Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1990, Síða 57

Læknablaðið - 15.02.1990, Síða 57
LÆKNABLAÐIÐ 125 vegar mjög háð menningu. Siðrænir staðlar eru breytilegir frá einu samfélagi til annars og hægt er að segja, að læknisfræðilegar siðfræðivangaveltur felast að verulegu leyti í því, að beita stöðlum tiltekins samfélags á lœknisfrœðileg málefni. Samfélagsstaðlamir í Bandaríkjunum eru til dæntis frábrugðnir því sem gerist á Norðurlöndunum. Það felur í sér, að við getum ekki fundið út hvað er rétt og réttlátt í samfélagi okkar, með því að lesa - annars ágætar - amerískar kennslubækur í siðfræði læknisfræðinnar. Þetta er mjög mikilvægt atriði: Við erum orðin vön því, að mikið af framförum í læknisfræði komi frá Bandaríkjunum og við erum vön því að lesa amerískar fagbókmenntir. Ég tel, að við eigum einnig að sækja þangað lesningu, þegar um siðfræði er að ræða, en við verðum að gæta þess, að færa ekki bandaríska siðferðisstaðla hugsunarlaust austur yfir Atlantsála. Ég á alls ekki við það, að þeirra staðlar séu verri en okkar, þeir eru bara öðruvísi. Ég mun koma aftur að þessu síðar. Hins vegar má slá því föstu, að gerð siðfræðilegrar röksemdafærslu sé hin sama um heim allan og áður en ég held lengra, þarf ég að kynna nokkur grunnhugtök siðfræðinnar. Að öðrum kosti er alveg ómögulegt að ræða hlutstæðari hugtök. Reglusiðfrœði (forskiftasiðfræði, normativ etik) fjallar um það, hvemig bregðast skuli við tilteknum aðstæðum. Siðfræðin á að gefa svar við spumingunum: »Hver er bezta ákvörðunin við ákveðnar aðstæður« og »Hver er rétta ákvörðunin við þær aðstæður« og siðfræðingar hafa svarað þeim á tvo mismunandi vegu: Suntir þeirra hafa sagt, að við eigum að velja þá athöfn, sem hafi beztu afleiðingarnar. Þeir tilheyra þeim skóla innan siðfræðinnar, sem nefnist markhyggja eða markhyggjusiðfrœði (teleologisk etik, g. telos: markmið), þar sem hugsunin snýst um afleiðingamar af gerðum okkar. Ég mun skýra það síðar, að heilbrigðishagfræðingar beita ávallt einni gerð markhyggju, nytsemiviðhorfum. Við skulum taka dæmi um markhyggjuafstöðu: I tiltekinni stöðu eigum við völ á því, að ljúga eða segja satt. Hvað eigum við að gera? Hefðbundin afstaða er ljós: Hún er sú, að við eigum að meta afleiðingamar af því að ljúga og af því að segja satt og velja síðan þann kostinn, sem hefir beztu afleiðingamar. Aðrir siðfræðingar eru mjög ósammála þessu og til þess að varpa ljósi á hugsanagang þeirra, skulum við líta á boðorðin tíu. Þar segir meðal annars, að »þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum«. Þar segir svo sannarlega ekki, að þú megir ekki ljúga, hafi það slæmar afleiðingar, en að þú megir ljúga, hafi það góðar afleiðingar. Hver einstök athöfn er góð eða vond í sjálfri sér og okkur er skylt að forðast athafnir sem em siðferðilega óhæfar. Þessi skóli innan siðfræðinnar, sem þarf ekki að tengjast trúarbrögðum, er nefndur skyldusiðfrœði (deontologi, g. deon: skylda). Innan markhyggjunar skiptast menn síðan í tvo hópa, þá sem líta svo á að skoða beri afleiðingamar af hverri einstakri athöfn og þá sem alhæfa. Þannig er hægt að spyrja: »Hverjar verða afleiðingamar ljúgi ég í þessari ákveðnu stöðu?« og, »hverjar yrðu afleiðingamar ef allir menn beittu ósannindum við sömu aðstæður«. Niðurstöðumar yrðu væntanlega mismunandi. Á hinn bóginn metum við oft afleiðingamar fyrir einstaklinga og þetta gerist að sjálfsögðu í klínískri læknisfræði og kem ég að þessu atriði hér á eftir. Það mikilvæga í þessari umræðu er, að til eru tvær gerðir siðfræðilegrar röksemdafærslu: Markhyggjusiðfrœðingar líta á afleiðingamar af gerðum okkar. Skyldusiðfrœðingar viðurkenna ekki þetta sjónarmið, en hugsa út frá hugtökum eins og skyldu, réttindum og réttlæti. Þannig er tvenns konar hefð í heimspekinni, en ég held að við getum orðið ásátt um það, að í daglega lífinu hugsum við á tvo vegu: Við hugsum um afleiðingar gerða okkar, en við virðum það einnig, að til eru réttindi Skyldusiöfræöileg Markhyggjusiöfræðileg Umræða röksemdafærsla röksemdafærsla á einstak- Viröing fyrir Hvaö er best fyrir lingsstigi sjálfsforræöi - einstaka sjúklinga - alla sjúklinga á samfé- Réttlæti meö Efnahagsumræöa lagsstigi stoö í samfélags- sáttmála

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.