Læknablaðið - 15.04.1990, Blaðsíða 60
Nýtt Triazolobenzodiazepin
meö breiðara verkunarsvið:
• Virkt gegn kvíða, eiröarleysi og geðdeyfð
sem ekki eru af geðrænum toga.
• Lítil sefandi eða sljóvgandi áhrif.
• Helmingunartími 10-12 tímar.
Hver tafla Inniheldur:
Alprazolamum INN 0,25 mg eða 0.5 mg.
Elglnlelkar:
Alprazólam er benzódiazepinsamband með svipaðar
verkanir og diazepam og önnur skyld lyf Lyfið hefur
verkun á kvíða, hræðslu og hugarvil og hefur sljóvgandi
(sederandi) verkun, einkum i stórum skömmtum. Talið er
að kviðastillandi verkun komi fram við skammta, sem
gefa heldur minni sljóvgandi verkun en diazepam.
Alprazólam frásogast vel frá meltingarvegi og nær
blóðþéttni hámarki eftir 1-2 klst. Próteinbinding í plasma
er um 70%. Helmingunartimi lyfsins er 10-12 klst.
Umbrotsefni alprazólams hafa litla sem enga þýðingu
fyrir verkun lyfsins. Ekki er talið að lyfið hafi nein teljandi
áhrif á serótónin-. histamin- eða katekólamín-viðtaka og
er þvi ekki ráðlagt sem meðferð við þunglyndissjúkdómi
(endogen depression).
Ábendlngar:
Kvlði, hræðsla og hugarvil af nevrótískum toga.
Frábendlngar:
Benzódlazepinofnæmi. Myasthenia gravis. Þrönghorns-
gláka. Meðganga og brjóstagjöf. Gæta þarf sérstakrar
varúðar hjá öldruðum og sjúklingum með skerta lifrar-
eða nýrnastarfsemi.
Aukaverkanlr:
Notkun lyfsins hefur (för með sér ávanahættu. Þreyta og
syfja. Ósamhæfðar hreyfingar (ataxia), svimi, sjóntrufla-
nir, meltingartruflanir og munnþurrkur. Óvenjuleg vi-
ðbrögð eins og æsingur og velliðan koma fyrir.
Varúð:
Vegna ávanahættu þarf aö gæta sérstakrar varúðar hjá
sjúklingum, sem misnota áfengi eða lyf. Eftir langvarandi
notkun geta komið fram fráhvarfseinkenni, t.d. krampar,
ef notkun lyfsins er hætt skyndilega. Vara ber sjúklinga
við stjórnun vélknúinna ökutækja samtimis notkun lyf-
sins.
Mllliverkanir:
Lyfið eykur áhrif áfengis, svefnlyfja og annarra róandi
lyfja.
Skam..itastærðlr handa fullorðnum:
f upphafi meðferðar má gefa 0,25 - 0,5 mg þrisvar á dag
Finna þarf hæfilega skammta fyrir hvern einstakan
sjúkling. Algengir viðhaldsskammtar eru 0,5-3,0 mg á
dag, gefin 12-3 skömmtum. Hjá ðldruðum og mikið
veikum sjúklingum er rétt að byrja meö 0,25 mg 2-3
sinnum á dag.
Skammtastærðlr handa börnum:
Engin reynsla er ennþá af notkun lyfsins handa börnum
og unglingum innan 18 ára aldurs.
Pakknlngar:
Töflur 0,25 mg:
20 stk. (þynnupakkað);
50 stk. (þynnupakkað);
100 stk. (þynnupakkað).
Töflur 0.5 mg;
20 stk. (þynnupakkað);
50 stk. (þynnupakkað);
100 stk. (þynnupakkað; sjúkrahúspakkning).
Upjohn
LYF sf. Garöaflöt 16, 210 Garöabær