Fréttatíminn - 17.12.2010, Page 40
Allt sem sneri að persónulegu lífi var erfitt. Ég átti allt,
en eitthvað vantaði. Ég vann myrkranna á milli og það
var mér ekki nóg. Reyndar er ég kominn í sama farið
aftur; var að gefa út bók, förðunarmyndband í fyrra,
búinn með 44 sjónvarpsþætti og rek hárgreiðslustofu
og heildverslun.
Þegar mér fannst allt orðið tilgangslaust og einhæft
hérna heima, seldi ég íbúðina, húsið, bílana og minn
hlut í stofunni og flutti til London. Þá snerist allt við.
Fyrstu sex árin voru reyndar ekki dans á rósum en
það var hræðilega gaman! Þar kynntist ég mínum allra
bestu vinum, Fulham-fjölskyldunni. Í henni eru bara
snillingar, Ragga Gísla og Jakob Frímann, Steindóra og
Friðrik Karls, Dóra Takefusa, og margir fleiri. Það var
stuð frá morgni til kvölds og ég var fljótur með ágóðann
af eignum mínum á Íslandi. Ég var með þessu fólki í
grúppu í fjögur ár og þetta var besti tími lífs míns. Það
var ekki fyllirí á okkur – það voru vissulega drukknar
nokkrar rauðvínsflöskurnar – en það var svo mikil
tónlist og gleði og þar eignaðist ég mína bestu vini sem
ég á enn í dag. Eftir sex mánaða veru í London fékk ég
umboðsmann og þá byrjaði baráttan, ég vissi ekkert út í
hvað ég var að fara. Þær voru ekki margar umboðsskrif-
stofurnar – og þúsundir manna að reyna það sama og
ég. Ég vann meira og minna frítt í næstum tvö ár við að
byggja upp bókina mína með myndum af vinnu minni
sem allt þetta snerist um. Ég starfaði eingöngu sem
make-up artisti fyrstu fimm árin en fór síðan meira yfir
í hárið, og fór margar ferðir um heiminn. Flestar voru
ferðirnar til Afríku, í Karabíska hafið, til Lapplands,
Dúbaí og á marga framandi staði. Þetta er mjög vel
borguð vinna en margir um hvert djobb. Við vorum um
allan heim að mynda auglýsingar fyrir tískublöð eins og
Marie-Claire, Vogue,Vanity Fair og fleiri þekkt tímarit.
Ein myndataka af einu bikiníi þýddi kannski vikudvöl
í Karabíska hafinu. Það var ekkert mjög leiðinlegt. En
álagið var gífurlegt þar sem kröfurnar voru miklar og
þar kom þolinmæði,
kunnátta og metn-
aðurinn að góðum
notum við að koma
með eitthvað nýtt og
ferskt inn í hverja
töku og hvert djobb.
Ég hafði ekki hugsað
mér að koma heim
aftur en ég var oft
einmana, einn í þess-
um stóra heimi og
Íslendingarnir flestir
farnir – en ég hélt
út. Það þurfti mikið
fjármagn til að búa í
London. Ég hugsaði
bara „enjoy life, while
you are alive“. Ég átti
litla íbúð í London,
en var minnst þar. Ég
bjó í ferðatösku um
allan heim og það varð á endanum þreytandi – og ég
missti af fjölskyldulífinu á Íslandi. Litla frænka sem var
tveggja ára var allt í einu orðin sextán ára og ég var eins
og kunningi en ekki frændi. Ég vildi eiga bækistöð hér
á Íslandi og við Laufey systir opnuðum kvenfataverslun-
ina Næs Collection. Þegar við ákváðum að loka henni
nokkrum árum síðar byrjaði ég með Beauty barinn þar
og ætlaði að koma heim í viku mánaðarlega og vinna
við hárgreiðslu. En heim ætlaði ég aldrei að flytja alveg.
Ég vissi að það þýddi bara að vinna og sofa. Enda er
það svoleiðis. Það gerist ekkert mikið við eldhúsborðið
í Grafarvoginum. Ef ég kemst til útlanda einu sinni í
mánuði þá róast ég og mér líður vel hér í dag en hver
veit hvað sú vertíð endist lengi?“
Geir H. Haarde ber ábyrgðina
„Vendipunkturinn að því að ég flutti til Íslands var „Guð
blessi Ísland“. Geir H. Haarde ber ábyrgð á því að ég er
hér. Ég var staddur á hárgreiðslustofunni á fyrsta degi
opnunar með Ísak vini mínum og við vorum með kveikt
á útvarpinu. Þá heyrði ég Geir H. Haarde segja: „Guð
blessi Ísland“ – og fannst hann eiginlega bæta við: „Hér
er allt að fara til fjandans!“ og ég hugsaði: „Jæja, þá er
komin kreppa – góð byrjun á einkarekstri á Íslandi – en
ef það er kreppa hér, þá er sko meiri kreppa í London.“
Þessi bransi sem ég var í úti lenti mjög illa í kreppunni.
Þennan dag ákvað ég að mér væri best borgið á Íslandi
á meðan þessi átök stæðu yfir. Þegar aðrir flúðu úr
landi, flúði ég heim. Hinn 2. janúar 2009 varð svo annar
vendipunktur. Ég sat einn á stofunni minni þann dag
og hugsaði: „Karl, þetta er líf þitt núna. Þú ert kominn
heim. Svona verður þetta! Sendu mér tákn!“ Þá hringdi
síminn – og ég sagði við skaparann: „Ja, þú ert ekki
lengi að þessu!” Á hinum endanum var starfsmaður á
Skjá einum að bjóða mér að vera með sjónvarpsþátt um
útlit. En þá kom mesti þrándur í götu ævi minnar: Ég í
sjónvarpsþátt – og ég sem get ekki talað orð án þess að
stama. En vilji er allt sem þarf og með dyggum stuðn-
ingi samstarfsmanna minna við tökur hefur þetta orðið
að veruleika nokkuð skammlaust! Ég hugsa að fólk sem
finnst það ekki fullkomið hafi meira umburðarlyndi
gagnvart öðrum sem eru ekki fullkomnir. Ég er ekki
fullkominn og þar af leiðandi held ég að með einlægni
minni í að vilja gera eitthvað fyrir aðra hafi þátturinn
tekist. Þetta hefur verið hreint ævintýri líkast og allar
En þá kom mesti
þrándur í götu ævi
minnar: Ég í sjón-
varpsþátt – og
ég sem get ekki
talað orð án þess að
stama.
Helgin 17.-19. desember 2010
Lúxus-íspinnar 3 x 120ml
298 kr.
Vanillu ís-stangir 12 x 60ml
398 kr.
Vanillu ístoppar 8 x 120ml
498 kr.
Góður ís á frábæru
verði í Bónus
BÝÐUR BETUR