Fréttatíminn - 17.12.2010, Blaðsíða 66
Bókardómur Íslenska BarnaorðaBókin
H ér á bæ er hilla lögð undir orðabæk-ur. Þær eru af ýmsu tagi – mættu gjarna vera fleiri, einhvers staðar
er latnesk orðabók sem ég vildi gjarna hafa
handbæra – í geymslu er önnur hilla með
orðabókum. Núorðið leita menn á neti að
orðaskýringum en það er ekki það sama og
að fletta bókinni. Orðabækur fyrir börn eru
sjaldséðir gripir. Þó fann ég tvær nýlegar
orðabækur fyrir krakka sem báðar eru í
notkun hér: Stóru myndaorðabókina sem
kom út 2007 á Eddutíma Máls og menn-
ingar og er algert möst á heimilum þar sem
tungumálanám stendur yfir; og svo Ensk-
íslenska, íslensk-enska Barnaorðabók frá
2008 sem er þýdd og staðfærð af Nönnu
Rögnvaldardóttur og gefin út af Máli og
menningu líka.
Þessi rit rifjuðust upp þegar inn um lúg-
una kom Íslensk barnaorðabók frá Máli og
menningu, útgáfan styrkt af Bókmennta-
sjóði, höfunda er ekki getið fyrr en á ann-
arri síðu; Ingrid Markan og Laufey Leifs-
dóttir hafa tekið bókina saman en Anna
Cynthia Leplar myndskreytir. Þetta er bók í
stóru broti, 175 x 245 mm í harðspjaldi, 250
blaðsíður. Í bókarlok eru nokkrar yfirlits-
myndasíður sem krakkar hafa alltaf gaman
af að skoða. Raunar er hver opna verksins
fýsileg forvitnum stautara, orðasafnið er
með helstu upplýsingum, beygingardæm-
um og skýringarsetningum. Allt er þetta
einfalt og skýrt. Hver opna er skreytt
minnst tveimur smámyndum eftir Önnu í
lit. Þessi bók er afbragð ungum lesanda,
fallega umbrotin og vönduð að allri gerð
þótt hún sé erlent prent.
Mál og menning er merkilegt forlag
þótt það sé orðið útihús í bræðraborg arfa
Afbragð fyrir unga lesendur
Ný íslensk barnaorðabók frá Máli og menningu er falleg og vönduð að allri gerð.
Íslensk
barnaorðabók
Ingrid Markan og Laufey
Leifsdóttir
Myndlýsingar: Anna
Cynthia Leplar
250 bls. Mál og menning
66 bækur Helgin 17.-19. desember 2010
Bókadómar
óvæntur
smellur
Sumarlandið – Fram-
liðnir lýsa andláti
sínu og endurfundum
í framlífinu eftir
Guðmund Kristinsson
er óvæntasti smellur
ársins. Er í 7. sæti á
aðallista Eymundsson.
Valdimars Jóhannssonar. Erindi metn-
aðarfullra forlaga á okkar örsmáa mark-
aði er brýnt, sumpart til að halda andliti
í því flóði afþreyingartexta sem út spýt-
ist, sumpart til að viðhalda sér. Hafi ný
kynslóð lesenda ekki aðgang að sæmi-
legum orðaforða er viðbúið og yfirvof-
andi að orðfæðin leggist yfir andlegt líf
okkar allra og þá hættir að sjást til veðurs
í samfélaginu í flestum skilningi. Barna-
orðabókin er því nauðsynlegt hreinsitæki
í slæmu málsamfélagi. Og þótt börn og
unglingar móti málið með sínum hætti
þarf ekki lengi að skoða sig um á fjas-
bókinni til að sjá að orðfæðin er skæð-
ur smitsjúkdómur. Auðvelt er að lenda í
rausástandi eftir þá heimsókn.
En svo má böl bæta ... Víst er sköpun-
argáfa ungra talenda vanmetin og mætti
að ósekju vinna með hana skipulega á
ákveðnum aldursskeiðum í skólakerfinu,
hefðu kennarar til þess hugkvæmni og
úthald. En í millitíðinni geta foreldrar
tryggt sér passa fyrir krakkana sína inn
í upplýsta málheima með því að hafa orða-
bók sem þessa uppi við og gera hana að
hversdagslegu brúkstæki í samtali heim-
ilisins.
Hafi höfundar, upphafsmenn og útgef-
andi þökk fyrir þennan kostagrip.
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
skrímsli á toppnum
Áslaug Jónsdóttir, Kalle Guettler,
Rakel Helmsdal.
32 bls. Mál og menning
Bókaröð um
skrímsli
Sjötta bókin í röðinni
um skrímslin, litla og
stóra, er komin út,
Skrímsli á toppnum.
Þeir félagar eru nú
að takast á við loft-
hræðslu. Líkt og í fyrri
bókunum halda höf-
undarnir norrænu fast
um stílinn í knöppum
skýrum textum og
myndatækninni sem
Áslaug Jónsdóttir ber
alla ábyrgð á. Bókin
er fyndin og falleg
og kærkomin viðbót í
ritröðina. -pbb
Grallarar í gleðileit
Björk Bjarkadóttir
36 bls. Mál og menning
Ferill Bjarkar
Björk Bjarkadóttir á nú
orðið að baki röð harð-
spjaldabóka fyrir börn.
Hún er að þróast sem
höfundur, tækni hennar
í myndvinnslunni að
skríða fram í lifandi
teikningum sem hún
leggur stundum ofan
í mynstur. Myndirnar
hennar standa nærri
einföldum barna-
teikningum, þær eru
lifandi og spennandi.
Texti sögunnar sem nú
hefur bæst við er fyrir
fullorðna lesendur, en
allar bækur hennar
eru á langveginn og
heimta því lestur í sæti
eða við borð, brotið
er óhentugt til lestrar
undir sæng. Það breytir
því ekki að hér er
listavel unnið efni og til
fyrirmyndar. -pbb
Hringaló og Grýla
Steinar Berg og Brian Pilkington
46 bls. Fossatún
Steinar og tröll
Í Fossatúni er í upp-
byggingu fjölskyldu-
garður og þar hefur
frömuðurinn Steinar
Berg opnað skjöl fyrir
tröll. Úr umhverfinu
spinnur hann á bók,
sem Brian Pilkington
myndlýsir, nýjar
tröllasögur. Telst mér
til að Hringaló og Grýla
sé þriðja bókin í þessari
röð. Sögur Steinars
eru til lestrar fyrir ung
börn og fullorðnum til
skemmtunar. Stíllinn
er víða þunglamalegur
en söguefnið unnið af
hugmyndaríki og lif-
andi áhuga á að halda
söguhefðum íslenskum
lifandi fyrir nýjum kyn-
slóðum. -pbb
Ég er að fara í ferð / ég finn ég
bara verð, segir í ferðakvæði
Þórarins Eldjárn og undir lýsir
Sigrún Eldjárn opnu með krakka
að sleikja ís við bílrúðu. Úti blæs
vindur flugdreka, ungi litli flýr
úr rammanum, það eru fjöll með
hettum, snjókarl sem ekki rím-
ar, burstabær og útlent tré. Sam-
virkar yrkingar þeirra Eldjárna
í mynd og máli eru nú að verða
bálkur, nýja harðspjaldabókin
þeirra ber heitið Árstíðir og þar
skauta þau saman um íslenska
loftslagið. Vetur, sumar, vor og
haust eru ramminn um nýju bók-
ina.
Kverið er dægilegasta skemmt-
un, Þórarinn er svo afslappaður í
ríminu, flippar út í annarri hverri
línu í sínum absúrd húmor, smit-
aður af málinu sem leiðir hann
áfram eins og talandi skáldum er
svo hætt. Margt verður honum
að yrkisefni í bókarrammanum:
slátur, leysing í bæjarlæk, sól-
gleraugu og jarðarberjaís. Hann
hikar ekki við að elta forvera
sína, Jónas lítur við. Þá koma
hér við sögu kverúlantar hans
en af þeim geymir hann skápa-
fylli: hér kynnumst við Sumar-
liða á Mel sem er flugufælinn
pöddupati.
Undir þessu liggja svo myndir
Sigrúnar – pastell ef mér skjöpl-
ast ekki, stórir grunnar með
meginefni og faraldi sem færist
síðu af síðu, leiðarhnoða samsett
af ís, snjókarli, jarðarberi og ung-
anum fyrrnefnda. Litir eru heil-
ir og sterkir, fígúrur allar með
Sigrúnarlaginu og á stöku stað
stungið inn mynsturbekkjum.
Þessa bók má leggja í safnið
með hinum listaverkunum sem
verða, þegar talið er saman, ein-
hver dægilegasti samsetningur
sem Svarfaðardalurinn hefur
skilað okkur á liðnum áratug-
um. Megi þau lengi rýma og
ríma. -pbb
Eldjárnabít
Árstíðirnar
Sigrún og Þórarinn Eldjárn
36 bls. Veröld
Bókardómur ÁrstÍðirnar siGrún oG þórarinn eldjÁrn
Upprennandi lestrarhestar. Hver opna barnaorðabókarinnar er fýsileg fyrir forvitna stautara. Ljósmynd/Hari
Har so inn krimmi
sem hittir í mark
„Hröð, spennand
i og
sniðug glæpasa
ga …
flott frumraun h
já
Óskari Hrafni.“
Guðríður Hara
ldsdót tir / Vika
n