Læknablaðið - 15.09.1986, Blaðsíða 27
LÆKNABLAÐIÐ
203
- barna í tveggja foreldra fjölskyldu, sem
fædd eru síðar en 1. október 1983,
þangað til þau eru 5 ára;
Þessu til viðbótar geta ríkin einnig tryggt þá
sem teljast læknisfræðilega þurfandi (med-
ically needy). Þrjátíu og fjögur ríki hafa á
þennan máta stækkað þann hóp sem Med-
icaid nær til. í þessum hópi eru þeir, sem
hafa tekjur aðeins umfram framfærslu-
hámörk en
- eru aldraðir, blindir, fatlaðir eða í fjöl-
skyldu með börn á framfæri;
- tekjur þeirra (að frádregnum útgjöldum
vegna lækniskostnaðar) falla undir
hámarkið sem sett er fyrir læknisfræðilega
þurfandi.
Þeir sem njóta Medicaid sem læknisfræði-
lega þurfandi eru taldir um 25% alls þeirra
sem Medicaid nær til, en um helmingur
útgjalda Medicaid er vegna þessa hóps.
Mynd 5 sýnir hverjir njóta þjónustu Med-
icaid og hvernig kostnaður Medicaid skiptist
á milli nópanna.
3.2 Hvað tryggir Medicaid?
Ríkin verða með Medicaid að tryggja þeim
sem taldir eru þurfandi skv. skilgreiningu
eftirfarandi þjónustu:
- sjúkrahúsvist (aðra en berklahæli og
geðdeildir)
- göngudeildarþjónustu sjúkrahúsa;
- læknisþjónustu;
- rannsóknastofu- og röntgenþjónustu;
- hjúkrunarheimilisþjónustu fyrir þá sem
eru eldri en 21 árs;
- heimahjúkrun fyrir þá sem rétt eiga á
hjúkrunarheimilisþjónustu;
- skim, sjúkdómsgreiningu og meðferð fyrir
þá sem eru yngri en 21 árs (early and pe-
riodic screening, diagnosis and treatment);
- fjölskylduáætlun (family planning services
and supplies);
- heilsugæsluþjónustu í dreifbýli innan
þeirra marka sem lög ríkisins kveða á um;
- ljósmæðraþjónustu;
Þessu til viðbótar geta ríkin tryggt innan
Medicaid eftirfarandi þjónustu:
- lyf;
- sjúkrahótel (intermediate care facilities);
- gleraugu;
- dvöl á geðdeild fyrir einstaklinga yngri en
21 árs eða eldri en 65 ára.
Ríkin geta hins vegar takmarkað þá þjónustu
sem þau veita með Medicaid, bæði þá
þjónustu sem þeim ber skylda til að veita og
hina, sem þau kjósa að veita. Þannig geta
þau takmarkað þann fjölda sjúkrahúsdval-
ardaga, sem tryggður er, eða fjölda lækn-
isheimsókna. Jafnframt geta þau sett hvers
konar eftirlit á þjónustuna, t.d. krafist
fyrirfram samþykkis vegna læknisaðgerða.
Mynd 6 sýnir skiptingu útgjalda Medicaid.
Þau ríki sem láta Medicaid einnig ná til
þeirra sem teljast læknisfræðilega þurfandi
verða a.m.k. að tryggja þeim eftirfarandi
þjónustu:
- utanstofnanaþjónustu fyrir börn;
- mæðravernd;
- fæðingarhjálp.
3.3 Greiðsla fyrir þjónustu Medicaid
Ríkjunum er að mestu leyti í sjálfsvald sett
hvernig þau haga greiðslum Medicaid fyrir
Aldraðir 15<7o (Kostnaður 17°7o) ^ Undir 21 árs 45°o
\ (Kostnaður 12°'o)
Fatlaðir 15<To /ct CC CVV
(Kostnaður 36^o)
Foreldrar með börn 25<fl>vC£CCCC> (Kostnaður 14*Vb)
Mynd 5. Hlutfallsskipting þeirra sem njóta þjónustu
Medicaid og skipting kostnaðar á hópana.