Læknablaðið - 15.09.1986, Blaðsíða 6
186
LÆKNABLAÐIÐ
lauslega á sýkladeild Landspítalans, hvort C.
jejuni fyndist í saursýnum sjúklinga með
niðurgang og greindust strax tvö tilfelli (11).
Síðan hefur komið í ljós, að Campylobacter
er önnur algengasta bakterían, sem ræktast
úr niðurgangshægðum á íslandi (5).
Campylobacter jejuni iðrasýking veldur
slimhúðarskemmdum í mjógirni og ristli (4)
með klínískum einkennum og vefjabreyting
um, sem eru óþekkjanleg frá öðrum iðra-
sýkingum og stundum einnig frá rist-
ilsárabólgu (colitis ulcerosa) (3, 12, 13).
Þessi grein fjallar um vefjarannsókn á
ristilsýnum frá nokkrum íslenzkum sjúk-
lingum með iðrabólgu og niðurgang af völd-
um C. jejuni.
AÐFERÐIR
Frá því 1. október 1980 hefur öllum saur-
sýnum, sem borist hafa sýkladeild
Landspítalans, verið sáð á sérstakt æti fyrir
Campylobacter, Skirrow’s-æti, auk æta fyrir
Salmonella, Shigella og Yersinia (2). Fyrstu
24 mánuðina bárust 7213 saursýni frá 4019
einstaklingum og ræktaðist Campylobacter
úr 67 þeirra (1.67%).
Ferill þessara 67 sjúklinga var kannaður,
með því að skoða sjúkraskýrslur þeirra og/
eða hafa við þá viðtöl um einkenni og gang
sjúkdómsins. I ljós kom, að ristilspeglun
hafði verið gerð hjá níu þeirra og að vefja-
sýni höfðu verið tekin hjá fimm sjúklingum.
Hjá einum þeirra voru vefjasýni tekin tvi-
svar, fyrst meðan sjúklingurinn var með
blóðugan niðurgang og aftur, þegar
sjúkdómurinn var í bata.
Slímhúðarbitar, teknir við ristilspeglun,
voru hertir (fixeraðir) á venjulegan hátt í
10% formalíni, steyptir inn í paraffín, vefir
skornir í 5 míkrona þykkar sneiðar og þær
litaðar með hematoxýlín-eósín-aðferð.
Vefjasneiðarnar voru allar endurskoðaðar af
sama meinafræðingi (JHJ), án vitneskju um
niðurstöðu úr fyrri vefjagreiningu og var nú
sérstaklega leitað að ummerkjum ristilbólgu.
NIÐURSTÖÐUR
Ferill þessara níu sjúklinga, sem voru ristil-
speglaðir, var sérstaklega kannaður, sjá töflu
I. Allir greindust þeir að sumarlagi, frá júní
til október, einn sjúklingur á árinu 1980, sjö
sjúklingar 1981 og einn sjúklingur 1982.
Sjúklingarnir voru á aldrinum eins árs til
68 ára, en meðalaldur var 23 ár. Fjórir
sjúklinganna áttu heima á Akureyri, þrír í
Reykjavík og tveir annars staðar.
Að svo miklu leyti sem hægt er að átta sig
á smitun, virðast þeir allir hafa smitast á
íslandi, en sérstaklega má geta þess, að fjórir
höfðu umgengist húsdýr eða gæludýr og þar
af höfðu tveir örugglega smitast af sýktum
nautgripum. Annar þeirra hafði auk þess
neytt ógerilsneyddrar mjólkur um tíma.
Allir sjúklingarnir höfðu haft niðurgang
og átta af níu blóðugar hægðir, en sjö af niu
Tafla I. Sjúkdómseinkenni og það sem fannst við ristiispeglun hjá níu sjúklingum með iðrabólgu af völdum
Campylobacter.
Aldur Blóö í hægöum Hiti Kviðverkir Uppköst Liðverkir Ristilspeglun Vefjasýni
1 ár + + - - - Blæðingar, bjúgur, stökk slímhúð Já
6 ár + - + + - Blóðfylla Nei
8 ár + + + + + Blæðingar Blóðfylla Já Já
13 ár + + - + - Blóðfylla, blæðingar Já
16 ár + + + - - Bjúgur, smásár, slímhúðarhnökrar, aukið slím Já
27 ár + + + + - Dreifð smásár, slímhúðarhnökrar Já
28 ár + + + + + Blæðingar Já
40 ár + - + + - Eðlileg Nei
68 ár - + - + - Eðlileg Nei