Læknablaðið - 15.04.1994, Qupperneq 12
134
LÆKNABLAÐIÐ
Sjónskerpa var stöðug, 6/12 á hægra og
6/18 á vinstra auga næstu þrjá mánuði en þá
versnaði hún í 6/60 á báðum augum. Hálfum
mánuði síðar var sjón orðin betri, eða 6/18
á hægra auga og 6/12 á því vinstra. Sjón
hrakaði síðan aftur og var þremur mánuðum
síðar 2/60 á hægra auga og ljósskynjun á
vinstra. Glerhlaups- og æðubólga (uveitis) var
vaxandi þáttur í sjúkdómsmynd. Við síðustu
skoðun tveimur mánuðum síðar var sjón
handarhreyfingar á hægra auga og alblinda
á vinstra auga. Sjóntaugarhrörnun var í báðum
augum, virk sjónubólga og sjónulos að hluta í
vinstra auga.
Sjúklingurinn lést 12 og hálfum mánuði eftir
að hann greindist með CMV sjónubólgu og
var þá búinn að vera blindur í tvo og hálfan
mánuð.
Sjúklingur 2: Sjúklingur var kominn með
alnæmi rúmum tveimur árum eftir að hann
greindist HlV-jákvæður. Einum og hálfum
mánuði eftir að hann var kominn með alnæmi
greindist hann með CMV sjónubólgu sem
var í bata. Hann var þá þegar korninn á
ganciclovir meðferð eftir að vera greindur
með CMVsár í skeifugörn stuttu áður. Við
skoðun var sjón 6/5 á hægra auga og 6/6 á
vinstra auga. Sjónubólga var í bata og einn
fífublettur í báðum augum. Sjónubólgan
tók sig upp níu og hálfum mánuði síðar án
þess að sjón skertist. Stuttu síðar versnaði
sjón í 6/18 á hægra auga og 6/24 á vinstra
auga þó sjónubólgan væri óvirk en rúmum
hálfum mánuði síðar hafði sjón batnað í 6/5 á
hægra auga og 6/6 á vinstra auga. Við síðustu
skoðun var sjón 6/12 á hægra auga og 6/6 á
vinstra auga og engin merki um virka CMV
sýkingu. Sjúklingur lést 14 mánuðum eftir að
hann greindist með CMV sjónubólgu.
Sjúklingur 3: Sjúklingur greindist HIV-
jákvæður og með alnæmi á sama tíma.
Kvartaði um minnkaða sjón tæpu ári eftir
að hann greindist með alnæmi, en sjónskerpa
mældist þó 6/6 á báðum augum. Næstu daga
minnkaði sjón verulega á hægra auga og var
það orðið alblint 10 dögum síðar. Vinstra auga
versnaði á sama tíma í 6/12. CMV sjónubólga
greindist í báðum augum og hafin var meðferð
með ganciclovir.
Vegna hins mikla sjóntaps var talið að
sjóntaugarbólga ætti hlut að máli og var
sjúklingurinn settur á prednisólón 45 mg
daglega. Þremur vikum eftir greiningu
sjónubólgu var sjón fingurtalning á hægra
auga en 6/6 á vinstra auga. Fimm dögum síðar
lýsti sjúklingur ljósblossum (photopsia) fyrir
augum og var talið að um sjónulos væri að
ræða. Var hann því lagður inn á augndeild
Landakots. Þá var sjón handarhreyfing á
hægra auga en staðsetning ljóss á vinstra.
Sjónulos var að hluta í hægra auga en algert
í vinstra.
Gerð var glerhlaupsaðgerð og sett inn
sfiiconolía í vinstra auga daginn eftir innlögn
og sama aðgerð á hægra auga sex dögum
síðar. Segulómun á Landspítala á sama tíma
sýndi engin merki um sjóntaugarbólgu. Við
útskrift viku síðar frá Landakotsspítala var
sjón 1/60 á báðum augum, engin virkni í
sjóntaugarbólgunni, sjóntaugardoppur fölar
og æðar í augnbotni grannar.
Sjón varð best 2/60 á hægra auga og 3/60
á vinstra auga, sem sjúklingur hélt til
dauðadags, níu mánuðum eftir aðgerð.
Sjúklingur 4: Sjúklingur fékk alnæmi fimm
árum eftir að hann greindist HlV-jákvæður.
Augnskoðun fimm mánuðum síðar sýndi
fífublett í vinstra auga og í öllum síðari
augnskoðunum hafði hann einn eða fleiri
fífubletti í báðum augum sem mynduðust
og hurfu á víxl. Engin inerki komu fram um
sjónubólgu.
Við síðustu skoðun var sjón 6/5 á báðum
augum.
Sjúklingur 5: Sjúklingur var kominn með
forstigseinkenni alnæmis. Hann kom í skoðun
vegna æðubólgu í hægra auga rúmum þremur
árum eftir að hann greindist HlV-jákvæður.
Skoðun leiddi í ljós litla flekki á glærunni
og frumur í forhólfi. Sjón var 6/4 á báðum
augum. Sjúklingur var settur á sterameðferð
gegn æðubólgunni. Önnur skoðun þremur
dögum síðar sýndi djúpt ör í hægri glæru en
6/6 sjón á báðum augum. Þetta var greint sem
herpes simplex glærubólga.
Einum og hálfum mánuði síðar hafði sjón
versnað í 6/9 á hægra auga og 6/6 á vinstra
auga. Sjúklingur var þá settur á acyclovir
augnsmyrsli og töflur. Viku síðar hafði sjón
versnað í 6/15 á hægra auga en óbreytt 6/6
á vinstra auga. Sjón var orðin betri tveimur
vikum síðar og acyclovir meðferð var þá hætt.