Læknablaðið - 15.09.1986, Blaðsíða 52
220
LÆKNABLAÐIÐ
og gjaldkera Finnbogi Jakobsson og Ólafur
Z. Ólafsson.
Endurskoðandi var kjörinn Einar
Jónmundsson og til vara Þorkell Bjarnason.
í Gerðardóm var kjörinn til 2ja ára Gunn-
(laugur Snædal og varamaður hans Víkingur
H. Arnórsson.
í fundarlok gerði fráfarandi formaður
nokkra grein fyrir umræðum á Læknaþingi
daginn áður um efnið: »Rannsóknir á
íslandi, fjármögnun«.
Á þinginu höfðu komið fram tilmæli um,
að stjórn L.í. beitti sér fyrir framgangi frum-
varps til laga um stofnun rannsókna- og
visindaráðs hér á landi.
Ákveðið var, að aðalfundur L.í. 1986 yrði
haldinn á Sauðárkróki.
Sjá nánar fundargerð aðalfundarins i Lbl.
5/1986.
Stjórnarfundir
Stjórn L.í. kemur saman til formlegra funda
að jafnaði vikulega, þó strjálla á sumrin. Á
tímabilinu 1. okt. 1985 til 15. júlí 1986 voru
fundirnir 31 talsins. Að jafnaði eru því oftast
rúmir 9 dagar milli funda, og eru þetta
tveggja til fjögurra tíma fundir. Fæst voru 5
mál bókfærð á fundi, flest 22, að meðaltali
11. Sameiginlegir fundir stjórna L.í. og L.R.
voru fjórir á tímabilinu.
Fundur stjórnar L.í með fulltrúum
svæöafélaga o.fl.
Skylt er að lögum L.Í., að stjórn þess boði
fulltrúa svæðafélaga til fundar a.m.k. einu
sinni milli aðalfunda. Æskilegt er, að sá
fundur sé haldinn því sem næst mitt á
milli aðalfunda. í mörg ár hefur aðalfundur
verið haldinn annað hvert ár í Reykjvaík í
september, en hitt árið utan Reykjavíkur í
júní eða ágúst. Tímabil milli aðalfunda eru
þannig breytileg, allt frá u.þ.b. 8 mánuðum
til u.þ.b. 16 mánaða eftir atvikum. Hvort
heldur sem skammt er eða langt á milli aðal-
funda, ætti slikur fundur þó að vera í
janúar-febrúar. Þótt þeir mánuðir séu að
öðru jöfnu kjörnir til fundarhalda, kunna
þeir að reynast veðurfarslega óhentugir til
ferðalaga, þegar svo hagar til, að mönnum
frá öllum landsins hornum er gert að stefna
samtímis til eins staðar. Hefur því myndast
hefð að halda fundinn að vori, oftast í apríl.
Að þessu sinni var fulltrúafundi ekki við
komið fyrr en 10. maí 1986. Þótt svo áliðið
væri vors, varð fulltrúi eins svæðafélags að
boða forföll vegna ófærðar, en þess utan
komu þrjú önnur svæðafélög því ekki við
að senda fulltrúa á fundinn þessu sinni. Þann-
ig sóttu fundinn i maí því miður aðeins
fulltrúar frá helmingi svæðafélaganna (auk
áheyrnarfulltrúa frá einu félagi ísl. lækna
erlendis, og frá Félagi ísl. heimilislækna).
Það er von stjórnar L.Í., að hér valdi tilvil-
janir fremur en dvínandi áhugi lækna á
félagsmálefnum sínum. Fundargerð hefur
verið send svæðafélögunum, en
dagskrárliðir voru: 1) Greinargerð um
afgreiðslu ályktana aðalfundar 1985, 2)
Orlofsheimilamál, 3) Útgáfumál, 4) Staðan í
framhaldsmenntunarmálum lækna í Banda-
ríkjunum, 5) Kjaramál, þ.á. m. kynning á
störfum kjarasamanburðarnefndar, 6)
Framtiðarspár um læknaþörf - niðurstöður
SNAPS vinnuhópsins, 7) Nýliðun heimilis-
og heilsugæslulækna í Reykjavík, 8) Önnur
mál.
Alls sátu fundinn 12 læknar auk fram-
kvæmdastjóra.
Afgreiðsla ályktana aðalfundar 1985
LJm birtingu úrskurða Siðanefndar
Að höfðu samráði við Siðanfnd var
ákveðið, að eftirleiðis yrðu úrskurðir
Siðanefndar birtir í Fréttabréfi lækna, en
biðu ekki útkomu ársskýrslu eins og verið
hefur.
Um kaup á orlofsíbúð í Reykjavík
Keypt var 4ra herbergja íbúð að Ljósheimum
22 þ. 21. febrúar 1986. Kaupverð var kr.
2.000.000.00. íbúðin var afhent Orlofsnefnd
1. júní, og er nú verið að leggja á ráð um
breytingar og kaup á húsbúnaði og öðru,
sem til þarf, til að dvöl þar verði sem á-
nægjulegust.
Framlag til Nesstofu
Stjórn L.í. afhenti þjóðminjaverði
fjárhæðina í Nesstofu 8. okt. 1985.
Um fjárframlag vegna undirbúnings að
ritun sögu félagsins er ritað annars staðar
í skýrslunni.
Sala límmiða með póstföngum lœkna
Nokkuð hefur verið um sölu límmiða. Að-
eins 3 læknar hafa óskað eftir, að nöfn
þeirra væru ekki afhent i þessum tilvikum.