Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1994, Side 4

Læknablaðið - 15.12.1994, Side 4
„Ef þetta hjálpar ekki getur þú komið aftur og fengið eitthvað annað" „Gæti ég ekki alveg eins fengið þetta annað núna?" Afhverju ekki að byrja strax á bestu og ódýrustu meðferðinni? Með því að nota Losec® við bakflæði fæststyttri meðferðartími og sjúklingnum líður betur (QoL) en á meðferð með H2 blokkum. Jafnframt er Losec®ódýrari fyrir þjóðfélagið Eiginleikar: Lyfið blokkar prótónupumpuna (K+, H+ - ATPasa) i paríetalfrumum magans. Lyfið dregur þannig úr framleiðslu magasýru, bæði hvfldar- framleiðslu og við hvers kyns örvun. Lyfið frásog- ast frá þörmum á 3-6 klst. og er aðgengi nálægt 35% eftir einstakan skammt, en eykst í 60% við stöðuga notkun. Hvorki matur ná sýrubindandi lyf hafa áhrif á aögengi lyfsins. Próteinbinding i blóði er um 95%. Helmingunartími lyfsins í blóði er u.þ.b. 40 mínútur, en áhrif lyfsins standa mun lengur en þvi samsvarar og er taliö, að verkunin hverfi á 3-4 dögum. Lyfiö umbrotnar algerlega. Umbrot eru aðallega f lifur og skiljast umbrotsefnin að mestu út meö þvagi. Abendingar: Sársjúkdómur í skeifugörn og maga. Bólga i vélinda vegna bakflæðis. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome). Æskilegt er, að þessar grein- ingar séu staðfestar með speglun. Langtimanotkun við bólgu i vélinda vegna bakflæðis eöa við síendurteknum sárum í maga eða skeifugörn: Ekki er mælt með notkun lyfsins lengur en í 3 ár. Frábendingar: Engar þekktar. Aukaverkanir: Aukaverkanir eru almennt fátiðar. Húð: Útbrot koma fyrir svo og bráðaofnæmi og kláði. Stoðkerfi: Liðverkir og vöðvaþreyta. Eymsli f vöövum. Taugakerfí: Höfuðverkur. Sjaldan svimi. Paraestesíur. Syfja og svefnleysi hefur einnig sést. Tímabundið rugl, oflæti, þunglyndi og ofskynjanir hafa einnig verið tengd gjöf lyfsins í einstaka tilvik- um, einkum hjá mjög veikum sjúklingum. Meltingarvegur: Breytingar á hægðum (niðurgang- ur, hægðatregða). Kviðverkir, ógleði, uppköst og aukinn vindgangur. Lifur: Lifrarenzým hafa hækkað með eöa án bilirúbínhækkun. Innkirtlar: Brjósta- stækkun hefur sést. Blóð: Einstaka tilvikum um fækkun hvítra blóðkorna og blóðflagna hefur veriö lýst. Milliverkanir: Ómeprazól getur minnkað umbrots- hraða diazepams, warfaríns og fenýtófns f lifur. Fylgjast skal með sjúklingum, sem fá warfarfn eða fenýtóin og getur verið nauðsynlegt að minnka skammta. Eiturverkanir: Engar upplýsingar liggja fyrir um eiturverkanir í mönnum. Nákvæmar leiðbeiningar um meðferð eru þvi ekki þekktar. Athugið: Ekki er ráðlagt að gefa lyTið á meðgöngu- tima og við brjóstagjöf nema brýn ástæða sé til. Skammtastœrðir handa fullorðnum: Sýruhjúphylk- in á að gleypa heil með a.m.k. 1/2 glasi af vatni. Tæma má innihald hylkjanna í t.d. skeiö og taka það þannig inn en þau má ekki tyggja. Gæta skal þess að geyma hylkin í vandlega lokuðu glasi. Sýruhjúphylki: Skeifugarnarsár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 2 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram í 2 vikur f viðbót. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróiö, oftast innan 4 vikna. Magasár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag f 4 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svaraö annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan 8 vikna. Bólga f vélinda vegna bakflæðis: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast, má halda meðferð áfram I 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og bólgan læknast, venjulega innan 8 vikna. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome): Venjulegur skammtur er 60 mg einu sinni á dag. Finna þarf hæfilega skammta hverju sinni, en þeir geta veriö á bilinu 20-120 mg á dag. Fari dagsskammtur yfir 80 mg þarf aö skipta honum í tvær lyfjagjafir. Langtímameöferð vegna bakflæðis í vélinda eða vegna siendurtekins sársjúkdóms í maga eöa skeifugörn: Venjulegur skammtur er 20 mg einu sinni á dag. Ef einkenni versna má auka skammtinn í 40 mg einu sinni á dag. Skammastærðir handa börnum: Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum. Framleiðandi: Astra. Einkaumboð á íslandi: Pharmaco hf„ Hörgatúni 2, Garöabæ.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.