Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.1991, Qupperneq 17

Læknablaðið - 15.10.1991, Qupperneq 17
LÆKNABLAÐIÐ 299 hjartans (mynd 2). Venjulega er vinstri gátt sá hluti hjartans er fyrst blasir við og einkum sést ullinseyra (auriculum) gáttarinnar vel. Gáttaskilveggur sést og að jafnaði glöggt og innkoma lungnabláæða að hluta í vinstri gátt. Þegar ómslangan er færð lengra niður í vélindað eru stærri hlutar hjartans sjáanlegir og oftast skoðaðir í skammás og að hluta í langás. Mítur-, ósæðar-, og þríblöðkulokumar sjást mjög vel og útstreymisrás vinstri slegils. Utstreymisrás hægri slegils, lungnaæðarlokan og aðallungnaslagæðin sjást hinsvegar miður vel í þversniði. Starfsemi vinstri slegils er auðvelt að meta bæði í skammás og langás, þó yfirleitt sjáist broddur hans takmarkað. Ef ómslangan er að lokum færð niður í maga og snúið um 180 gráður sést ósæðin og má fylgja brjóstholshluta hennar á meðan ómslangan er aftur dregin upp vélindað. Osæðarbogi sést og ágætlega með uppruna hálsæða, en sá hluti ósæðarinnar er liggur aftan við barka og hægri lungnaberkju sést illa (2). NIÐURSTÖÐUR Aðalábendingar. (Mynd 3). Algengasta ábendingin var gmnur um sýkingu á . hjartalokum (hjartaþelsbólgu) hjá 14 sjúklingum. Þar af vom sex með gerviloku og einn með meðfæddan hjartasjúkdóm. Önnur algengasta ábending var gmnur um starfræna tmflun á gerviloku hjá átta sjúklingum. Eru þá undanskildir þeir er gmnaðir voru um virka eða gamla sýkingu, en gervilokan t.d. grunuð um að vera segalind. Þriðja algengasta ábending fyrir hjartaómun um vélinda var gmnur um lokugalla hjá fimm sjúklingum, oftast míturlokuleka. Gmnur um ósæðarsjúkdóma var ábending hjá fjórum sjúklingum, bæði gúlmyndun eða þrengsli. Aðrar sjaldgæfari ábendingar vom leit að segalind hjá ungum sjúklingi með heilaáfall, gmnur um æxli í vinstri gátt við hefðbundna hjartaómun er ekki staðfestist við ómun um vélinda, og mat á leiðréttri víxlun (corrected transposition) á stóm æðum hjartans hjá einum sjúklingi. Samspil ábendinga. í sumum tilvikum gat verið um blandaða ábendingu að ræða fyrir rannsókninni, einkum hjá sjúklingum með gervilokur. Af 14 sjúklingum er vom með gerviloku voru átta með hana í ósæðarlokustað og sex í míturlokustað. Við hjartaómun um vélinda vom sex sjúklingar grunaðir um virka Aðrar ábendingar (8.8%) Ósæðarsjúkdómur (11.8%) Lokugalli (14.7%) Gerviloku slarlslrudun (23.5%1 Hjartaþelsbólga (41,2%) Mynd 3. Aðalábendingar fyrir hjarlaómun um vélinda. sýkingu á gerviloku, eða höfðu grunsamlegar menjar um eldri sýkingu. Flestir vom með holrúmsmyndun við gervilokuhringinn og los með leka. I sex tilvikum sáust breytingar er bentu til þess að gervilokan væri uppspretta smásegareks. Hjá tveimur sjúklingum var gerviloka talin eðlileg, en annar þessara sjúklinga var að auki með míturlokuþrengsli og leka í eigin loku. í þremur sjúklingum með míturgerviloku sást forstig sega sem hvirfilmyndun (spontaneous echo contrast) og/eða segi í stækkaðri vinstri gátt. Samskonar fyrirbæri sást hjá þremur öðmm sjúklingum, þar af voru tveir með ósæðarlokusjúkdóm eða gerviloku og einn með míturlokuþrengsli. Ef litið er á þá fimm sjúklinga er höfðu klínísk einkenni um segarek, voru þrír með gervilokur, einn með lokusjúkdóm og einn annar taldist hafa eðlilegar lokur. Oft var ábending rannsóknar flókið samspil þátta, til dæmis hjá sjúklingi með ósæðargerviloku er hafði fengið segarek niður í vinstri fót, og var að auki með væg míturlokuþrengsli. Ómun í hjartaaðgerð. Hjá fimm sjúklingum var hjartaómun um vélinda gerð meðan á hjartaskurðaðgerð stóð. Algengustu ábendingar hér vom mat á míturlokuleka fyrir og eftir míturlokuaðgerð, og mat á leka í ósæðargervilokum eftir enduraðgerð vegna sýkingar og lokuloss. í einu tilviki benti hjartaþræðing til verulegs míturlokuleka hjá sjúklingi er einnig var með mikinn ósæðarlokuleka. Hjartaómun um vélinda undir aðgerð staðfesti alvarleika ósæðarlokulekans og háan fylliþrýsting í vinstrí slegli, en

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.