Læknablaðið - 15.09.1986, Side 5
LÆKNABLAÐIÐ 1986; 72: 185-90
185
Jóhann Heiðar Jóhannsson, Bjarni Þjóðleifsson, Ólafur Steingrímsson.
RISTILBÓLGA AF VÖLDUM CAMPYLOBACTER
JEJUNI
Vefjabreytingar í ristilsýnum 1980 til 1982 og samanburðargreining við
ristilsárabólgu
ÚTDRÁTTUR
Þessi grein fjallar um rannsókn á níu
sjúklingum með iðrabólgu af völdum Cam-
pylobacter jejuni. Campylobacter ræktaðist
úr hægðum í 67 tilvikum (1.67%) af 4019
saursýnum, sem send voru sýkladeild
Landspítalans á tveggja ára tímabili frá
október 1980 tii september 1982. Við könnun
á ferli þessarra sjúklinga fannst, að ristil-
speglun hafði verið gerð hjá níu þeirra og að
slímhúðarsýni höfðu verið tekin í vefja-
rannsókn hjá fimm sjúklinganna. Vefjasýnin
voru öll endurskoðuð.
Einkenni og vefjabreytingar, sem finnast
við bráða iðrabólgu (enterocolitis acuta) af
völdum sýkinga, geta líkst ristilsárabólgu
(colitis ulcerosa). Þau tilfelli, sem hér er lýst
af iðrabólgu af völdum Campylobacter je-
juni, undirstrika þetta vandamál. Nauðsyn-
legt er að hafa iðrabóigu af völdum Cam-
pylobacter í huga við rannsóknir sjúklinga
með slík einkenni, svo sem niðurgang,
blóðugar hægðir, kviðverki og hita, og að
gera bæði viðeigandi vefjarannsókn (1) og
sýklaræktun á niðurgangshægðum.
INNGANGUR
Campylobacter jejuni er bakteríutegund,
sem kom fram á sjónarsviðið á síðasta áratug
og er mikilvæg orsök bráðrar iðrabólgu og
niðurgangs hjá börnum og fullorðnum (2).
Hún er nú talin ein algengasta orsök niður-
gangs af völdum sýkinga á Vesturlöndum (3,
4). Á íslandi (5) og í Noregi (6) finnst Cam-
pylobacter hins vegar ekki eins oft og Sal-
monella við rannsókn á niðurgangshægðum.
Ekki er ljóst hvað veldur því, að Campylo-
bacter er sjaldgæfari hér á landi, en hugs-
anlega hafa kalt loftslag og veðurfar áhrif,
Frá Rannsóknaslofu Háskólans í meinafræði, lyfjadeild og
sýkladeild Landspítalans. Barst 28/05/1986. Samþykkt 02/06/
1986.
því að á Vesturlöndum greinast C. jejuni
sýkingar sjaldnar að vetrarlagi (4).
Þessi bakteríutegund hefur verið þekkt frá
því um aldamótin 1900, undir nafninu Vibrio
fetus (4). Hún veldur fósturlátum hjá naut-
gripum og sauðfé og iðrabólgu hjá kálfum
og grísum (2). Fyrst tókst að rækta Vibrio
fetus frá manni árið 1947, en næstu árin þar
á eftir ræktaðist sú baktería stundum frá
fólki með sýkingar í kjölfar annarra
sjúkdóma (4). Árið 1957 fundust bakteríur
líkar Vibrio fetus hjá fólki með bráða
iðrabólgu og voru þær kallaðar vensluð
víbríó (related vibrios) (7). Þessar bakteríur
höfðu þó önnur sérkenni og þurftu önnur
vaxtarskilyrði en aðrar tegundir Vibrio og
því var lagt til árið 1963, að þær yrðu, ásamt
Vibrio fetus, látnar tilheyra nýrri ættkvísl
(genus), sem hlyti nafnið Campylobacter.
Það nafn er úr grísku (kampylos + bakteri-
on), þýðir boginn stafur (4) og mætti á ís-
lenzku kallast bogasýkill.
Tegundir Campylobacter eru orðnar all
margar (8), en fullt samræmi er ekki í
nafngiftum þeirra. Til dæmis eru þær bak-
teríur, sem hér eru nefndar Campylobacter
jejuni, oft flokkaðar í tvær tegundir C. je-
juni og C. coli. Einnig er algengt, sérstaklega
í breskum greinum, að báðar tegundirnar séu
nefndar Campylobacter coli. Þá eru þessar
bakteríur stundum nefndar Campylobacter
fetus subspecies jejuni/coli.
Fullnægjandi aðferðir og æti til að rækta
Campylobacter úr hægðum komu ekki fram
fyrr en á árunum 1972 til 1977 (2, 9, 10).
Síðan virðist C. jejuni vera ein algengasta
bakterían, sem ræktast úr niðurgangs-
hægðum, en hún finnst hins vegar sjaldan
eða ekki í hægðum hjá heilbrigðu fólki á
Vesturlöndum (3, 4). Campylobacter hefur
verið talin mun algengari í heitu löndunum,
en finnst þó í vaxandi mæli á norðlægum
slóðum (3, 4).
Seinni hluta sumars árið 1980 var kannað