Læknablaðið - 15.12.1994, Blaðsíða 34
544
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Table I. Sample and no. respondents, 1989 and 1992. Lions Quest material used in schools marked*.
School Total no. students No. respond- ents 1989 Reg. in school, spring 1992 No. respond- ents 1992
Capital area school A* 45 43 41 38
Capital area school B* 116 108 104 93
Capital area school C 100 98 93 93
Capital area school D* 42 32 32 32
Rural area school 1* 107 93 92 86
Rural area school 2 68 67 57 51
Rural area school 3 108 95 84 77
Rural area school 4* 40 30 30 30
Total 626 566 533 500
I). í þeim skólum sem tóku þátt í rannsókninni
voru alls 626 nemendur samkvæmt bekkjar-
skrám haustið 1989 (tafla I). Alls voru 39 nem-
endur fjarverandi þegar könnunin fór fram
1989 og 21 neitaði þátttöku eða fyllti mjög
óáreiðanlega í spurningalista (töflur I og II).
Haustið 1989 svöruðu því alls 566 nemendur og
voru þeir markhópurinn vorið 1992. Sam-
kvæmt skólagögnum árið 1992 reyndust 33
nemar vera fluttir (tafla II). Alls neituðu sjö
þátttöku en 26 voru fjarverandi. Við mat á
niðurstöðum var eingöngu stuðst við svör
þeirra sem tóku þátt bæði 1989 og 1992. Heild-
arþátttaka var því 500/626 eða 80%, en brott-
fallið (78%) er aðallega vegna þeirra sem vant-
aði í skóla þann dag er könnunin fór fram eða
þeir voru fluttir (tafla II).
Aðferð: Við gerð spurningalistans var lagður
til grundvallar spurningalisti sem Landlæknis-
embættið notaði 1984,1986 og 1989 (2-4). Um
er að ræða fjölvalsspurningar um viðhorf til
vímuefna og notkun þeirra, en einnig var spurt
um lífsstíl. Alls voru 45 spurningar á listanum
árið 1989 en 1992 var bætt við 14 spurningum
um lífsviðhorf. Einnig var þá spurt um ein-
kunnir í móðurmáli, dönsku og stærðfræði og
meðaleinkunn þessara námsgreina reiknuð.
Framkvœmd: Spurningalistar voru fyrst
lagðir fyrir nemendur í skólatíma haustið 1989,
þegar flestir nemanna voru 12-13 ára og svo að
nýju fyrir sömu nemendur í mars 1992 er þeir
voru 15—16 ára. Gætt var fyllstu nafnleyndar
við könnunina og nafnaskrá eytt, þegar spurn-
ingalistar frá 1989 og 1992 höfðu fengið sama
númer. Við tölfræðilegan samanburð var beitt
kí-kvaðrat prófi, nema við samanburð á
meðaleinkunnum og líkamsþyngd, þá var not-
að t-próf stúdents. Munur er talinn tölfræði-
lega marktækur við p<0,05.
Niðurstöður
í rannsóknarhópnum voru 266 piltar og 234
stúlkur. Flest (372) voru fædd árið 1976, 125
árið 1977, tvö árið 1975 og einn árið 1978. Rétt
rúmur helmingur þeirra hafði fengið einhverja
LQ kennslu (tafla I).
Félagslegt umhverfi: Tæplega 90% barnanna
voru alin upp hjá báðum foreldrum árið 1989
en 1992 hafði þeim fjölgað er aldir voru upp hjá
foreldri og stjúpforeldri (tafla III). Tómstund-
um með foreldrum (aðrar en horft á sjónvarp)
fækkaði verulega milli áranna 1989 og 1992
(tafla III) og hefur til dæmis vikulegum tóm-
stundum eða oftar næstum fækkað um helm-
ing. Kvöldum heima fækkar einnig verulega.
Ofangreindar félagsaðstæður eru mjög svipað-
ar hjá piltum og stúlkum. Þátttaka í félögum
(íþróttir, skátar) er svipuð 1989 hjá piltum og
stúlkum, en er hlutfallslega minni meðal
stúlkna árið 1992. Aftur á móti er þátttaka í
félagi á síðastliðnum mánuði mun meiri hjá
þeim sem á annað borð eru í félagi árið 1992 en
1989. Reykingar foreldra minnka á tímabilinu
en aukast hjá systkinum. Erfiðleikar vegna
áfengisneyslu virðast vera svipaðir 1989 og 1992
en heima„partíum" þar sem áfengi er leyft hef-
ur fjölgað og virðast tæplega 10% allra 15-16
ára unglinga fá að halda „partí" heima þar sem
áfengi er leyft.
Table II. Reasons for deletions.
Research group spring 1989 Target group 1992 Deletions 1992
Not in school Not usable or 39 26
wouldn’t reply Moved 21 33 7
Total 60 33 33