Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.08.1992, Qupperneq 6

Læknablaðið - 15.08.1992, Qupperneq 6
214 LÆKNABLAÐIÐ var þá notaður 2,25/13 mm hljóðgjafi og myndin skráð á strimil samtímis hjartarafriti. Þykkt sleglaskiptar var mæld, sömuleiðis bakveggur, þvermál vinstri slegils í lok slagbils og lagbils, sömuleiðis var þvervídd vinstri gáttar og ósæðarrótar mæld. Tekið var meðaltal þriggja til fjögurra hjartaslaga (2,14). Massi vinstri slegils var reiknaður að hætti Penns (14). Við töldum óhætt að greina hjartavöðvaþykknun ef sleglaskipt og/eða bakveggur vinstra slegils var >15 mm ef slegillinn var ekki víkkaður. Sérstaklega var leitað eftir þykknun sem bundin var við brodd vinstri slegils en ekki tókst að sýna fram á slíka þykknun hjá neinum þátttakanda. Engar tilraunir voru gerðar til að framkalla flæðistruflun á útstreymi blóðs frá vinstri slegli. Þátttakendur voru útilokaðir frá rannsókninni ef líklegt þótti að eðlilegar orsakir lægju til þykknunar vinstri slegils, svo sem vegna háþrýstings, lokusjúkdóma eða óvenju mikilla íþróttaiðkana (15). Krufningarskýrslur lágu fyrir um 78 af 189 dauðsföllum (41%) sem orðið höfðu milli rannsóknanna tveggja. Um var að ræða 28 skýrslur af 59 dauðsföllum í hópi A og 50 skýrslur af 130 dauðsföllum sem orðið höfðu meðal þátttakenda sem í upphafi höfðu eðlilegt hjartarit. Krufningarskýrslurnar 78 voru skoðaðar sérstaklega til að kanna algengi hjartavöðvasjúkdóms. Sjúkdómurinn taldist staðfestur ef veggþykkt vinstri slegils var >15 mm án líklegrar orsakar. Til staðfestingar þurfti einnig að sýna fram á óeðlilega riðlun á vöðvafösum (16,17). Einnig voru könnuð dánarvottorð þeirra einstaklinga sem ekki höfðu komið til krufningar. Á þeim þátttakendum sem töldust hafa hjartavöðvaþykknun var gerð 24-klst Holterskráning. Allir skráðu þátttakendurnir atferli daglegs lífs, sömuleiðis tímasetningu sjúkdómseinkenna, svo sem hjartaverkjar eða hjartsláttar. Pathfindertæki frá Reynolds var notað til greiningar takttruflana (17). Takttruflanir voru flokkaðar eftir aðferð Lowns (18). Niðurstöður Holterskráningar voru bornar saman við fyrri skráningu í hópi 40 spítalastarfsmanna eins og lýst var af Ingvari Bjamasyni og félögum (19). Tölfrœðilegar aðferðir: Niðurstöður voru birtar með einu staðtölufráviki, breytur með Table I. Group comparison. Group A Group B Number.......... 452 128 Deaths.......... 59 (13.1%) 4 (3.1%) *** Attendance ..... 334 (85%) 112 (90%) ns Age (years)..... 59 ±10 59 ±9 ns Weight (kg)..... 83,4 +14 82,7 ±13 ns Height (cm)..... 117 ±6 176 ± 7 ns BSA(m2)......... 2,02 ± 0.17 2.01 ± 0.17 ns *** Statistical significance, p<0,005; ns = not significant; BSA = body surface area. eðlilegri dreifingu voru bomar saman milli hópa eftir T-aðferð Students og kí-kvaðrat notað til að bera saman hlutföll. Ovissumörk (95%) voru reiknuð eftir töflum Hansels (20). NIÐURSTÖÐUR Til rannsóknar komu úr hópi A 334 af 393 (85%) eftirlifandi körlum sem höfðu í upphafi afbrigðilegt hjartarit, ennfremur 112 (90%) af 124 eftirlifandi þátttakendum úr hópi B (tafla I). Ekki tókst að gera fullkomna ómskoðun á öllum og vantar því nokkrar ómbreytur hjá 27 af 334 í hópi A og hjá fjórum af 112 í hópi B. Hins vegar var unnt að útiloka hjartavöðvasjúkdóm hjá öllum þessum þátttakendum með tvívíddarrannsókninni. Af 334 í hópi A fundum við 12 með hjartavöðvaþykknun (tafla II). Allir uppfylltu þeir skilmerki sjúkdómsgreiningar, þar á meðal einn karl sem hafði vægan háþrýsting, en hann hafði áður gengist undir hjartaþræðingu sem talin var staðfesta sjúkdómsgreininguna hjartavöðvaþykknun. Fimm af tólf voru taldir hafa áður þekktan hjartavöðvasjúkdóm. Þykknuð sleglaskipt, 15-16 mm, fannst hjá fjórum þátttakendum með háþrýsting og einn þátttakandi sem stundaði kraftlyftingar hafði sleglaskipt sem var 18 mm að þykkt. Engan þessara karla töldum við hafa hjartavöðvasjúkdóm. Meðal 112 karla sem höfðu í upphafi eðlilegt hjartarit (hópur B) uppfylltu engir skilmerki hjartavöðvasjúkdóms, þótt fjórir karlar hefðu háþrýsting og þykknaða sleglaskipt, að meðaltali 15 mm. Sem vonlegt var höfðu karlar með hjartavöðvasjúkdóm þykkari slegil og þyngri heldur en aðrir þátttakendur í hópi A eða B

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.