Læknablaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 5
LÆKNABLAÐIÐ 1992; 78 : 395-404
395
Lárus Jónasson11, Jónas Hallgrímsson11, Helgi Sigvaldason21, Guóríður Ólafsdóttir21,
Hrafn Tulinius21
MAGAKRABBAMEIN í ÍSLENDINGUM 1955-
1984: Afturskyggn rannsókn á melngerö og
staðsetningu æxla í mögum teknum meö
skurðaðgerð
ÁGRIP
Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna
meingerð og staðsetningu magakrabbameina
í mögum sem teknir voru með skurðaðgerð á
íslandi á tímabilinu 1955-1984. Þessi efniviður
þykir áreiðanlegri til mats á vefjagerð og
staðsetningu æxlis en efniviður fenginn við
krufningu og magaspeglun.
Efniviður var fenginn úr Krabbameinsskrá
Krabbameinsfélags íslands og frá
Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði.
Gengust 1034 íslendingar undir
skurðaðgerð með brottnámi magans vegna
magakrabbameins á rannsóknartímabilinu.
Vefjasýni úr þeim voru endurmetin
með smásjárskoðun og æxlunum
skipt í tvær meingerðir. annars vegar
garnafrumukrabbamein (carcinoma intestinale)
og hins vegar dreifkrabbamein (carcinoma
diffusum). Endanlegur fjöldi æxla til
rannsóknar var 1018.
Lækkun tíðni magakrabbameina teknum
með skurðaðgerð var meiri vegna
fækkunar garnafrumukrabbameina en
dreifkrabbameina. Hjá körlunt lækkaði
tíðni dreifkrabbameina hlutfallslega
jafn mikið og garnafrumukrabbameina,
en hjá konunt lækkaði eingöngu tíðni
gamafrumukrabbameina. Tíðni æxla í
nærhluta ntagans (cardia) hjá körlum jókst á
síðari hluta rannsóknartímabilsins á meðan
hún lækkaði stöðugt á öðrum svæðum
magans. Aukningin í nærhluta var öll vegna
gamafrumukrabbameina hjá báðum kynjum.
Æxli í nærhluta hjá konum voru fá og öll af
garnafrumugerð.
Frá Rannsóknastofu Háskólans í meinafræðiI, og
Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags íslands2*. Fyrirspurnir,
bréfaskipti: Jónas Hallgrímsson, pósthólf 1465,
121 Reykjavík.
Dánarlíkur sjúklinga með magakrabbamein
jukust með hækkandi aldri. Dánarlíkur vegna
æxla í nærhluta magans voru 56% hærri en
vegna æxla á öðrum svæðum magans. Lifun
sjúklinga eftir magaskurðaðgerð batnaði um
37% á rannsóknartímabilinu.
Þótt mismunandi tíðni og útbreiðsla
garnafrumukrabbameina «og dreifkrabbameina
í maga hafi almennt verið talin benda
til ólíkra orsaka er ýmislegt í okkar
niðurstöðum sem samræmist ekki þeirri
skoðun. Hugsanlega er aðeins um að ræða
mismunandi viðbrögð magaslímhúðar við
sömu áreitum. Slímhúðarbólga og kyn kunna
að leiða til ólíkra viðbragða og þannig til
mismunandi meingerða æxla.
Síðustu áratugi hefur nýgengi
magakrabbameins lækkað stöðugt bæði
hjá þjóðum með hátt og tneð lágt nýgengi.
Lækkunin hefur verið töluvert meiri hjá
þjóðum með hátt nýgengi og þar á meðal hjá
Islendingum. Niðurstöður erlendra rannsókna
og nýlega birtrar íslenskrar rannsóknar á
óvöldum efniviði hafa sýnt að þessa lækkun
á nýgengi megi helst rekja til fækkunar
á garnafrumukrabbameinum og síður til
fækkunar dreifkrabbameina. Sama niðurstaða
hefur orðið úr þessari rannsókn sem gerð var
á sérstaklega völdum efniviði.
INNGANGUR
Lengi hefur verið kunnugt að íslendingar hafa
verið meðal þjóða sem hafa hæst nýgengi
krabbameina í meltingarfærum og þar á
meðal magakrabbameins (1,2). Síðustu
áratugi hefur nýgengi magakrabbameins
lækkað stöðugt, bæði hjá þjóðurn með hátt
og með lágt nýgengi (3). Lækkunin hefur
þó verið töluvert meiri hjá þjóðum með hátt
nýgengi og þar á meðal hjá Islendingum
(4,5). Nýgengi á Islandi hjá körlum lækkaði