Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 39

Læknablaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 39
LÆKNABLAÐIÐ 161 Table IX. Distribution of outcome in 1971 among probands alive in 1957 in lceland at tlie age of 60-62 years according to principal diagnosis at tliat time (28). Principal Not Mental Other Number of diagnosis disabled (%) disability (%) disability (%) Dead (%) Total (%) probands Functional psychoses ................ 25.5 31.0 6.2 37.2 99.9 145 Neuroses ............................ 49.4 12.2 10.1 28.3 100.0 526 Alcohol and drug abuse .............. 31.5 12.1 4.0 52.3 99.9 149 Organic mental disorder ............. 18.3 20.7 9.8 51.2 100.0 82 Intellectual subnormality ........... 34.0 22.7 12.4 30.9 100.0 97 Personality disorder ................ 34.9 20.5 6.0 38.6 100.0 83 Unspecified mental disorder.......... 58.4 5.2 11.7 24.7 100.0 77 All mental disorders ................ 40.2 16.1 8.8 34.9 100.0 1,159 Without mental disorders ............ 60.5 3.5 10.5 25.5 100.0 2,543 Total 54.2 7.4 10.0 28.4 100.0 3,702 og konum. Hins vegar eru sjúkdómsmyndimar nokkuð mismunandi sérstaklega eru kvíðatruflanir og þunglyndi mun algengari meðal kvenna, en misnotkun áfengis mun algengari meðal karla. Séu taugaveiklun og áfengismisnotkun skoðaðar saman, vom líkurnar á þessum truflunum svipaðar hjá körlum og konum eða tæplega 20%. Líkur karla á taugaveiklun og áfengismisnotkun voru nokkurn veginn jafnar. Hins vegar voru líkur kvenna á misnotkun um 1% en 19% fyrir taugaveiklun (26). Svipuð niðurstaða fékkst að því er varðar algengi við skimleit meðal rúmlega 2400 manns á aldrinum 20-49 ára. I þessari skimleit svaraði fólk spurningum úr Cornell Medical Index Health Questionnaire (CMI) (27) og spurningum um einkenni sem bentu til áfengismisnotkunar. Þeir sem höfðu 10 eða fleiri einkenni samkvæmt M-R hluta CMI og þrjú eða fleiri einkenni um áfengismisnotkun, voru taldir líklegir til þess að vera annað hvort taugaveiklaðir eða áfengismisnotendur (mynd4) (10). Samanlagt algengi þessara truflana var svipað hjá körlum og konum, en eins og sjúkdómslíkurnar var algengi taugaveiklunar miklu meira hjá konum en körlum og algengi áfengismisnotkunar meira hjá körlum. Gangur: Til þess að fylla sjúkdómsmyndina er nauðsynlegt að rannsaka gang þeirra og afdrif sjúklinganna og bera saman við heilbrigða. Tafla IX sýnir niðurstöður rannsóknar frá 1971 á afdrifum Islendinga sem voru á aldrinum 60-62 ára árið 1957, eftir sjúkdómsgreiningum þá (28). Rúmur þriðjungur þeirra sem fengu geðgreiningu 1957 voru látnir fyrir 1971, en ekki nema fjórðungur þeirra sem enga slíka greiningu fengu. Sérstaklega er áberandi að helmingur áfengissjúklinganna hefur látist á þessum tíma. Meiri hluti þeirra hafði ekki fengið neina meðferð. Þetta er í samræmi við niðurstöður íslenskrar rannsóknar á dánartíðni áfengissjúklinga sem komið höfðu í meðferð á árunum 1951-1974 (29). Um 40% þeirra sem greindir voru með geðtruflanir og um 60% annarra, voru ekki það hamlaðir að starfsorka þeirra væri skert um meira en 50% þegar þeir voru að jafnaði 75 ára. Hins vegar var þriðjungur þeirra, sem voru svo hamlaðir vegna geðtruflana árið 1971, án geðgreiningar 1957. Af þeim sem voru á lífi 1971 höfðu 24% einhvers konar hömlun sem skerti starfsorku þeirra um meira en 50%, þar af 10% vegna geðtruflana. Orsakaleit og forvarnir: í sfðustu skimleitinni var einnig spurt um einkunn á barnaprófi og á hvaða aldri menn hefðu byrjað að neyta áfengis. Tafla X sýnir að körluni sem áttu við áfengisvandamál að stríða gekk verr á barnaprófi en öðrum. I sömu rannsókn kom í ljós, að stórdrykkjumenn höfðu að jafnaði byrjað mun fyrr að neyta áfengis en þeir sem drekka lítið (30). í tilfellaviðmiðaðri rannsókn á áfengismisnotkun var samanburðarhópurinn valinn þannig, að á móti hverjum misnotanda var fundinn einstaklingur sem var jafn gamall og hafði hlotið sömu einkunn á barnaprófi og misnotandinn. I rannsókninni kom í Ijós að meðal inisnotendanna voru miklu fleiri sem höfðu sýnt alls kyns andfélagslega hegðun í æsku (tafla XI) (31). Þó að orsakir vímuefnamisnotkunar hafi ekki verið leiddar í ljós með þessum rannsóknum, benda

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.