Læknablaðið - 15.08.1993, Blaðsíða 52
NU HAFA ÞUSUNDIR ISLENDINGA FENGIÐ LOSEC
VID SÁRSJÚKDÓMUM I MELTINGARHERUM
og verkurinn hverfur á stuttum tíma
hjá flestum sjúklingum.
meðferðartími og góð svörun gerir
bragði virðist.
Stuttur
Losec
ódýrara en í fljótu
STUNGULYFSSTOFN iv; Hvert hettuglas inniheldur: Omeprazolum natriumsalt. samsvarandi Omeprazolum INN 40 mg. SÝRUHJÚPHYLKI; Hvert sýruhjúphylki inniheldur: Omeprazolum INN 20 mg.
Eiginleikar: Lyfið blokkar prótónupumpuna (K+, H+-ATPasa) í paríetalfrumum magans. Lyfið dregur þannig úr framleiðslu magasýru, bæði hvildarframleiðslu og við hvers kyns örvun. Lyfið frásogast frá
þörmum á 3-6 klst. og er aðgengi nálægt 35% eftir einstakan skammt, en eykst í 60% við stöðuga notkun. Hvorki matur né sýrubindandi lyf hafa áhrif á aðgengi lyfsins. Próteinbinding í blóði er um 95%.
Helmingunartími lyfsins i blóði er u.þ.b. 40 mínútur, en áhrif lyfsins standa mun lengur en því samsvarar og er talið, að verkunin hverfi á 3-4 dögum. Lyfið umbrotnar algerlega aðallega í lifur og skiljast
umbrotsefni að mestu út með þvagi. Ábendingar: Sársjúkdómur í skeifugörn og maga. Bólga í vélinda vegna bakflæðis. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome). Æskilegt er, að þessar greiningar séu stað-
festar með speglun. Frábendingar: Engar þekktar. Aukaverkanir: Ógleði, niðurgangur, hægðatregða, vindgaogur. Höfuðverkur. Fáeinir sjúklingar hafa fengið útbrot. Milliverkanir: Ömeprazól getur minnkað
umbrotshraða diazepams, warfarins og fenýtóins i lifur. Fylgjast skal með sjúklingum, sem fá warfarín eða fenýtóin og getur verið nauðsynlegt að minnka skammta. Eiturverkanir: Einstakir skammtar, sem
nema 160 mg í inntöku eða 80 mg i æð. þolast vel. Athugið: Vegna takmarkaðrar reynslu af notkun lyfsins er einungis mælt með skammtimanotkun, ekki langtimanotkun. Ekki er ráðlegt að gefa lyfið
á meðgöngutíma og við brjóstagjöf nema brýn ástæða sé til. Skammtastærðir handa fullorðnum: Sýruhjúphylki: Skeifuqamarsán Venjulegur skammtur er 20 mg á dag i 2 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má
halda meðferð áfram í 2 vikur í viðbót. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð. hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan 4 vikna. Maqasár: Venjulegur skammtur
er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram i 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin oq sárið gróið,
oftast innan 8 -vikna. Bólqa i vólinda veqna bakflædis: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast, má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa
ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og bólgan læknast, venjulega innan 8 vikna. Zollinqer-Ellison heilkenni (syndrome): Venjulegur skammtur er 60 mg einu sinni á dag.
Finna þarf hæfilega skammta hverju sinni, en þeir geta verið á bilinu 20-120 mg á dag. Fari dagsskammtur yfir 80 mg þarf að skipta honum í tvær lyfjagjafir. Stungulyfsstofn: I upphafi meðferðar má nota
stungulyfið handa sjúklingum, sem eiga erfitt með að taka lyfið inn. Venjulegur skammtur er 40 mg i æð einu sinni á dag. Ekki skal blanda lyfinu saman við innrennslislausnir. Lyfið skal gefa rólega í æð
og á gjöf lyfsins að taká a.m.k. 2V4 minútu. Leysir fylgir stungulyfsstofninum og má ekki nota annan leysi. Tilbúna lausn skal nota innan 4 klst. frá blöndun. Skammtastærðir handa börnum: Engin reynsla
er af notkun lyfsins hjá börnum. Pakkningar: Stungulyfsstofn iv: (hgl. 40 mg + leysir) x 1. Sýruhjúphylki: 14 stk; 28 stk. Framleiöandi: Hássle. Umboðsaðili: Pharmaco.
•Meðalnotkun ágúst-nóvember 1990: 14.070 DDD (20 mg) á mánuði.
ASTItA
mmm astra ísiand