Læknablaðið - 15.04.1991, Side 27
LÆKNABLAÐIÐ
147
dagar (17) en fyrir bráðasjúklinga 8.2 dagar
(18). Meðalfjöldi legudaga bráðasjúklinga,
sjötíu ára og eldri, voru 17.3 dagar (17).
Tafla VIII sýnir hvert sjúklingar útskrifuðust
frá lyflækningadeildinni. Allir sjúklingar
með skerta skilvitund við komu (87) höfðu
útskrifast sex mánuðum eftir að rannsókn
lauk. (Upplýsingar um samanburðarhópinn
voru ekki tiltækar.) Af rannsóknarhópnum í
heild dóu 16 (18%). Úr óráðshópnum dóu 12
(32%) en aðeins fjórir (8%) úr glapahópnum
(p<0.01).
UMRÆÐA
Faraldsfræðilegar rannsóknir hafa sýnt að
algengi miðlungs og erfiðra glapa sé á bilinu
5.6- 6.7% meðal einstaklinga 65 ára og
eldri (19-21). íslenskar rannsóknir hafa sýnt
að algengi miðlungs og erfiðra glapa er
10.5% við 75 ára aldur, 17.9% við 81 árs
aldur og við 87 ára aldur er tíðnin 30.7%.
Algengi erfiðra glapa einna er 7.8% við 81-
82 ára aldur og 15% við 87 ára aldur (1,22).
Athugun á krufningaskýrslum aldraðs fólks á
íslandi benti til þess að tíðni glapa færi mjög
vaxandi með hækkandi aldri og fjórfaldaðist
frá 70 til 90 ára (23). Nýgengi erfiðra glapa
á íslandi er talin vera 1% við 74 ára aldur
og 4.5% hjá 85 ára (1). Algengi glapa á
lyflækningadeildum er talið hærra en almennt
gerist í þjóðfélaginu (12,24-27).
Niðurstöður okkur sýna að 18.4% af
bráðasjúklingum 70 ára og eldri hafa
afgerandi einkenni um glöp við innlögn. Það
er hærri tala en sambærilegar rannsóknir
(12,26) hafa sýnt, en þar reyndust 14% og
15% 65 ára og eldri hafa glöp. í finnskri
rannsókn (27) reyndust 9.1% allra sjúklinga
55 ára og eldri, sem innlagðir voru brátt á
lyflækningadeild, með glöp. Þessi tala er þó
nokkuð lægri en í rannsókn okkar enda voru
sjúklingamir mun eldri, með neðstu mörk 70
ár og meðalaldur 84.9 ár.
Sjúklingar sem höfðu skýr greiningarmerki
um óráð við komu voru skoðaðir aftur
þegar óráðið var gengið yfir. Þá reyndust
26 þeirra einnig hafa merki um glöp og 11
eðlilega skilvitund. í heild voru því 28% af
öllum bráðainnlögnum 70 ára og eldri með
einkenni um miðlungs alvarleg og alvarleg
glöp. Meðalaldur hópsins var tæplega 85 ár,
meirihluti konur úr Reykjavík, flest ekkjur
eða ekklar. Sjúklingamir komu að stórum
hluta (40%) frá stofnun fyrir aldraða eða úr
sambýlum við ættingja (14%). Sjúklingamir
voru lagðir inn af heimilislækni eða bæjarvakt
og aðaleinkenni við komu var hósti, hiti,
mæði eða slappleiki (62%).
Þegar tíðni glapa er raðað eftir aldurshópum,
kemur í ljós að fyrir aldurinn 75-84 ára var
tíðnin 15% og 12.1% fyrir 85 ára og eldri.
Þessi síðastnefnda tala er mikið lægri en
við var að búast miðað við tíðni glapa í
þjóðfélaginu. Skýring gæti verið sú að fólk
í þessum hópi dvelji að jafnaði á stofnun fyrir
aldraða og minni þörf sé fyrir bráðainnlagnir á
sjúkrahús.
Þrjátíu og sjö sjúklingar voru innlagðir
með greiningarmerki um óráð. Þessi hópur
var 13.6% af heildarinnlagnarfjölda 70 ára
og eldri og eru niðurstöðumar í samræmi
við nokkrar breskar og norður-amerískar
rannsóknir (25,28-30), en algengi óráðs meðal
aldraðra sjúklinga, sem lagðir hafa verið inn
brátt á lyflækningadeild, er talið vera á bilinu
9%-40% (12,14,25,28,30-32).
Athugun okkar var ekki gerð með það fyrir
augum að kanna hversu margir fengju óráð
meðan á dvöl á sjúkrahúsinu stóð, en komið
hefur fram í nokkrum rannsóknum að 25-35%
aldraðra sjúklinga sýni einkenni óráðs á fyrsta
mánuði dvalar á sjúkrahúsi (31).
Sjúklingar með glöp fá oftar óráð (14,27)
og í þeim tilfellum þar sem óráðið bætist
við glapasjúkdóm getur verið mjög erfitt að
greina í sundur glöp og óráð. Niðurstöður
hafa birst þess efnis að þriðjungur allra
öldrunarsjúklinga með glöp séu líklegir að
fá óráð (33). í rannsókn okkar uppfylltu 76
sjúklingar greininguna glöp og við innlögn
voru 26 (34%) þeirra með óráð. Eftir því
sem glöp eru á hærra stigi eykst hættan á, að
líkamleg veikindi valdi óráði (14).
Attatíu og sjö (32%) höfðu óráð og glöp við
innlögn en svipaðar rannsóknir hafa sýnt
algengi á bilinu 20-41% (12,25,27,28,34).
Flestar rannsóknir sem vitnað er til miða við
yngri aldurshópa, venjulega 55-65 ára, sem
neðstu mörk en einungis í einni kanadískri
rannsókn (28) miðuðust mörkin við 70 ár eins
og í okkar rannsókn.