Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1990, Blaðsíða 50

Læknablaðið - 15.04.1990, Blaðsíða 50
220 LÆKNABLAÐIÐ við þau vandkvæði, sem búast má við hjá þessum sjúklingum. Því er mikilvægt að gerð sé könnun á því, hvemig til hafi tekist við lækningar sjúklinga með bráða kransæðastíflu, einkum til þess að sjá hvort að einhverju leyti megi bæta þá meðferð og umönnun sem gefin hefur verið. Einnig kann að vera mikilvægt að bera árangur saman við það sem aðrir hafa skýrt frá og athuga hvort breytingar á venjum varðandi umönnun og nýjungar í meðferð hafi þau áhrif sem ætlast var til. Varðandi samanburð á meðferðarárangri miðað við önnur sjúkrahús og önnur lönd ber þó að gæta þess að oftast er um afturvirkar rannsóknir að ræða og oft stuðst við sjúkdómsmat, sem kann að vera mismunandi á ólíkum stöðum. Einnig kunna aðstæður á ýmsan hátt að vera frábrugðnar milli meðferðarstaða og því full ástæða til varúðar í túlkun á ýmsum atriðum, þegar slíkur samanburður er gerður. Rétt þykir þó að gera samanburð á þeim rannsóknum á horfum sjúklinga með bráða kransæðastíflu á íslenskum sjúkrahúsum, sem birtar hafa verið í Læknablaðinu á undanfömum árum. I töflu II má sjá samanburð á dánarhlutfalli sjúklinga meðan á sjúkrahúsvist stendur og kemur þar í ljós, að eklci er vemlegur munur, þegar þetta atriði er skoðað nema hvað horfumar á Landakoti á árunum ’76 - ’80 virtust heldur betri en í hinum rannsóknunum. Niðurstöður þessar eru að mörgu leyti lítið Tafla I: Útskriftarlyf og afdrif. Lyf Fjöldi Látnir Betablokkari 70 16 Kalsíumblokkari 34 5 ACE blokkari 6 2 Nítröt 90 31 Fúrosemíð 55 29 Klórtíasíð 9 2 Dígoxín 15 8 Amíódarón 16 4 Blóðþynningarlyf 21 3 frábrugðnar rannsóknum í nágrannalöndum okkar (11). Niðurstöður sem þessar þarf einnig að skoða í ljósi þeirra aðstæðna sem sjúklingum eru búnar á sjúkrahúsdeildunum. Varðandi Fjórðungssjúkrahúsið er ekki um að ræða sérhæfða hjartagjörgæsludeild heldur em eins og áður sagði tvö herbergi sérbúin inni á venjulegri lyflækningadeild og er sjúklingum þar sinnt ásamt með öðrum sjúklingum deildarinnar. Hins vegar er möguleiki að hafa sjúklinga á almennri gjörgæsludeild, þar sem viðbúnaður er öllu meiri og fjöldi starfsfólks miðað við fjölda sjúklinga meiri. Það má þó segja, að þar sé heldur ekki um sérhæfða hjartagjörgæslu að ræða. Nokkur atriði úr niðurstöðum okkar teljum við ástæðu til að draga fram. Meðalaldur sjúklingahópsins var tiltölulega hár og hærri en yfirleitt gerðist í hinum íslensku rannsóknunum. Það voru einnig hlutfallslega fleiri konur og eldri. Dánarhlutfall kvenna var einnig hærra en karla og legutími lengri og kann þetta að hluta til að skýrast af hærri aldri. Hár aldur sjúklingahópsins kann einnig að skýra að nokkru, hversu margir höfðu fengið kransæðastíflu áður (40%), en það er hærra en gerðist í fyrrgreindum rannsóknum. Einnig var athyglisvert, hversu margir sjúklingar höfðu háþrýsting (53%) og sykursýki (18%). Fáir fengu segaleysandi meðferð með streptókínasa, sérstaklega miðað við það, að allstór hópur kom inn á sjúkrahúsið innan þeirra tímamarka, sem þessi meðferð er yfirleitt miðuð við. Kann hér að valda óhófleg varkámi, en einnig ströng beiting aldursmarka. Sennilega er ekki ástæða til svo strangs vals á sjúklingum miðað við það, hversu hættulítil þessi meðferð virðist vera. Fróðlegt verður að bera síðari tíma uppgjör saman við það sem hér hefur verið lagt fram, þegar meiri reynsla verður komin á ofangreinda meðferð. Við afturvirka rannsókn kemur óhjákvæmilega í ljós ófullkomin skráning í skýrslur, enda þótt gott samræmi Tafla II: Dánarhlutfall sjúklinga með kransæðastíflu á íslenskum sjúkrahúsum. Létust Lsp. 66-68 Lsp. 69-70 Bsp. 56-68 Bsp. 72-75 Ldk. 66-75 Ldk. 76-80 Ldk. 81-85 FSA 84-86 Karlar......................... 18.5% 20.8% 25.5% 22.1% 19.3% 14.3% 12.4% 15.2% Konur.......................... 33.3% 30.8% 35.0% 20.7% 28.7% 21.9% 23.6% 26.2% Samtals........................ 21.0% 23.4% 28.7% 21.8% 22.1% 16.4% 18.0% 19.3%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.