Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.11.1990, Qupperneq 27

Læknablaðið - 15.11.1990, Qupperneq 27
LÆKNABLAÐIÐ 1990; 76: 449-56 449 Ása Guðmundsdóttir, Hildigunnur Ólafsdóttir, Þórður Harðarson, Helgi Tómasson, Júlíus K. Björnsson, Tómas Helgason REYKINGAKÖNNUN Á RÍKISSPÍTÖLUM ÚTDRÁTTUR Gerð var könnun á reykingum, þekkingu á skaðsemi þeirra og viðhorfum til reykingabanns á heilbrigðisstofnunum meðal alls starfsfólks Ríkisspítala. Svör bárust frá 60.5% starfsfólks. Um fjórðungur svarenda kvaðst reykja. Mun fieiri reykja meðal yngri starfsmanna en þeirra eldri. Fæstir reykja í hópi lækna (7%), en meðal ræstinga-, vakt- og aðstoðarfólks eru miklu fleiri reykingamenn. Þekking á skaðsemi reykinga er almennt góð, meiri meðal yngra fólks, en aðeins 15% svarenda virðast vita um hættur tengdar reykingum foreldra fyrir fóstur og böm. Næstum helmingur svarenda vill að reykingar á heilbrigðisstofnunum verði alveg bannaðar, en alls vilja um 98% að reykingar verði takmarkaðar. Fleiri þeirra sem ekki reykja vilja að reykingar verði alveg bannaðar og fleiri með miðlungs- eða mikla þekkingu vilja algert bann. Um 82% reykingafólks vilja hætta að reykja, fleiri konur en karlar. Um 89% reykingamanna finnst að Ríkisspítalar eigi að bjóða upp á námskeið fyrir þá sem vilja hætta að reykja. INNGANGUR Nú eru um 30 ár síðan færðar voru órækar sannanir fyrir því að tóbaksreykingar auka tíðni lungnakrabbameins (1,2) og kransæðasjúkdóma (3). Rannsóknir á áhrifum tóbaksnotkunar hafa í auknum mælj sýnt fram á skaðsemi tóbaksreykinga og hefur sú þekking mótað viðhorf almennings og dregið úr tóbaksnotkun. Fyrsta lagaákvæði um tóbaksvamir komst í framkvæmd árið 1969 er aðvaranir um skaðsemi tóbaks voru settar á umbúðir tóbaksvamings (4). Árið 1971 var síðan sett bann við tóbaksauglýsingum utandyra Fyrirspurnir, bréfaskipti; Ása Guðmundsdóttir, geðdeild Landspítala. og í kvikmyndahúsum og fjölmiðlum. Auk þess átti að ráðstafa 2% af brúttótekjum vegna sölu tóbaks í landinu til þess að vara við tóbaksreykingum, en aðvaranir á sígarettupökkum voru lagðar niður vegna annmarka á framkvæmd. Sérstök lög um tóbaksvamir tóku síðan gildi árið 1985 (5). Er þeim ætlað að draga úr tóbaksneyslu og þar með því heilsutjóni sem hún veldur, og að vemda fólk fyrir áhrifum tóbaksreyks, þ.m.t. óbeinna tóbaksreykinga. Samkvæmt lögunum má því aðeins hafa tóbak til sölu eða dreifingar að skráð sé aðvörun um skaðsemi þess á umbúðimar. Tóbaksreykingar eru nú óheimilar á þeim stöðum þar sem almenningur sækir þjónustu, nema á skemmtistöðum, og er skylt að merkja sérstaklega að 'reykingar séu bannaðar. Á sjúkrahúsum má einungis leyfa reykingar á tilteknum stöðum þar sem þær eru ekki til óþæginda fyrir þá sem reykja ekki. Samkvæmt lögunum varðar sektum að halda áfram að reykja í húsakynnum þar sem bannað er að reykja, enda hafi umráðamaður húsakynna veitt áminningu. Setning laganna um reykingavamir sýnir að orðið hefur veruleg hugarfarsbreyting meðal Islendinga og meira tillit tekið til þeirra sem ekki reykja. Sums staðar hafa reykingar verið alveg bannaðar, annars staðar hafa verið afmörkuð sérstök svæði þar sem reykingar eru leyfðar. Enn er sú lausn þó víða ófullkomin, jafnvel á sjúkrahúsum, þar sem ekki hefur tekist að afmarka reykingasvæði, hvorki fyrir sjúklinga né starfsfólk, þannig að ekki valdi óþægindum þeim sem ekki reykja. Víða erlendis hefur náðst mjög góður árangur í baráttunni gegn reykingum og á sumum háskólasjúkrahúsum bæði austan hafs og vestan hafa reykingar verið alveg bannaðar. Einnig má benda á að ýmis flugfélög hafa bannað reykingar á ákveðnum leiðum og reykingabann er að ganga í gildi í öllu innanlandsflugi í Bandaríkjunum, en það getur tekið allt að fimm klukkustundir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.