Læknablaðið - 15.12.1994, Blaðsíða 7
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
519
um, þó að þar á megi finna einstaka undan-
tekningar. Hún hefur þetta í huga við ritstjórn-
armeðferðina og ætlar með henni að bæta
greinarnar og gera þær aðgengilegri fyrir les-
endur.
Höfnun handrita sem berast til Læknablaðs-
ins, það er að segja að ritstjórnin segi höfundi
beint að þetta vilji hún ekki birta í blaðinu,
kemur ekki oft fyrir. Vegna þess hvað maður-
inn á erfitt með að aðskilja gagnrýni á verk og
ádeilu á eigin persónu leitast ritstjórn við að
setja tilmælin um breytingar á innsendum
handritum fram á þann hátt að höfundum
verði ljóst að tilgangurinn er að bæta og skýra
efnið og auðvelda þeim sem við eiga að taka,
lesendunum.
Að endingu er reynt að líta yfir og lagfæra
málfar og réttritun eftir ástæðum, en fyrir birt-
ingu fá höfundar próförk frá prentsmiðju til
yfirlestrar.
Nú spyrja ef til vill einhverjir hvort þessi
ferill handrita og vangaveltur ritstjórnar um
greinarnar sé uppfinning hennar sjálfrar eða
sérviska hennar, eða farvegur fyrir flaum
valdafýsnar. Því er til að svara að svo er ekki
heldur er ritstjórnin hér að herma eftir þeim
vinnureglum sem hafðar eru hjá læknablöðum
erlendis. Menn geta verið ósammála um þenn-
an metnað ritstjórnarinnar en innan hennar
ríkir einhugur um málið. Eitt atriði er þó frá-
brugðið hjá Læknablaðinu því sem gerist við
erlend læknatímarit, nefnilega að ritstjórnin
leggur sig í framkróka við að laga og bæta
greinarnar þannig að birtingarhæfar verði.
Sum virt læknatímarit birta einn fjórða hluta af
innsendum greinum (1). Samkvæmt munnleg-
um upplýsingum frá norska læknablaðinu
hafnar ritstjórn þess um einum þriðja hluta
innsendra greina. Læknablaðið hafnar ekki
svo stórum hluta innsendra greina. Tekið skal
fram að það sem ræður höfnun greina er ekki
eingöngu mat á gæðum þeirra heldur ræður þar
miklu hvort rúm er í blöðunum til birtingar eða
hvort efnið hæfir tilteknu blaði.
Því hefur verið haldið fram að ritdómar
hæfra sérfræðinga á greinum sem birtast um
læknisfræði, sé ein mikilvægasta gæðastjórnun
í vísindum (2). Á síðustu árum hafa menn hafið
rannsóknir á þessu gæðaeftirliti með það að
markmiði að gera það virkara og betra. Það er
hlutverk ritstjórnarinnar að fylgjast með
hvernig þróun verður og þekking vex á þessu
sviði.
HEIMILDIR
1. Northridge ME, Susser M. Editorial: The paper route for
submissions to the journal. Am J Public Health 1994; 84:
717-8.
2. Rennie D. Guarding the guardians: a conference on edi-
torial peer review. JAMA 1986; 256: 2391-2.
Vilhjálmur Rafnsson