Læknablaðið - 15.02.1990, Page 29
LÆKNABLAÐIÐ
103
Table III. Effective cumulative rates (with dropouts). Life table.
Cycle n Patients n Dropouts open cases n Sucesses n {%) Cumulative rates per 1.000
1 .......................... 74 0 18 24.3 243
2 ........................... 56 3 12 21.4 405
3 ........................... 41 0 5 12.2 472
4 ........................... 36 0 6 16.7 554
5 ........................... 30 0 3 10.0 549
6 ........................... 27 2 3 11.1 635
6+.......................... 22
Glýseróli var blandað í ferskt sæði til að verja
það frostsköðum, þetta gert við sótthreinar
aðstæður og hrært í á meðan með segulbút.
Eftir blöndun var lausnin með það sama
dregin upp í plaststrá sem taka 0,5 ml hvert,
þau innsigluð með pólývínýlvaxi og sett lárétt
í köfnunarefnisgufu, en síðan eftir smástund
í fljótandi köfnunarefni við -196°. Sæðið var
þítt upp við stofuhita rétt fyrir notkun (2).
Sœðingaraðferðin. Leitast var við að hafa
sæðinguna 24-48 klst fyrir áætlað egglos,
samkvæmt raunhitariti.
Fylgst var daglega með breytingum er verða á
leghálsi þegar líður að egglosi. Æskilegast er
að sæða þegar leghálsgangurinn er vel opinn,
nóg er þar af slími og það vel teygjanlegt
(spinnbarkeit ca 10 cm (3)).
í nokkrum hagstæðum tilfellum var ein
sæðing á tíðahring látin nægja, en oftast voru
sæðingamar tvær með 24-48 stunda millibili. I
nokkmm tilvikum virtist egglos hafa tafist og
var þá sætt í þriðja skiptið.
Við hverja sæðingu var 0,5 ml af frostvörðu
sæði sprautað beint úr plaststráinu inn
í leghálsganginn og í fomix posterior
(intracervical-intravaginal instillation), með
konuna liggjandi í gýnlegu. A eftir var konan
annaðhvort höfð liggjandi í 30-45 mínútur
eða að hetta var sett á leghálsinn rétt fyrir
sæðinguna. Hetta þessi, hönnuð af Millet og
Jondet (4), var tekin burt 8-12 stundum síðar.
NIÐURSTÖÐUR
Af 74 konum sem komu til tæknisæðingar
luku 69 sex mánaða meðferð. Af þeim tóku
47 undir (fyrsta þungun af tæknisæðingu) og
22 sæðingar teljast hafa misheppnast. Þrjár
töldust vera hættar við, þ.e. konur sem lýstu
því yfir að þær væru hættar áður en lokið var
þremur sæðingarmánuðum. Þegar tímabilinu
%
70
60
50
40
30
20
10
0
1 2 3 4 5 6
Treatment cycles
Effective cumulative percentage of pregnancies.
sem hér er athugað lauk, 30. september 1985,
voru enn tvö opin tilvik sem hvorki höfðu
fengið alla sína sex mánuði afgreidda, né
heldur hætt í meðferðinni. Engir þátttakendur
týndust úr eftirliti.
Heildarhlutfall heppnaðra sæðinga var 68,1%
ef opnum tilvikum og þeim sem hættu
meðferð er sleppt (theoretical success).
Séu þau tilfelli hins vegar taldin til hinna
misheppnuðu, fellur hlutfall heppnaðra
í 63,5% (effective success). Hækkandi
hlutfall þungaðra sem fall af mánuðum
sést á myndinni. Mánaðarlegur árangur er
sýndur á töflu III, þar er notuð líftöfluaðferð.
Meðalgetnaðarhlutfall á mánuði var 16,0%.
Meðalfjöldi mánaða í meðferð sem þurfti til
getnaðar var 2,43.
Af 69 konum sem luku meðferð voru 27 sem
höfðu reynst með eitthvað skerta frjósemi,
annaðhvort af líffæraskemmd eða starfrænni
truflun. Tafla II sýndi hvaða þættir það voru
sem drógu úr frjósemi þeirra og áhrif þeirra