Læknablaðið - 15.12.1992, Síða 12
402
LÆKNABLAÐIÐ
í sambandi við skort á fersku grænmeti
og ávöxtum, en hvort tveggja er talið til
vemdandi þátta gegn æxlismyndun (16).
Lækkun nýgengis í söinu löndum á síðari
árum er því talin geta verið tengd vaxandi
neyslu þessara fæðutegunda. Breytingar á
daglegri fæðu Islendinga hafa auk ofangreinds
einnig komið fram í minnkandi neyslu á
söltuðum og reyktum mat sem flestum öðrum
fæðutegundum fremur hafa verið bendlaðar
við aukna hættu á magakrabbameini (17).
Lækkandi nýgengi magakrabbameina hjá
þjóðum með hátt nýgengi hefur aðallega
verið talið vera vegna lækkunar nýgengis
gamafrumukrabbameina (7-9). Orsakir
þeirrar gerðar æxla hafa verið settar í
samband við umhverfisþætti og þá helst
sérstakar fæðutegundir (17). Nýgengi
dreifkrabbameina hefur minnkað minna
en nýgengi gamafrumukrabbameina og
orsakir þeirra hafa frekar verið tengdar
fastbundnari þáttum, til dæmis erfðum og/eða
enn óþekktum þáttum (3).
Niðurstöður okkar af þessari rannsókn
á mögum sem teknir hafa verið með
skurðaðgerð verður að túlka með nokkurri
varúð þar sem við gefum okkur að sama
hlutfall sé milli meingerða hjá þeim
sjúklingum og hjá hinum sem líka voru
skráðir með magakrabbamein en lakari
upplýsingar liggja fyrir um vefjagerð
eða engin vefjarannsókn fór fram á. Við
höfum nokkurn stuðning til að álíta að
þetta megi þar sem niðurstöður rannsóknar
á öllum fyrirliggjandi vefjasýnum úr
magakrabbameinssjúklingum á tímabilinu
(tafla I) benda til svipaðrar niðurstöðu (11).
Ekki er sannað að orsakir
garnafrumukrabbameina séu aðrar en
dreifkrabbameina þótt gamafrumukrabbamein
hafi verið yfirgnæfandi hjá þjóðum með
hátt nýgengi. Hugsanlega er um að ræða
mismunandi viðbrögð slímhúðar magans
við sama áreiti. Athyglisvert er að hjá
körlum á íslandi hefur dregið jafnt úr báðum
æxlistegundum (mynd 2) og liggur því beinast
við að telja að annaðhvort hafi dregið jafnt úr
orsökum beggja æxlistegunda eða að um sömu
orsök sé að ræða. Niðurstöður meðal kvenna
sem sýna að eingöngu hefur dregið úr tíðni
gamafrumukrabbameina má heimfæra upp á
báða þessa möguleika. Annars vegar má túlka
þær niðurstöður á þann hátt að orsakir séu
mismunandi og að aðeins dragi úr þeim sem
valda gamafrumukrabbameinum. Hins vegar
má túlka niðurstöður á þann hátt að viðbrögð
slfmhúðar við sama áreiti hjá konum séu að
einhverju leyti önnur en hjá körlum. I því
sambandi má benda á dæmi um verulegan
mun milli kynja á tíðni krabbameina í öðrum
líffærum meðal Islendinga, til dæmis í efri
öndunarvegum og lungum (18,19).
Sú skoðun að orsakir beggja meingerða gætu
verið þær sömu kom nýlega fram í grein
um rannsókn á Italíu þar sem áhætta vegna
fæðuvals virtist ekki hafa haft áhrif á hvor
tegund magakrabbameins myndaðist (20).
Tíðni krabbameina í nærhluta magans (cardia)
jókst hjá báðum kynjum og sérstaklega í
körlum á síðasta rannsóknartímabili okkar
(tafla III, myndir 4 og 5). Aukningin varð
eingöngu vegna gamafrumukrabbameina
(töflur IV og V). Æxli í nærhluta magans í
konum á rannsóknartímabilinu voru eingöngu
gamafrumukrabbamein og í körlum voru 58 af
62 æxlum gamafrumukrabbamein eða 93%.
í niðurstöðum tveggja nýlegra erlendra
faraldsfræðilegra rannsókna, í Bandaríkjunum
annars vegar og Bretlandi hins vegar, var
rætt um, að líklegt væri að krabbamein
neðst í vélinda, í nærhluta magans og á
mótum þessara líffæra ættu sér aðrar orsakir
en krabbamein annars staðar í þessum
tveimur líffærum, því aukning varð á þessu
samsetta svæði á meðan lækkun varð á
öðrum svæðum (21,22). Okkar niðurstöður
benda til hins sama, að minnsta kosti hvað
snertir nærhluta og fjærhluta magans.
Virðist því sem áhrifaþættir til myndunar
garnafrumukrabbameina í nærhluta vaxi á
meðan þeir minnka á öðrum svæðum magans.
Þrír helstu áhættuþættir sem tengjast
magakrabbameini eru í dag taldir vera
slímhúðarsýking og bólga vegna Helicobacter
pylori, mikil saltneysla og of lítil neysla
ferskra ávaxta og grænmetis (23-25).
Helicobacter pylori er talin vera algeng
orsök slímhúðarbólgu í maga og skeifugöm
með eða án sármyndunar (26). Ekki er vitað
hversu virk í myndun krabbameina sýking
með þessari bakteríu er í Islendingum en
útbreiðsla er mikil eins og komið hefur fram í
rannsókn á fólki sem kom til magaspeglunar á