Læknablaðið - 15.12.1994, Blaðsíða 92
596
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Úr fréttatilkynningu
Nýjar og breyttar reglur um vinnuvernd
vegna EES samningsins
Með gildistöku samningsins
um Evrópskt efnahagssvæði
hefur stjórn Vinnueftirlits ríkis-
ins þurft að endurskoða og bæta
við fjölmörgum nýjum reglum
sem falla undir lög um vinnu-
vernd.
Eftirfarandi vinnuverndar-
reglur hefur stjórn Vinnueftir-
litsins samþykkt á grundvelli
heimilda í lögum nr. 46/1980 um
aðbúnað, hollustuhætti og ör-
yggi á vinnustöðum og sam-
kvæmt samningnum um
Evrópskt efnahagssvæði:
— Reglur um tiotkun persónu-
hlífa,
— reglur um öryggi og hollustu
þegar byröar eru handleiknar,
— reglur um skjávinnu,
— reglur um hávaðavarnir á
vinnustöðum og eftirlit með
heyrn starfsmanna.
Þessar reglur hafa birst í
Stjórnartíðindum og hafa því
þegar öðlast gildi.
Reglur um notkun persónu-
hlífa: Persónuhlífar eru skil-
greindar sem búnaður sem
starfsmanni er gert að klæðast
eða halda á, sér til verndar gegn
hættu sem stefnt getur öryggi
hans og heilsu í voða. Eingöngu
skulu notaðar persónuhlífar
sem uppfylla gildandi reglur um
gerð persónuhlífa. I reglunum
er ennfremur fjallað um þær
skyldur atvinnurekanda að láta
persónuhlífar í té og um skyldur
starfsmanna til að nota þær.
Reglur um öryggi og hollustu
þegar byrðar eru handleiknar:
Reglurnar gilda um það þegar
byrðum er lyft, ýtt, eða þær eru
fluttar til með einhverju móti
þannig að heilsutjón geti stafað
af. Reglurnar kveða skýrt á um
að atvinnurekandi skal gera
ráðstafanir til að starfsmenn
komist hjá því að handleika
byrðar þannig að hætta stafi af,
annaðhvort með breyttu skipu-
lagi eða með notkun hjálpar-
tækja. Einnig kveða reglurnar á
um upplýsingaskyldu atvinnu-
rekanda gagnvart starfsmönn-
um.
Reglur um skjávinnu: Regl-
urnar ná til starfsmanna sem
nota tölvu við umtalsverðan
hluta vinnu sinnar eða að
minnsta kosti tvo tíma á dag.
Þar kemur fram að atvinnurek-
anda sé skylt að gera úttekt á
vinnuaðstöðu og meta hvaða
áhrif hún hefur á starfsmenn,
einkum er varðar hugsanlega
áhættu fyrir sjón og líkamlegt og
andlegt álag. Reglurnar kveða
einnig á um upplýsingaskyldur
atvinnurekanda gagnvart starfs-
mönnum. Allir nýir vinnustaðir
verða að uppfylla lágmarks-
kröfur sem tilgreindar eru í við-
auka. Eldri vinnustaðir hafa
fjögur ár til að bæta aðbúnað og
aðlaga hann að þeim kröfum
sem fram koma í reglunum.
Reglur um hávaðavarnir á
vinnustöðum og eftirlit með
heyrn starfsmanna: Reglurnar
koma í stað reglna nr. 77/1986.
Ekki er um verulegar efnis-
breytingar að ræða frá fyrri regl-
um. Reglunum er ætlað að
koma í veg fyrir heyrnar-
skemmdir og skaðleg áhrif af
völdum hávaða. í þeim er að
finna ákvæði um ráðstafanir á
vinnustöðum sem draga úr há-
vaða, tryggja að starfsmenn noti
heyrnarhlífar þar sem þess er
þörf og að haft verði reglulegt
eftirlit með heyrn starfsmanna
þar sem við á. Hávaði skal vera
undir 85 dB (A) jafngildishá-
vaða á átta stunda vinnudegi.
Auk ofangreindra reglna öðl-
uðust 14 reglur um gerð og bún-
að tækja gildi síðastliðið haust.
Þetta eru:
— Reglur um aðgerð við að
ákveða hávaða sem berst í lofti
við notkun véla utanhúss,
— um leyfilegt hljóðaflsstig
loftpressa, byggingarkrana, raf-
suðuvéla, vélknúinna rafala,
handverkfæra fyrir múrbrot og
fleygun og garðsláttuvéla,
— um takmörkun hávaða frá
vökva- og víragröfum. jarðýt-
um, hjóla- og beltaskóflum,
— um vélar og búnað á bygging-
arsvæðum,
— um gerð persónuhlífa,
— um lyfti- og flutningabúnað,
— um vottun og merkingu á
stálvírum, krókum og keðjum,
— um fólkslyftur og fólks- og
vörulyftur,
— um lyftara og dráttartæki.
Stjórn Vinnueftirlitsins vinn-
ur enn við að endurskoða og
bæta við nýjum reglum á grund-
velli samningsins um Evrópskt
efnahagssvæði. Reglurnar sem
munu öðlast gildi á næstu mán-
uðum verða meðal annars
kynntar í Fréttabréfi um vinnu-
vernd sem gefið er út af Vinnu-
eftirlitinu. Nánari upplýsingar
um reglurnar má fá hjá Vinnu-
eftirliti ríkisins í síma 91-672500
rnilli klukkan 8:20 og 16:00.