Læknablaðið - 15.04.1990, Blaðsíða 26
198
LÆKNABLAÐIÐ
Þessi tegund heilaáverka kemst næst útbreiddu
heilamari hvað alvarleika snertir (tafla V).
Mjög hátt hlutfall þessara sjúklinga (66%) var
í dái eða dauðadái við komu og batahorfur eru
almennt séð mjög slæmar því mikill meirihluti
dó eða hlaut mjög alvarleg eftirköst (71%).
Gerð var aðgerð á 28 sjúklingum af 41.
Þar af lifðu 16. Engin aðgerð var gerð á
13 sjúklingum vegna lélegs ástands þeirra
(dauðvona) og dóu þeir allir.
UTANBASTSBLÆÐING
Utanbastsblæðing er bæði þekktust og
skurðtækust af þessum áverkum. Samt greinist
hún oft of seint og árangur af meðferð virðist
því víða vera frekar slakur. Ekki er þetta
algengur áverki því hann kemur aðeins fyrir
hjá um 1% þeirra sem lagðir eru inn á spítala
vegna höfuðáverka eða að minnsta kosti
helmingi sjaldnar en bráð innanbastsblæðing.
Áður fyrr var þessu þveröfugt farið og
utanbastsblæðing hlutfallslega mun algengari,
en þetta var fyrir daga bílanna.
Sprunga kemur í höfuðkúpuna og rífur
mengisslagæð. Oftast gerist þetta í
gagnaugasvæðinu og miðmengisslagæðin
rifnar. Eftir því sem blóðkökkurinn stækkar
losnar heilabastið frá og þrýstingurinn inni
í höfðinu eykst. Sjúklingnum hrakar og
hann missir smám saman meðvitund. Ljósop
verða misvíð í fyrstu og síðan bæði fullvíð
og ljósstíf. Sjúklingurinn stífnar allur upp
(decortication, decerebration) andar óreglulega
og breytingar verða á púlsi og blóðþrýstingi.
Heilaskemmdir eru nú orðnar miklar og að því
kemur að sjúklingurinn deyr.
Allir eiga að þekkja hinn sígilda gang þessa
sjúkdóms og grípa inn í áður en sjúklingnum
versnar. Því miður er sjúkdómsmyndin samt
stundum önnur og gangurinn annar. Talið er
að dæmigerð saga sé jafnvel aðeins í um 10%
tilfella (15).
í allt að 60% tilfella er í upphafi um sáralitlar
heilaskemmdir að ræða þar sem sjúklingurinn
hefur annaðhvort aðeins vankast eða missst
meðvitund stutta stund. Skýrleikabil (lucid
interval) er í 20% tilfella. I 20% tilfella hefur
hann verið meðvitundarlítill við komu og
jafnoft meðvitundarlaus.
Oftast nær er um höfuðkúpubrot að ræða og
venjulega í gagnaugasvæðinu.
Table V. Acute subdural haematoma. Admissions to
the ICU, City Hospital, Reykjavik, lceland 1973-1980.
Patients
Adults 39 (29/10)
Children 2 (2/0) 41
Causes
Falls 21
Traffic accidents 17
Accidental blows 1
Assault 1
Sport 1 41
Consciousness
Awake 0
Somnolent or stuporous .... 6
Semicomatous 8
Comatous 15
Deeply comatous 12 41
Fractures
Linear 28
Depressed 3 31
Other injuries 19
Operations 28
Recovery
Good 8
Moderate 4
Severe disability 4
Dead 25 41
Table VI. Epidural haematoma. Admissions to the
ICU, City Hospital, Reykjavik, lceland 1973-1980.
Patients
Adults........................... 10 (9/1)
Children.......................... 4 (3/1) 14
Causes
Falls............................. 7
Traffic accidents................. 2
Accidental blows.................. 2
Assault........................... 2
Other............................. 1 14
Consciousness
Awake ............................ 1
Somnolent or stuporous............ 5
Semicomatous...................... 5
Comatous.......................... 2
Deeply comatous................... 1 14
Fractures
Linear............................ 8
Depressed......................... 3 11
Other injuries ................. 3
Operations...................... 13
Recovery
Good ............................ 12
Severe disability................. 1
Dead ............................. 1 14
Blæðingin er í 70% tilfella í öðru
gagnaugasvæðinu eða þar upp af. Blæðingin
er annars staðar, þ.e. í enni, hnakka eða yfir
litla heila í 5-10% tilfella, hver staður um sig.