Læknablaðið - 15.04.1990, Blaðsíða 18
190
LÆKNABLAÐIÐ
en hafði verið einkennalaus frá hjarta. Árið
þar á eftir leggst hann aftur inn á sama
spítala vegna mæði og yfirliða og óreglulegs
hjartsláttar sem hjartalínurit sýndi að var
gáttatif. Eftir stutta legu var gerð rafvending
með góðum árangri.
Var hann einkennalaus frá hjarta í tvö ár
lyfjalaus en lagðist síðan tvívegis inn sama
árið með gáttatif og var í bæði skiptin gerð
rafvending með góðum árangri.
Hann hefur síðan verið einkennalaus frá hjarta
og verið án lyfja og við skoðun fyrir ári var
ekkert sérstakt að finna. Hjartalínurit sýndi
þá sínustakt, aukaslög frá gátt, fyrstu gráðu
gáttasleglarof og vægar leiðslutruflanir frá
sleglaskipt. Omskoðun á hjarta sýndi væga
stækkun á vinstri gátt og á vinstri slegli en
með góðum sleglasamdrætti. Engin merki
sáust um aðþrengjandi gollurshússbólgu.
Blóðrannsóknir, meðal annars skjaldkirtilspróf,
hafa verið eðlileg.
Sjúkratilvik 2. Rúmlega tvítug stúlka var lögð
inn á lyflækningadeild FSA fyrir níu árum
vegna hjartsláttaróreglu. Var þá ár liðið frá
upphafi veikinda bróður hennar sem getið er
um hér á undan. Hún var þunguð, gengin 12-
14 vikur, með tveggja daga sögu um hraðan
hjartslátt, úthaldsleysi og mæði.
Hún gaf sögu um hjartsláttaróregluköst frá
12 ára aldri sem stóðu stutt í hvert skipti, en
höfðu aldrei verið greind af læknum. Að öðru
leyti verið heilsuhraust og aldrei á sjúkrahús
komið.
Hjartalínurit sýndi gáttatif og um 120 slög á
mínútu. Röntgenmynd af hjarta og lungum
sýndi hjartaskugga í efri mörkum og þótti
útlína hægri gáttar áberandi.
Hún var sett á dígoxín og höfð í eftirliti fram
yfir meðgöngu.
Síðla sama ár var gerð rafvending eftir
blóðþynningu og fór stúlkan í sínustakt.
Hún leitaði ekki til lækna næstu tvö árin
vegna einkenna frá hjarta en á fjögurra ára
tímabili þar á eftir var hún ellefu sinnum lögð
inn á lyflækningadeild FSA vegna gáttatifs og
iðulega gerð hjá henni rafvending og hélst hún
við það í sínustakti um tíma. Tvisvar sinnum
var gerð rafvending hjá henni þungaðri og
gekk það vel.
Fyrir tveimur árum var hún lögð inn brátt í
kjölfar meðvitundarleysis sem stóð í nokkrar
mínútur og fannst þá ekki hjá henni púls en
við komu á sjúkrahúsið var hún í gáttatifi.
Enn var gerð rafvending, en fimm mánuðum
síðar og aftur ári síðar, kom hún inn brátt eftir
yfirlið og var í gáttatifi við komu.
Ómskoðanir af hjarta hafa sýnt stærð vinstri
gáttar í efri mörkum. Skjaldkirtilspróf og
önnur blóðpróf hafa verið eðlileg.
Gerð var raflífeðlisfræðileg rannsókn á hjarta
og var niðurstaðan að virkni sínushnútar væri
eðlileg og ekki væri um neinar aukabrautir
að ræða. Aukin ertni var í gáttum, ef til vill
áhrif dígoxíns, og tilhneiging til gáttatifs var
til staðar. Dígitalis var talið óhentugt lyf
samkvæmt þessari rannsókn. Hún hefur síðan
verið á sótalolol og dísópýramíd og hefur
haldist í sínustakti.
Sjúkratilvik 3. Þrítugur karlmaður, elsti bróðir
stúlkunnar og drengsins sem sagt er frá hér
á undan var lagður inn á lyflækningadeild
FSA fyrir átta árum vegna gáttatifs, sem
fram kom á hjartalínuriti sem tekið var hjá
heimilislækni. Þá voru tvö ár liðin frá upphafi
veikinda bróður hans og eitt ár liðið frá því að
systir hans lagðist inn á sama spítala vegna
hjartsláttaróreglu. Hann hafði undanfarinn
mánuð fyrir innlögn fundið fyrir erfiðleikum
við andardrátt, að fylla lungun lofti eins og
hann orðaði það. Hann neitaði einkennum
frá hjarta, en í skýrslum spítalans fannst, að
hann hafði tólf árum áður leitað til læknis
vegna stingverkja í brjósti og hafi þá við
hjartahlustun haft systolískt óhljóð meðfram
vinstri rönd bringubeins og áberandi hægri
gátt á röntgenmynd. Að öðru leyti hafði hann
verið heilsuhraustur um ævina.
Skoðun leiddi ekkert athugavert í ljós en
hjartalínurit sýndi gáttatif um 60 slög á
mínútu. Fimm árum síðar fór hann aftur í
gáttatif en hafði þá um langt skeið verið
einkennalaus frá hjarta án lyfja. Gerð var
rafvending og hélst hann síðan einkennalaus
í tvö ár en þá var hann lagður inn á
handlækningadeild með kviðverki, og vaknaði
grunur um blóðrek til kviðarholslíffæra.
Hann hefur farið tvívegis í gáttatif á
síðastliðnu ári þrátt fyrir lyfjameðferð, en farið
í reglulegan takt eftir rafvendingar og haldist
í sínustakti á dígoxín og litlum skammti af
amíodarón.