Læknablaðið - 15.11.1990, Síða 61
LÆKNABLAÐIÐ
481
fura-2 buffers and distorts electrically induced [Ca*2];
transients in cardiac ventricular myocytes. The chelator
was used to measure the amount of Ca+2i mobilized into
the cytosol during the cell excitation-contraction cycle.
ÁHRIF ÞRIGGJA EXTRAKTA ÚR BRJÓSTAGRASI
OG ÚSNÍNSÝRU ÚR HREINDÝRAMOSA Á
FRUMUVÖXT, DNA INNIHALD FRUMA OG
FRUMUDAUÐA í RÆKT
Einar Már Sigurðsson lyfjafræðinemi, Ásbjörn
Sigfússon, Jóhann M. Lénharðsson l.vfjafræðingur,
Krístin Ingólfsdóttir dósent. Lvfjafræði lyfsaia
í Háskóla Islands, Rannsóknastofa Háskólans í
ónæmisfræði, Apótek Austurbæjar.
Það sparar bæði tíma og peninga að skima eftir
æxlishemjandi virkni nýrra efna og efnasambanda
með því að skoða áhrif þeirra á frumur í rækt áður en
áhrif á æxli í tilraunadýrum eru prófuð. í tengslum við
Iokaverkefni lyfjafræðinema hefur verið nokkur samvinna
lyfjafræði H.I. og ónæmisfræðideildar Landspítaians
um að rannsaka áhrif plöntuextrakta á vöxt æxlisfruma
í rækt (1,2). Hér er lýst áhrifum þriggja extrakta úr
brjóstagrasi (Thalictrum alpinum) og úsnínsýru úr
hreindýramosa (Cladonia labuscula) á vöxt heilbrigðra
eitilfruma og hvítblæðifruma (K 562) í rækt. Notuð voru
þrjú mismunandi módel.
I fyrsta lagi voru mæld áhrif efnanna á thymidine upptöku
frumanna. I öðru lagi voru mæld áhrif efnanna á DNA
innihald einstakra fruma með fiúrskinslitun og mælingu
í flæðifrumusjá. I þriðja lagi var frumudauði í ræktinni
mældur með fluorescein diacetate litun og smásjárskoðun.
Til samnburðar voru rannsökuð áhrif fjögurra þekktra
krabbameinslyfja með mismunandi verkunarmáta.
melphalan, adriamycin, vincristin og methotrexate. Það
tókst að sýna fram á verkun lyfjanna fjögurra með öllum
aðferðunum og verkunin var mismunandi milli lyfja og
endurspeglaði mismunandi verkunarmáta þeirra. Úsnínsýra
hafði allnokkur frumuhemjandi áhrif þegar litið var á
thymidine upptöku og frumudauða í rækt. Niðurstöður
úr prófun á extröktum úr brjóstagrasi voru ekki eins
afgerandi, en samt merkjanleg áhrif við styrk yfir 0,01
mg/ml. Mælingar á DNA innihaldi fruma gefa til kynna
að einn extraktinn hafi antimetabolisk áhrif.
1) Elín Kristjánsdóttir. Æxlishemjandi efni úr plöntum.
Cand.pharm. ritgerð við H.í. 1987.
2) Jóhann M. Lénharðsson. Einangrun og greining efnis
úr Thalictrum alpinum -brjóstagrasi-. Cand.pharm. ritgerð
við H.í. 1988.
STARFSEMI NEYÐARBÍLS BORGARSPÍTALANS
ÁRIÐ 1989
Þorsteinn Skúlason, Gestur Þorgeirsson.
Lyflækningadeild Borgarspítala.
Árið 1989 var fyrsta heila árið sem neyðarbfll
Borgarspítalans var mannaður allan sólarhringinn alla
daga ársins af aðstoðarlæknum lyflækningadeildar
Borgarspítalans. Fram til október 1988 hafði læknir
einungis verið í áhöfn neyðarbflsins frá kl. 08 til 23.30
á daginn og ekki á helgidögum.
Á árinu 1989 fór áhöfn neyðarbflsins (3169 útköll. Af
þeim voru 1979 (62,4%) virka daga frá kl. 07.30 - 23.30.
1190 (37,6%) útköll voru á nóttunni milli kl. 23.30 -
07.30 og á helgidögum.
Fjöldi útkalla var mjög svipaður alla mánuði ársins, flest
í nóvember 288 og fæst í júlí 240. Að meðaltali voru 264
útköll í mánuði. Tíðni útkalla var mjög mismunandi eftir
tímum sólarhringsins. Tíðnin var minnst síðari hluta nætur
milli kl. 04 og 07, en mest fyrri hluta dags milli kl. 11 og
16.
Útköll vegna slysa vom 1031, vitjanir vegna veikinda
1971, afturkölluð 54 og vegna eldsvoða 113. Læknar
neyðarbílsins lögðu alls 1828 einstaklinga inn á sjúkrahús
á árinu. Um 82% þeirra sem farið var í vitjun til voru
lagðir inn á spítala. Langflestir slasaðra voru fluttir á
slysadeild. Af þeim sem slasast höfðu þurftu um 19%
innlagnar við.
Áhöfn neyðarbfls Borgarspítalans veitir bráðveikum og
slösuðum á höfuðborgarsvæðinu mikla þjónustu. Útköllum
þar sem læknir er með hefur fjölgað um þriðjung eftir að
læknir bættist í áhöfn neyðarbflsins allan sólarhringinn.
Nánar verður greint frá starfsemi neyðarbflsins.