Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1990, Page 41

Læknablaðið - 15.02.1990, Page 41
LÆKNABLAÐIÐ 1990;76:111-15 111 Gígja Sveinsdóttir, Sigurbjörg Ólafsdóttir, Reynir Tómas Geirsson REYKINGAR ÍSLENSKRA KVENNA Á MEÐGÖNGU ÚTDRÁTTUR Könnun var gerð á reykingum og reykingavenjum meðal kvenna á sængurkvennadeildum Landspítalans. Af 590 konum sem fengu spumingalista svöruðu 440 (74.6%). Rúmur þriðjungur (34.3%) reykti á meðgöngu, þar af 27% daglega. Yngstu og elstu konumar reyktu sjaldnar í þungun. Með hærri aldri jókst hlutfall þeirra sem reyktu og þeim fækkaði sem hættu reykingum á meðgöngunni. Yngstu konumar reyktu færri sígarettur og hættu oftar reykingum á meðgöngu eða drógu úr þeim. Tæp 18% kvenna höfðu hætt reykingum áður en þær urðu bamshafandi. Af þeim sem reyktu á meðgöngunni breytti þriðjungur engu um reykingar sínar, en 60% minnkuðu þær. Enginn munur var á aldursdreifingu hjá þeim sem minnkuðu reykingar og hinum sem ekki breyttu reykingavenjum sínum. Fjallað er um hættur fyrir ófætt bam af beinum og óbeinum reykingum á meðgöngu. INNGANGUR Sígarettureykingar eru lfklega algengasta form ávanaefnanotkunar meðal bamshafandi kvenna í okkar þjóðfélagi. Niðurstöður fjölmargra rannsókna undanfarin ár hafa staðfest skaðleg áhrif sígarettureyks á neytendur en einnig á þá sem vinna í reykmettuðu andrúmslofti og/eða búa við mikla reykmengun innan veggja heimilis síns (1). Konur fá alla þá sjúkdóma sem reykingar leiða af sér hjá körlum. Langflestar þeirra kvenna sem reykja nota sígarettur. Konur sem reykja á meðgöngutíma fæða rýrari börn, að meðaltali 250 g léttari, og tíðni léttburafæðinga tvö- eða þrefaldast ef móðirin reykir. Hætta á fósturláti og burðarmálsdauða eykst í réttu hlutfalli við það hve mikið móðirin reykir, og Frá Kvennadeild Landspítalans. Barst 06/03/1989. Samþykkt 18/10/1989. Lykilorö: Prenatal care, Pregnancy Complications, Smoking. sum sjúkleg afbrigði meðgöngu og fæðinga eru algengari hjá konum sem reykja. Þar má nefna blæðingar á meðgöngu, fylgjulos, legvatnsleka og fæðingu fyrir tímann (2-3, 4). Þá benda líkur til að böm reykingakvenna vaxi og þroskist hægar en önnur böm (2, 5, 6). Reykingar þungaðra kvenna hafa lítið verið athugaðar á Islandi. Eftirfarandi athugun var gerð til að kanna algengi reykinga og breytingar á reykingavenjum á meðgöngu meðal íslenskra kvenna. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Þversniðs athugun var gerð meðal kvenna í sængurlegu á Kvennadeild Landspítalans. Verkið var upphafiega unnið sem verkefni í Ljósmæðraskóla íslands (7). Úrtakið átti að ná til um 600 kvenna, sem áætlað var að mundu fæða á tímabilinu 1. júní- 31. ágúst 1987. Siðanefnd Læknaráðs Landspítalans veitti leyfi fyrir athuguninni. Spumingalisti með alls fimm spumingum, hver með þremur til fimm valkostum, var lagður fyrir hverja konu. Spurt var um aldur í aldursflokkunum <19, 20-25, 26-35 og >36 ára, hvort konan reykti eða hefði reykt áður, hvort hún hætti eða breytti reykingavenjum á meðgöngunni, hvað hafði áhrif á ákvörðun um að hætta eða minnka reykingar á meðgöngu (velja mátti fleiri en einn valkost) og hve mikið konan reykti á síðustu vikum fyrir æðinguna. Nafnleyndar var gætt. Kynningarbréf fylgdi með listanum. Spumingalistum var skilað í þar til gerða kassa á sængurkvennadeildum. Tveir höfunda (SÓ og GS) fylgdust með framvindu könnunarinnar og skilum spumin^alista ásamt starfsfólki sængurkvennadeilda. A miðju tímabilinu voru skilin metin og reyndust 65%. Af 600 spurningalistum fóru 10 í kynningu verkefnisins en 440 listum var skilað (74,6%). Kí-kvaðrat próf var notað til að meta aldursbundnar breytingar á reykingavenjum í meðgöngu.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.