6150 5948
kópavogUr Útlit fyrir UppbyggingU svæðisins í nÁinni framtíð
Fjárfestar vilja
Glaðheimasvæðið
Hópur erlendra og innlendra fjárfesta skoðar að kaupa gamla hesthúsahverfið á móti Smáralind í
Kópavogi. Kópavogsbær seldi svæðið til tveggja félaga á sínum tíma á 6,5 milljarða króna en fékk
svo lóðirnar aftur í hausinn.
H ópur innlendra og erlendra fjárfesta skoðar að kaupa Glaðheimasvæðið, fyrrum svæði Hestamannafélags-
ins Gusts gegnt Smáralind í Kópavogi, og
byggja þar íbúða- og atvinnuhúsnæði. Þeir
hittu bæjarstjórann og sviðsstjóra skipu-
lags- og umhverfissviðs á tveimur fundum,
3. og 6. desember, og er málið í vinnslu hjá
skipulagsstjóra. Guðrún Pálsdóttir, bæjar-
stjóri í Kópavogi, vill ekki tjá sig um málið
þar sem það sé á viðkvæmu stigi, en að
sögn upplýsingafulltrúa bæjarins, Örnu
Schram, hefur engin ákvörðun verið tekin,
hvorki af né á.
Mörg ljón á veginum
Frímann Frímannsson fer fyrir hópnum.
Hann segir ekkert í hendi og mörg ljón á
veginum áður en skýrist hvort hópurinn
kaupir svæðið. Til að mynda þurfi að breyta
aðalskipulagi því hópurinn vilji sjá fleiri
íbúðir rísa á staðnum, blokkir í stað atvinnu-
húsnæðis. „Fyrst þarf að sjá hver varan er
áður en við kaupum,“ segir hann. „Þetta er
áhugavert svæði, tólf hektarar og mjög mið-
svæðis.“
Hann gefur ekki upp hverjir fjárfestarnir
eru. „Okkur fjölgar um 100 þúsund manns
á næstu fjörutíu árum,“ segir Frímann
spurður hvort hann telji eftirspurn eftir nýju
íbúðarsvæði. „Við horfum til framtíðar.“
Fé fram og til baka
Fyrir fjórum árum hófust uppkaup bæjarins
á hesthúsum Gusts við Glaðheima. Bærinn
greiddi 3,5 milljarða króna fyrir svæðið og
seldi tveimur eignarhaldsfélögum það; Fast-
eignafélaginu SMI, fyrirtækinu sem byggði
Smáratorg í Kópavogi og Glerártorg á Akur-
eyri, annars vegar og Kaupangi hins vegar,
í ársbyrjun 2007 á samtals 6,5 milljarða
króna. Byggja átti tugþúsundir fermetra
af atvinnu- og íbúðarhúsa á svæðinu, þar á
meðal þrjátíu hæða turn. SMI skilaði sínum
lóðum á haustmánuðum 2008 en Kaupang-
ur sínum nú í sumar.
Kópavogur tók, samkvæmt fundargerðum
bæjarins, 770 milljóna króna lán í sumar
til að kaupa Glaðheimasvæðið að nýju – af
Kaupangi. Lánið verður greitt upp með
einni greiðslu á lokagjalddaga í apríl 2015
en vextir greiddir hálfsárslega.
Gunnar I. Birgisson, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins og fyrrum bæjarstjóri, segir
gleðilegt ef erlendir aðilar koma með fé inn
í landið. „Þetta eru mjög góðar fréttir fyrir
bæinn en svo er bara spurning hvort meiri-
hlutanum auðnast að halda almennilega á
þessu máli. Það á eftir að koma í ljós.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Hesthúsin á gamla Glaðheimasvæðinu standa enn. Þar áttu að rísa tugþúsundir fermetra af atvinnu- og íbúðarhúsnæði, þar á
meðal þrjátíu hæða turn. Ljósmynd/Hari
Fyrst þarf
að sjá
hver varan
er áður
en við
kaupum.
Þetta er
áhugavert
svæði, tólf
hektarar
og mjög
mið-
svæðis.
6 fréttir Helgin 17.-19. desember 2010