Fréttatíminn - 17.12.2010, Síða 60
M eð dómi Héraðs-dóms
Reykjaness í máli
nr. S-464/2010, sem
kveðinn var upp 9.
desember sl., voru
tveir menn sýknaðir
af refsikröfu ákæru-
valds fyrir innflutn-
ing á rúmlega 3,7
kílóum af 4 -f lúor-
amfetamíni. Rökin
fyrir sýknudómnum
voru meðal annars
þau að efnið var
ekki á bannlista yfir
ólögleg fíkniefni við
innflutning þess. Að
kröfu Lögreglustjór-
ans á Suðurnesjum
og samkvæmt úr-
skurðum Héraðsdóms Reykjaness
sátu báðir mennirnir í gæsluvarð-
haldi vegnar rannsóknar málsins.
Annar frá 15. desember 2009 til 19.
febrúar 2010, en hinn frá 5. til 12.
janúar 2010.
Matsgerð Háskólans — Efni
ekki á bannlista
Með bréfi til Rannsóknarstofu
Háskóla Íslands í lyfja- og eitur-
efnafræði, dags. 15. desember
2009, fór lögreglan þess á leit að
hið innflutta efni yrði efnagreint
og styrkleikamælt, og niðurstaðan
send Lögreglustjóranum á Suður-
nesjum, sem fór með rannsókn
málsins. Með bréfi, dags. 7. janú-
ar 2010, var Lögreglustjóranum á
Suðurnesjum send matsgerð Rann-
sóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja-
og eiturefnafræði. Í matsgerðinni
segir:
4-flúoramfetamín er náskylt am-
fetamíni að gerð. Með vísan til 4.
gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og
fíkniefni m. síðari breytingum má
telja efnið til ávana- og fíkniefna.
Það er hins vegar ekki að finna
á lista í fylgiskjali I með reglu-
gerð nr. 848/2001 um (3.) breyt-
ingu á reglugerð nr. 233/2001 um
ávana- og fíkniefni
og önnur eftirlits-
skyld efni og telst
því ekki til ávana-
og fíkniefna, sem
óheimil eru á ís-
lensku yf irráða-
svæði.
Lögreglan leynir
matsgerðinni
Lögreglustjóranum
á Suðurnesjum var
því kunnugt um
það frá 7. janúar
2010 að efnið var
ekki á lista yfir
fíkniefni sem bönn-
uð eru á íslensku
yfirráðasvæði. Hjá
siðmenntuðum
þjóðum hefði nið-
urstaða matsgerðarinnar umsvifa-
laust verið kynnt sakborningum og
verjendum þeirra og líklega leitt
til þess að þeir væru án tafar látnir
lausir úr gæsluvarðhaldi.
Því er ekki að heilsa á Íslandi.
Þvert á móti ákvað Lögreglustjór-
inn á Suðurnesjum að halda þess-
ari vitneskju leyndri. Með þeirri
háttsemi braut Lögreglustjórinn
á Suðurnesjum gegn grundvallar-
mannréttindum sakborninganna
og stuðlaði að því að þeir sætu
áfram í gæsluvarðhaldi. Hinn 19.
janúar 2010 var krafa Lögreglu-
stjórans á Suðurnesjum, um áfram-
haldandi gæsluvarðhald yfir öðr-
um sakborninganna í málinu, tekin
fyrir í Héraðsdómi Reykjaness.
Við fyrirtöku kröfunnar hafði
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
búið yfir þeirri vitneskju í tólf
daga að innflutta efnið væri ekki
amfetamín og ekki á bannlista
yfir ólögleg fíkniefni. Gæsluvarð-
haldsfyrirtakan var kjörinn vett-
vangur fyrir Lögreglustjórann á
Suðurnesjum til að bæta fyrir brot
sitt á grundvallarmannréttindum
sakborninganna og upplýsa Hér-
aðsdóm Reykjaness og verjendur
í málinu um tilvist og niðurstöðu
matsgerðar Rannsóknarstofu Há-
skóla Íslands í lyfja- og eiturefna-
fræði. Það gerði Lögreglustjórinn
á Suðurnesjum ekki heldur kaus á
nýjan leik að halda vitneskju sinni
leyndri fyrir verjanda sakbornings-
ins og það sem alvarlegra er, einnig
fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Blekkingar lögreglu
Í gæsluvarðhaldskröfu Lögreglu-
stjórans á Suðurnesjum, dags.
19. janúar 2010, er ekkert vikið
að matsgerð Rannsóknarstofu
Háskóla Íslands í lyfja- og eitur-
efnafræði sem komst að þeirri
niðurstöðu að innflutta efnið væri
4-f lúoramfetamín sem er ekki
á bannlista yfir ólögleg fíkni-
efni á Íslandi. Þvert á móti segir
í gæsluvarðhaldskröfunni að hið
innflutta efni sé amfetamín þrátt
fyrir skjallega sönnun um annað.
Af þessu verður ekki annað ráðið
en að Lögreglustjórinn á Suður-
nesjum hafi vísvitandi ákveðið
að leyna tilvist matsgerðarinnar
fyrir Héraðsdómi Reykjaness og
verjanda sakborningsins við fyrir-
töku gæsluvarðhaldskröfunnar 19.
janúar 2010. Með þessu verður að
telja að Lögreglustjórinn á Suður-
nesjum hafi blekkt sakborninginn
og verjanda hans til þess að fall-
ast á gæsluvarðhaldskröfuna og
um leið Héraðsdóm Reykjaness til
þess að úrskurða sakborninginn
í gæsluvarðhald, en sakborning-
urinn og verjandi hans hefðu ekki
samþykkt gæsluvarðhaldskröfuna,
hefði niðurstaða matsgerðarinnar
legið fyrir.
Það var fyrst við skýrslutöku á
Litla-Hrauni, 8. febrúar 2010, sem
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
upplýsti annan sakborninginn í
málinu og verjanda hans um tilvist
matsgerðarinnar, en Lögreglustjór-
inn á Suðurnesjum hafði þá hald-
ið matsgerðinni leyndri í rúman
mánuð. Eftir því sem næst verður
komist var matsgerðin fyrst á með-
al málsgagna og gerð að umtals-
efni við gæsluvarðhaldsfyrirtöku í
Héraðsdómi Reykjaness 16. febrú-
ar 2010. Sakborningurinn mót-
mælti gæsluvarðhaldinu, en með
úrskurði, dags. 17. febrúar, sam-
þykkti Héraðsdómur Reykjaness
kröfuna með vísan til almanna-
hagsmuna þar sem sakborning-
urinn hefði játað að hafa ætlað að
flytja kíló af kókaíni til landsins.
Verjandi sakborningsins kærði úr-
skurðinn umsvifalaust til Hæsta-
réttar Íslands.
Dómur Hæstaréttar
Með dómi Hæstaréttar í máli nr.
97/2010, sem kveðinn var upp 19.
febrúar 2010, var gæsluvarðhalds-
úrskurður Héraðsdóms Reykja-
ness felldur úr gildi, meðal annars
með eftirfarandi rökstuðningi:
... en hann var handtekinn við
komu til landsins 14. desember
2009 grunaður um innflutning
fíkniefna. Reyndist hann vera með
í vörslum sínum 3.736,11 g af efni
sem líkist amfetamíni en er ekki á
skrá yfir ávana- og fíkniefni sem
bönnuð eru á íslensku yfirráða-
svæði. ... Eru skilyrði 2. mgr. 95.
gr. laga nr. 88/2008 fyrir því að úr-
skurða varnaraðila í gæsluvarðhald
ekki uppfyllt og verður hinn kærði
úrskurður felldur úr gildi.
Með dómi Héraðsdóm Reykja-
ness í sakamáli nr. 464/2010 voru
sakborningar sýknaðir af refsi-
kröfu ákæruvaldsins, meðal ann-
ars með sambærilegum rökstuðn-
ingi og er að finna í ofangreindum
dómi Hæstaréttar Íslands og
byggir á niðurstöðu matsgerðar
Rannsóknarstofu Háskóla Íslands
í lyfja- og eiturefnafræði, dags. 7.
janúar 2010, sem Lögreglustjórinn
á Suðurnesjum kaus að leyna fyrir
sakborningum, verjendum og Hér-
aðsdómi Reykjaness.
Saknæm og ólögmæt háttsemi
lögreglu
Með framangreindri ólögmætri og
saknæmri háttsemi sinni stuðlaði
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
að því að tveimur sakborningum,
sem síðar voru sýknaðir af öllum
refsikröfum ákæruvaldsins í hér-
aði, var gert að sæta gæsluvarð-
haldi mun lengur en þörf var á.
Slíkt virðingarleysi lögreglu gagn-
vart grundvallar mannréttindum
borgaranna er með öllu ólíðandi.
Með þeim vinnubrögðum Lög-
reglustjórans á Suðurnesjum sem
hér hefur verið lýst er jafnframt
vegið með alvarlegum hætti að því
trausti sem þarf óhjákvæmilega að
ríkja á milli lögreglu og dómara við
meðferð sakamála. Það traust þarf
lögreglan nú að endurvinna.
60 viðhorf Helgin 17.-19. desember 2010
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
hæstaréttarlögmaður og
verjandi annars sakborninga í
sakamáli Héraðsdóms Reykja-
ness nr. 464/2010.
Af þessu verður ekki annað ráðið en að Lög-
reglustjórinn á Suðurnesjum hafi vísvitandi
ákveðið að leyna tilvist matsgerðarinnar fyrir
Héraðsdómi Reykjaness og verjanda sak-
borningsins.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Héraðsdómur blekktur
Bls. 86
Barcelona
og dverg-
arnir þrír
Lionel Messi, Xavi
Hernández og Andrés
Iniesta eru tilnefndir
sem knattspyrnumenn
ársins 2010. Þeir eiga
það allir sameiginlegt
að spila með spænska
stórliðinu Barcelona.