Læknablaðið - 15.08.1992, Síða 51
LÆKNABLAÐIÐ 1992; 78: 257-62
259
Tafla. Fjöldi nýrra sjúklinga, endurinnlagðra sjúklinga, heildarfjöldi sjúklinga, endurinnlagna og allra innlagna fyrir
hvert rannsóknarár. Fjöldi miöaður við hvert sjúkrarúm er sýndur innan sviga.
Ár Nýir sjúklingar Endur- innlagöir sjúklingar Heildarfjöldi sjúklinga Endur- innlagnir Allar innlagnir
Fjöldi (Fj/rúm) Fjöldi (Fj/rúm) Fjöldi (Fj/rúm) Fjöldi (Fj/rúm) Fjöldi (Fj/rúm)
1909 24 (0,48) 3 (0,06) 27 (0,54) 3 (0,06) 27 (0,54)
1914 9(0,18) 1 (0,02) 10 (0,20) 1 (0,02) 10 (0,20)
1919 16(0,32) 1 (0,02) 17 (0,34) 1 (0,02) 17 (0,34)
1924 8(0,16) 3 (0,06) 11 (0,22) 4 (0,08) 12 (0,24)
1929 78 (0,60) 3 (0,02) 81 (0,62) 3 (0,02) 81 (0,62)
1934 87 (0,67) 12 (0,09) 96 (0,74) 12 (0,09) 99 (0,76)
1939 46 (0,35) 24 (0,18) 67 (0,52) 26 (0,20) 72 (0,55)
1944 56 (0,43) 37 (0,28) 92 (0,71) 42 (0,32) 98 (0,75)
1949 23(0,11) 17 (0,08) 39 (0,19) 23 (0,11) 46 (0,22)
1954 68 (0,28) 51 (0,21) 112 (0,47) 73 (0,30) 141 (0,59)
1959 58 (0,24) 108 (0,45) 155 (0,65) 137 (0,57) 195 (0,81)
1964 271 (1,00) 263 (0,97) 465 (1,72) 406 (1,50) 677 (2,51)
1969 247 (1,14) 368 (1,70) 576 (2,65) 584 (2,69) 831 (3,83)
1974 243 (1,20) 476 (2,34) 682 (3,36) 703 (3,46) 946 (4,66)
1979 266(1,16) 621 (2,71) 838 (3,66) 976 (4,26) 1242 (5,42)
1984 277(1,20) 597 (2,60) 835 (3,63) 963 (4,19) 1240 (5,39)
Fjöldi
Ar
A = Innlagnir B = Sjúklingar C = Sjúkrarúm
Mynd 1. Dreifing á lieildarfjölda innlagna, fjölda
sjúklinga og fjölda sjúkrarúma.
fjöldi innlagna á hvert sjúkrarúm sýndur innan
sviga í töflunni.
Rétt er að ítreka, að sjúklingar sem voru
inniliggjandi í upphafi skráðra ára voru ekki
taldir með.
Taflan sýnir að fram til ársins 1954 er fjöldi
nýrra sjúklinga meiri en fjöldi endurinnlagðra
sjúklinga. Eftir árið 1954 og til 1964
fjölgar nýjum sjúklingum verulega, en litlar
breytingar verða á fjölda þeirra eftir þann
tíma. Eftir 1954 og fram til 1979 fjölgar hins
vegar endurinnlögðum sjúklingum stöðugt. Frá
árinu 1959 til 1979 verður stöðug aukning á
heildarfjölda innlagna á hvert rúm, frá 0,81
innlögn á hvert rúm upp í 5,42 árið 1979 eða
tæplega sjöföld aukning.
Við samanburð á fjölda endurinnlagna og
nýrra innlagna fyrir árin 1964-1984 kemur
fram að á móti hverri nýrri innlögn árið 1964
eru 1,50 endurinnlagnir (endurinnlagnir að
frádregnum nýjum innlögnum). Tilsvarandi
tölur fyrir næstu skráðu árin fram til ársins
1984 eru: 2,36, 2,89, 3,67, 3,48. Af þessu
sést að endurinnlögnum hefur fjölgað meira
en tvöfalt miðað við nýjar innlagnir á þessu
tímabili.
Við samanburð á fjölda endurinnlagna og
fjölda endurinnlagðra sjúklinga kemur í ljós
að árið 1964 eru 1,54 endurinnlagnir á hvern
endurinnlagðan sjúkling og samsvarandi tölur
fyrir næstu skráðu árin eru 1,59, 1,48, 1,57
og 1,61. Niðurstöður sýna því óverulegar
breytingar síðustu 20 árin.
Mynd 2 sýnir að mikil aukning innlagna karla
á tímabilinu 1959-1979 er aðallega vegna
aukinna endurinnlagna. Eftir 1979 fækkar
bæði fyrstu innlögnum og endurinnlögnum
hjá þeim. Myndin sýnir mun minni aukningu
innlagna kvenna. Aukningin heldur þó áfram
eftir árið 1979. Fleiri innlagnir karla en
kvenna byggjast aðallega á fjölda karla er líða
af áfengis- og vímuefnavandamálum.
Mynd 3 sýnir áberandi sveiflur á meðalaldri
fram til ársins 1944 bæði hjá körlum og