Læknablaðið - 15.08.1992, Page 53
LÆKNABLAÐIÐ 1992; 78: 257-62
261
erlendis (5-7). Skýringar á þessari aukningu
eru m.a. þær að farið var að nota ný og
fullkomnari geðlyf. Jafnframt urðu ýmsar
breytingar á rekstri geðdeildarinnar. Árið 1963
var til dæmis opnuð sérhæfð meðferðardeild
fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga.
Niðurstöður sýna, að á tímabilinu 1959-
1979 fjölgaði innlögnum á hvert sjúkrarúm
nálega sjöfalt. Á árunum 1957 til 1972
fjölgaði innlögnum í Danmörku aðeins tvöfalt
(8,9). Þáttur áfengis- og vímuefnasjúklinga í
innlögnum var þar hlutfallslega miklu minni
en hér á landi (10).
Eftir árið 1964 urðu óverulegar breytingar á
fjölda nýrra sjúklinga (sjá töflu). Geðdeildir
voru opnaðar á Borgarspítalanum árið 1968
og á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
árið 1986. Þangað hafa einnig leitað nýir
sjúklingar. Einnig er hugsanlegt að betri
meðferð hafi dregið úr þörf á innlögnum.
Fjölgun innlagðra sjúklinga á geðdeild
Landspítala er því aðallega fólgin í fjölgun
endurinnlagðra sjúklinga. Á árunum 1979 og
1984 helst fjöldi bæði nýrra og endurinnlagðra
sjúklinga nokkuð svipaður. Þess ber að geta,
að breytingar höfðu orðið á samsetningu
nýrra sjúklinga eftir sjúkdómsgreiningum,
þar sem m.a. sjúklingahópurinn aðrir fer
stækkandi, en endurinnlagnarþörf þeirra er
hlutfallslega minnst (mynd 4). Markvissari
meðferð, opnun dagdeildar og fjölgun sambýla
hefur væntanlega dregið að einhverju marki úr
þörf á endurinnlögnum.
Þegar litið er á einstaka geðsjúkdómaflokka
(mynd 4) sést að fyrstu innlögnum sjúklinga
er líða af geðklofa fer heldur fækkandi eftir
1964. Svipaðar niðurstöður koma fram í
öðrum rannsóknum (8). Hérlendis stafar það
meðal annars af því að nýir sjúklingar er líða
af geðklofa hafa einnig lagst inn á geðdeildir
Borgarspítala og Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri.
Niðurstöður sýna, að á rannsóknartímabilinu
hafa verulegar breytingar átt sér stað á
innlögnum á geðdeildir Rfkisspítala. Fjölgun
innlagna eftir árið 1964 er fyrst og fremst
vegna aukinna endurinnlagna. Innlagnir karla
eru fleiri en kvenna, einkum endurinnlagnir,
en saman dregur með hópunum undir
lok rannsóknartímabilsins. Meðalaldur
breytist lítið eftir árið 1944. Samsetning
sjúklingahópsins eftir sjúkdómsgreiningum
hefur breyst og sjúklingar með ákveðna
geðsjúkdóma þurfa fremur á endurinnlögnum
að halda en aðrir. Rétt væri að huga
sérstaklega að stuðningskerfi þeirra
eftir útskrift, svo draga megi úr þörf á
endurinnlögnum. Stofnunin þarf sífellt að
aðlagast breyttum þörfum sjúklinga.
SUMMARY
The Department of Psychiatry at the National
University Hospitals of Iceland was founded
in the year of 1907. The aim of this survey
was to study the changes in all admissions
to the department during the period 1909-
1984. The number of first admissions,
number of re-admissions and number of re-
admitted patients are shown. The survey also
includes comparison of gender, mean age and
diagnostic groups.
There were altogether 5734 admissions of
3224 patients. The number of males was 2039
and of females 1185. Males were admitted
3698 times and females 2036 times.
The mean age of patients was rather constant
after the year 1939, for males 41.0 years and
for females 44.3 years.
The number of admissions increased greatly
after the year 1959. The number of first
admitted patients was relatively constant after
the year 1964. The number of re-admissions
continued to increase until the year 1979.
In this study the patients were divided into
four diagnostic groups: Schizophrenia, manio-
depressive psychosis, alcohol and drug abuse,
and other mental disorders. The main increase
was among patients in the group of alcohol
and drug abuse.
HEIMILDIR
1. Þorsteinsson GA. Athugun á innlagnartíðni og
dvalartíma sjúklinga á Kleppsspítalanum 1951-1970.
Læknablaðið 1974; 59; 197-204.
2. Helgason T. Stutt ágrip af sögu Kleppsspítalans.
Læknablaðið-1983; Fylgirit 17: 3-7.
3. Heilbrigðisskýrslur 1914-1984. Reykjavík:
Landlæknisembættið.
4. Jónsson V, Blöndal LH. Geðveikrahælið að Kleppi/
Kleppsspítali. Læknai á fslandi II. 2. útg. Reykjavík:
Læknafélag fslands og ísafoldarprentsmiðja, 1970;
378-81.
5. Ödegard Ö. Utskrivningsmönsti'et fra norske
psykiatriske sykehus för og etter den modeme
medikamentbehandling. Nord Med 1963; 70: 961-5.
6. Shepherd M, Goodman N, Watt DC. The application
of Hospital Statistics in the evaluation and