Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1992, Síða 46

Læknablaðið - 15.08.1992, Síða 46
254 LÆKNABLAÐIÐ tímabil fer þeim nokkuð jafnt fækkandi fram til september árið 1982. Niðurstöður sýna ekki raunveruleg lok afbrotaferils, þvert á móti liggur fyrir viss vitneskja um afbrot nokkurra fanga eftir september árið 1982. Árið 1974 hélt 31 fangi (77,5%) áfram að fá dóma. Sextán fangar (40%) hlutu dóma eftir 1. janúar 1981. Meðal þeirra voru fimm er flokkuðust undir ofbeldisafbrot. UMRÆÐA Hafa ber í huga að rannsóknin fjallar ekki um alla fanga. Hún fjallar um fanga er voru fyrir eða komu í fangelsin Litla-Hraun og Kvíabryggju á tímabilinu 1.12.1964 til 31.10.1965 eða í alls 11 mánuði. Á þessu tímabili voru í notkun önnur fangelsi svo sem Hegningarhúsið, Skólavörðustíg 9 og fangelsið í Sfðumúla 28. Almennt voru þeir er hlutu lengri en þriggja mánaða fangelsisdóma fluttir á Litla-Hraun eða Kvíabryggju. Tæplega 56% fanga voru fæddir í Reykjavík (tafla I). Samkvæmt manntali á íslandi 1. desember 1950 (2), eða 15 árum fyrir athugunina, fæddust 23% Islendinga í Reykjavík. Fyrir 1950 voru hlutfallslega enn færri búsettir hvað þá fæddir í Reykjavík. Niðurstöður sýna því að hlutfallslega fæddust mun fleiri fangar í Reykjavík en annars staðar. Er úrtak rannsóknar fór fram voru einnig fleiri fangar búsettir í Reykjavík (tafla I) ef miðað er við hlutfall landsmanna. Ymis atriði svo sem meira eftirlit með afbrotum eða ríkari tilhneiging til að leggja fram kæru í Reykjavík geta vissulega haft áhrif á niðurstöður. Ætla má þó að fæðing og búseta í Reykjavík auki nokkuð á líkur þess að einstaklingar verði afbrotamenn. Erlendar rannsóknir sýna einnig að afbrot eru algengari meðal íbúa í stærri borgum eða þéttbýli (3, 4). Á tímabilinu frá 1964 til 1982 hafði ríkisfangelsið á Litla-Hrauni verið stækkað og því fleiri fangar farið um þá stofnun. Við samanburð á afbrotaflokkum, er leiddu til fangavistunar í upphafi rannsóknar, við afbrotaflokka, er leiddu til fangavistunar 1982, kemur fram óverulegur mismunur. í tölum frá 1982 voru einnig taldir með fangar frá Síðumúla og Skólavörðustíg. Sú aukning kann að hafa áhrif á niðurstöður þrátt fyrir að sumir þessara fanga voru á leið í hin fangelsin er rannsóknin náði til. Líklegt má þó telja Mynd 1. Fjöldi dóma á ári, sem safnast saman fram til 1964, hjá þeim 40 föngum sem voru athugaðir 1964 og voru lifandi 1984. Mynd 2. Fjöldi dóma á ári, sem dregur úrfrá 1964 til 1982, hjá þeim 40 föngum sem voru athugaðir 1964 og voru lifandi 1982. að innbyrðis skipting afbrota kunni að hafa breyst lítið. Langflest afbrot eru sem áður auðgunarbrot og áfengis- og fíkniefnabrot. Margskonar breytingar í samfélaginu auk ýmissa aðgerða í afbrotamálum virðast því ekki breyta fjölda í afbrotaflokkunum. Alls létust 12 fangar (30%) en svipaðar niðurstöður hafa komið fram í erlendum rannsóknum (3). Helmingur þeirra er dóu létust af slysförum. Ef slysum er skipt annars vegar í voveifleg slys eða slys er rekja má til ástands og hegðunar hverju sinni og hins vegar önnur slys sem orsakast af ytri ástæðum, svo sem er skip sekkur, þá má rekja fimm, eða 42% allra andláta, til voveiflegra slysa. I samanburði við einstaklinga er leituðu til geðlækna á Islandi í fyrsta skiptið árin 1966 og 1967 (5) kemur í ljós að tæplega 3% andláta næstu sjö árin á eftir orsökuðust af slysförum eða mun færri en meðal fanga. Voveifleg slys íslenskra karla á svipuðum aldri og svipuðum tíma voru tæp 20%. Láta mun því nærri að voveifleg slys meðal fanga séu meir en tvisvar sinnum tíðari. Á það hefur verið bent að meginvandamál fanga, er eiga

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.