Fréttatíminn - 17.12.2010, Qupperneq 8
Hafnarfjörður StýriHópur vill vinna áfram
Vilja leita uppi ungt fólk
í sjálfsvígshugleiðingum
Í kjölfar sjálfsvíga þriggja ungra pilta í Hafnafjarðarbæ var ráðist í viðamikið forvarnarstarf. Það var
gert af ótta við að önnur ungmenni fylgdu í fótspor þeirra. Hópur sérfræðinga vill að skimað verði
eftir einstaklingum í áhættuhópi í bænum.
v ið viljum að skimað verði eftir ein-staklingum sem eru í áhættuhópi um sjálfsvíg,“ segir Geir Bjarna-
son, forvarnafulltrúi í Hafnarfjarðarbæ.
„Það gerist ekki sjálfkrafa. Einhver þarf að
hafa það verkefni á sinni könnu og ýta því
áfram,“ segir hann. Sjálfsvíg þriggja pilta
í bænum síðasta vetur leiddi til þess að
ákveðið var að mynda stýrihóp vegna van-
líðanar og sjálfsvíga ungs fólks í Hafnar-
firði sem í sátu sex sérfræðingar.
Niðurstaða hópsins er að allur bærinn
sé nú betur vakandi gagnvart vanlíðan og
að verkferlar vegna sjálfsvíga og forvarna
séu ljósari en áður. Hópurinn vill einnig
að gerðar verði rannsóknir og stuðlað að
markvissum forvörnum.
„Afleiðingar vanlíðanar geta oft verið
skelfilegar og á krepputíma eru meiri
líkur á því að einhver verði útundan,“ segir
Geir sem sat í stýrihópnum. Hann hefur
sérstakar áhyggjur af ungmennum sem
hafa flosnað upp úr námi og eru án vinnu,
erfiðast geti verið að ná til þeirra.
Þögnin verst
Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri
segir ekki hafa verið teknar formlegar
ákvarðanir um hvernig tillögum stýrihóps-
ins verði fylgt eftir en vilji til þess sé fyrir
hendi. „Það versta sem samfélag getur
gert, þegar ungt fólk tekur líf sitt, er að
fela það og láta sem það hafi ekki gerst.
Eina leiðin til þess að bregðast við er
fræðsla og þekking og nauðsynlegt er að
virkja allt samfélagið með forvörninni. Við
munum klárlega fara eftir tillögum starfs-
hópsins, hvernig svo sem við útfærum
það,“ segir hann. „ Fólk þarf að vita meira
og skilja aðstæðurnar þegar svona kemur
upp. Óttinn við hið óþekkta er verstur.“
Fræðslan fór víða fram
Frá síðasta vetri hefur verið gripið til
ýmissa aðgerða í bænum, svo sem fræðslu
um sjálfsvíg og forvarnir fyrir starfsfólk
grunnskóla og heilsugæslustöðva bæjar-
ins. Foreldrafélögum var boðið upp á
fræðslu frá starfmönnum Rauða krossins
um vanlíðan barna, forvarnir og viðbrögð,
og fengu foreldrar grunnskólanema bréf
þar sem bent var á stuðningsnet skólanna
auk þess sem haldnir voru fyrirlestrar
fyrir foreldrafélög leikskóla, grunnskóla
og framhaldskóla um líðan barna og
unglinga. Þá var bæklingur um geðheilsu
barna sendur inn á hvert heimili.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
landlækniSembættið
Allir unnu saman og eiga hrós skilið
„Hafnfirðingar eiga hrós skilið
fyrir mjög góð viðbrögð og
góða vinnu,“ segir Salbjörg
Bjarnadóttir, geðhjúkrunar
fræðingur og verkefnastjóri
Þjóðar gegn þunglyndi hjá
Landlæknisembættinu, sem
hópurinn fékk til samstarfs
við sig. „Öll kerfin unnu
saman; prestar, skólastjórn
endur, félagsþjónustan og
heilsugæslan.“ Hún segist ekki
vita til þess að önnur bæjar
félög hafa brugðist eins vel
við og gert var í Hafnarfirði,
en það hafi verið gert vegna
óttans um að fleiri tækju svo
afdrifaríka ákvörðun sem
piltarnir þrír.
Salbjörg Bjarnadóttir hjá
Landlæknisembættinu.
Það versta
sem sam-
félag getur
gert, þegar
ungt fólk
tekur líf
sitt, er að
fela það
og láta
sem það
hafi ekki
gerst.
Sjálfsvíg þriggja pilta í Hafnarfirði síðasta vetur leiddi til mikillar fræðslu í bænum um vanlíðan ungs fólks. Sérfræðingar vilja
nú að skimað verði eftir einstaklingum í áhættuhópi um sjálfsvíg. Ljósmynd/Hari.
HjálparStarf kirkjunnar og Stærri verSlanir
Aukapoki til þeirra sem lítið eiga
a ukapokinn á aðvent-unni er einn mögu-leiki fólks til að hjálpa
þeim sem minna mega sín.
Fram að áramótum er hægt
að kaupa alls kyns nauðsynjar
sem ekki þurfa að vera í kæli
og setja í aukapoka í flestum
stærri verslunum fyrir þá
sem þurfa á hjálp að halda,
t.d. pasta, hrísgrjón, hrein-
lætisvörur, niðursuðuvörur
og fleira. Það er Hjálpar-
starf kirkjunnar sem stendur
að þessu, sækir pokana í
verslanirnar og deilir þeim út
í gegnum matarbúr sitt.
Verslanirnar sem eru með
Hjálparstarfi kirkjunnar í
átakinu eru Kostur, Krónan,
Nettó, Bónus og Hagkaup á
höfuðborgarsvæðinu og mat-
vöruverslanir þeirra á Akur-
eyri og í Reykjanesbæ. Anna
M. Þ. Ólafsdóttir, verkefna-
stjóri Hjálparstarfs kirkjunn-
ar, segir að átakið hafi gengið
vel um síðustu jól en heldur
verr nú. Þó hafi safnast 161
poki til útdeilingar. Hjálpar-
starf kirkjunnar beinir því
til fólks sem er aflögufært að
setja vörur eftir efnum og að-
stæðum hvers og eins í auka-
poka til þeirra sem hafa lítið
sem ekkert milli handanna.
Anna segir þetta kerfi
þægilegt. Fólk geti skilið
aukapokana eftir í sérmerkt-
um körfum við kassa fyrr-
greindra verslana. „Starfs-
fólk verslananna fylgist
með, hringir og við sækjum
pokana,“ segir hún.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
8 fréttir Helgin 17.19. desember 2010
JÓLAPRÝÐI
PÓSTSINS 2010
Jólaprýði er fallegt jólaskraut fyrir heimilið
og tilvalið í jólapakkann.
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir myndlistar-
maður á Akureyri er höfundur jólaóróanna
og jólafrímerkjanna 2010.
Jólaóróarnir eru seldir 4
saman í pakka á kr. 3.100
og stakir í pakka á kr. 850.
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
Þvottavél
WM 10A163DN
á hreint
frábærum kjörum!
Tekur mest 5 kg, vindur
upp í 1000 sn./mín.
Með íslensku stjórnborði.
Orkuflokkur A.
Jólaverð:
84.900 kr. stgr.
Með því að kaupa
FRIÐARLJÓSIÐ
styrkir þú hjálparstarf
og um leið verndaðan
vinnustað.
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-
1
0
2
9
7
5
látum
Friðarljósið
lýsa upp aðventuna