Fréttatíminn - 17.12.2010, Side 102
102 dægurmál Helgin 17.-19. desember 2010
J á, já, já. Hann þekkir mig alveg og tekur mér fagnandi þegar ég kem að búrinu,“ segir Herdís, sem er
komin yfir áttrætt og hefur haft gætur
á Kobba í um það bil tuttugu ár. „Hann
er stundum sofandi en þegar ég ávarpa
hann opnar litla greyið augun og er svo
vingjarnlegur. Hann sperrist allur upp
þegar hann sér mig og þá vaknar hjá mér
samviskubit yfir því að hafa ekki reynt að
fá hann settan í stærra búr,“ segir Her-
dís sem hefur stundum áhyggjur af því
að hinn fiðraði félagi hennar þurfi meira
rými.
„Ég flutti í hverfið fyrir rúmum þrjátíu
árum og þá var Blómaval í Sigtúni. Ég
hef fylgst með honum frá því hann kom
þangað. Ég stoppa alltaf hjá honum og
spjalla aðeins við hann. Blómaval flutti
fyrir nokkrum árum og heimsóknum
mínum til hans hefur fækkað eftir það
en ég lít samt til hans af og til. Ég veit að
honum var stundum hleypt út úr búrinu
sínu í Sigtúni eftir að versluninni var
lokað og konurnar voru að ganga frá. Þá
fékk hann að labba um; ég held að hann
sé ekki vel fleygur. En hann stendur vel
fyrir sínu, laðar að sér krakka og fólk
staldrar við hjá honum.“
Lára Jónsdóttir hjá Blómavali segir að
ekki væsi um Jakob hjá þeim enda eigi
hann allnokkra vini úr hópi viðskipta-
vina búðarinnar og starfsfólkið passi
upp á að gera vel við hann í mat. „Hann
þarf að hafa aðgang að góðu korni og svo
fær hann líka epli.“ Segja má að Kobbi
sé gestur í Blómavali sem hefur heldur
betur ílengst. „Hann kom til landsins
með flugmanni og var lengi vel á einka-
heimilum og um skeið í Húsdýragarð-
inum en þaðan kom hann til okkar,“
segir Lára. „Fuglinn er mikil félagsvera
og eigandi hans, sem hefur tengsl við
Blómaval, taldi víst að þar yrði honum
best borgið þar sem hér er auðvitað stöð-
ugur straumur af fólki.“
Láru telst til að Kobbi hafi verið í
Blómavali í upp undir tuttugu ár og hún
segir hann hafa eignast marga vini á
þessum tíma. Margir koma reglulega
og spjalla við hann og sumir geta jafnvel
kallað til hans þegar þeir koma inn og þá
svarar hann. Hann lærir að þekkja fólk
sem umgengst hann reglulega og sum-
um sem hann þekkir vel leyfir hann að
klóra sér í hnakkanum. En hann splæsir
því ekki á alla.“ toti@frettatiminn.is
páfagaukurinn Jakob á traustan vin í Herdísi tryggvadóttur
ragnar Jónasson varð persóna í glæpasögu
Áralöng vinátta konu og fugls
Herdís Tryggvadóttir var árum saman nágranni páfagauksins Jakobs, eða Kobba, á meðan
hann hélt til í Blómavali í Sigtúni. Hún hefur litið inn hjá fuglinum reglulega og segir þeim
hafa orðið vel til vina. Þau hittast sjaldnar eftir að Blómaval flutti sig um set.
g læpasagnahöfundurinn Ragnar Jónasson, sem er á bólakafi í jólabókaflóðinu
miðju með bók sína Snjóblindu, er
einnig persóna í nýjum reyfara rit-
höfundarins Söndru Balzo sem
gerir út á sömu mið og Ragnar á
ólíkt stærri markaði í Bandaríkj-
unum.
„Þannig er mál með vexti að
síðastliðinn vetur bað Sandra mig
um leyfi til nefna sögupersónu hjá
sér Ragnar,“ segir Ragnar. Sandra
kom til Íslands vorið 2009 þegar
hún tók þátt í alþjóðlegri ráðstefnu
glæpasagnahöfunda en hún hefur
notið vinsælda fyrir reyfara sína
sem gerast í Wisconsin í Banda-
ríkjunum. Í bókum hennar leysir
kaffihúsaeigandinn Maggy Thor-
sen, sem er af norskum ættum,
sakamál eins og henni sé borgað
fyrir það.
Nýjasta bók hennar, A Cup of Jo,
er komin út og þar kemur Ragnar
nokkuð við sögu. „Ég er byrjaður á
bókinni og bíð spenntur eftir sögu-
lokum, en vona að Ragnar reynist
ekki vera morðinginn,“ segir nafni
persónunnar, Ragnar Jónasson.
Ragnar ákvað að gjalda Söndru í
sömu mynt og gaf því sögupersónu
í bókinni sinni, Snjóblindu, nafn-
ið Sandra. „Sandra kemur tölu-
vert við sögu í Snjóblindu. Hún er
reyndar áratugum eldri en nafna
hennar, afar indæl kona sem býr
á dvalarheimilinu á Siglufirði og
býr yfir mikilvægum upplýsingum
í málinu. Ég hugsa að þeim nöfnum
kæmi vel saman.“ -þþ
Vonast til að vera ekki morðinginn
Hlín Einarsdóttir ritstjóri fór af stað með
vef sinn bleikt.is með miklum látum fyrir
sléttri viku. Vefurinn er sagður ætlaður
drottningum og tekur á öllu milli himins og
jarðar um samskipti kynjanna, útlit og tísku.
Hlín virðist hafa fengið óskabyrjun þar sem
tæplega 71.000 notendur sóttu vefinn heim
fyrstu dagana eftir opnun föstudaginn
10. desember. Þessi aðsókn myndi duga
til að fleyta bleikt.is örugglega inn á lista
Modernus yfir tíu mest sóttu vefi landsins.
Vefurinn er þó ekki aðeins vinsæll heldur
líka umdeildur og þannig ærðu ummæli
Sveins Andra Sveinssonar lögmanns, um
konur, margan óstöðugan netverjann og
mikið fór fyrir gagnrýni og óánægju með
orð Sveins Andra á Facebook og víðar.
Bleikt.is byrjar með látum
Ellý Vilhjálms alltaf vinsæl
Það virðist ekki minnka eftirspurnin eftir lögum
Ellýjar Vilhjálms eftir því sem
árin líða. Heyr mína bæn, nýr
þrefaldur safndiskur með söng
hennar, er kominn í annað
sæti Tónlistans, metsölulista
Félags íslenskra hljómplötuútgefenda. Safnið
skýtur ástsælum listamönnum á borð við Bubba
Morthens, Pál Rósinkranz og Ragga Bjarna ref
fyrir rass. Ellý nær þó ekki að koma Baggalúts-
mönnum af toppnum sem tróna þar með jólaplötu
sína, Næstu jól.
30.000 eintök af Furðuströndum
Bókin Furðustrandir eftir Arnald Indriðason hefur
nú verið prentuð í 30 þúsund eintökum. Von er á
þriðju prentun um helgina en bókin hefur slegið
rækilega í gegn. Hún er nú þegar mest selda bók
ársins. Furðustrandir hefur fengið fína dóma og eru
flestir gagnrýnendur á þeirri skoðun að þetta sé
besta bók Arnaldar til þessa.
Jósef Presley tróð
upp á jólamarkaði
Jósef Ólafsson, oft kallaður
hinn íslenski Elvis Presley, sló í
gegn á jólamarkaðnum við Ell-
iðavatn um síðustu helgi. Jósef
mætti í fullum skrúða, eins og
hans er von og vísa, og tryllti
mannskapinn með vel völdum
Presley-slögurum. Sérstaka
lukku vakti þegar hann tók Blue
Christmas. Skógræktarfélag
Reykjavíkur stendur fyrir mark-
aðnum en félagið er einnig með
markað í Kauptúni Garðabæ.
Páfagaukurinn Kobbi er ræðinn og kann vel að meta félagsskap. Hann tekur Herdísi vinkonu sinni ætíð fagnandi. Ljósmynd Hari.
H
A
LL
E
™
, H
A
LL
E
B
E
R
R
Y
™
B
el
la
h
B
ra
nd
s
In
c.
www.halleberryfragrances.com
Hann er
stundum sof-
andi en þegar
ég ávarpa
hann opnar
litla greyið
augun og er
svo vingjarn-
legur.
Ég er byrjaður
á bókinni og bíð
spenntur eftir
sögulokum, en
vona að Ragnar
reynist ekki vera
morðinginn.
Ragnar hefur
ekki komist að
því hvort hann
er morðinginn
í nýjustu bók
Söndru Balzo.