Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1994, Síða 38

Læknablaðið - 15.04.1994, Síða 38
160 LÆKNABLAÐIÐ að sjúklingafjöldinn sé um 8000 á ári. Um 1600 sjúklingar leita meðferðar árlega vegna misnotkunar áfengis og annarra vímuefna. Af framansögðu er ljóst að mikið vantar á að allir fái viðeigandi meðferð vegna geðtruflana. Sjúkdómslíkur: Líkur íslendinga á að fá einhverjar geðtruflanir hafa verið áætlaðar með því að rannsaka alla sem fæddir voru á árunum 1895-1897 og á lífi á íslandi I. desember 1910. Samkvæmt afturskyggnri rannsókn á þessum hópi voru sjúkdómslíkurnar fram til 61 árs aldur 32,5% fyrir karla og 35,3% fyrir konur (7). Síðar hefur þeim sem þá voru á lífi verið fylgt eftir og rannsakaðir þrisvar til þess að áætla sjúkdómslíkurnar fram til 75, 81 og 87 ára aldurs (23,24). Þessar rannsóknir eru sögulega framskyggnar (historical prospective) eins og allar framskyggnar rannsóknir eru í sjálfu sér, vegna þess að ekki er hægt að láta rannsóknarmenn fylgjast með og skrá heilsufar hvers einstaklings frá degi til dags. A töflu VIII eru til samanburðar við íslendinga sýndar sjúkdómslíkur samkvæmt sögulega framskyggnri rannsókn frá Svíþjóð (25). Líkur íslendinga á að fá einhverja geðtruflun fyrir 88 ára aldur eru tæplega 88% hjá körlum og 84% hjá konum. Á mynd 3 eru sýndar líkur íslendinga til þess að fá geðklofa á 20. öldinni. Eins og myndin ber með sér hafa sjúkdómslíkurnar haldist svipaðar yfir 65 ára tímabil. Þær voru 0,85% fyrir þá sem fæddir voru í lok síðustu aldar, en 0,7% fyrir þá sem voru fæddir 1961. Líkurnar á að leggjast á spítala vegna geðklofa eru heldur minni en heildarlíkurnar en mismunurinn hefur farið minnkandi eftir því sem möguleikar á meðferð og sjúkrahúsvist hafa aukist. Faraldsfrœðileg samkenni: Geðtruflanir í heild eru nokkum veginn jafntíðar hjá körlum Table VIII. Expectancy (per cent) at tlie age of 14 years of developing a mental disorder in lceland (23,24) before a specific later age according to sex and in Sweden at the age of 15 years estimated from data given by Hagnell (25). Iceland Age M F Sweden Age M F 61 years 32.5 35.3 60 years 36.9 71.6 75 years 48.6 51.3 70 years 48.3 79.2 81 years 66.2 67.6 80 years 77.4 85.8 87 years 87.7 83.6 80 + 90.7 96.1 % -d- Minor mental disorders (20-59 years; 16.1%) ~°~ All psychotropic drugs (20-59 years; 5.3%) Tranquillizers (20-59 years; 3.6%) Antidepressants (20-59 years; 0.7%) Fig. 2. Estimated prevalence (per cent) of "Minor Mental Disorders" and one month prevalence of prescriptions for psychotropic medications (19). % □ Schizophrenia Fig. 3. Expectancy (per cent) of schizophrenia (certain and uncertain diagnoses) and of being admitted for schizophrenia (certain 1CD-I0 diagnosis) according to year of birth. % Symptoms of CMI alcohol abuse YES □ 3+ 0-9 □ 3+ 10+ □ 0-2 10+ Fig. 4. Prevalence (per cent) of mental disorders in 1974 as represented by 10 or more positive answers to M- R section of Cornell Medical lndex and three or more symptoms suggestive of alcohol abuse (10).

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.